Dagur - 11.11.2000, Side 6

Dagur - 11.11.2000, Side 6
„Það hefði aldrei hvarfiað að mér að fara í sambærilegt starf hjá venjulegu, hefðbundnu íslensku fyrirtæki vegna þess einfaldlega að ég hefði ekki séð fyrir mér annað en leiðindin. Þetta er annars eðlis." Horft til framtíðar Páli Magn- ússon tók nýlega við starfi fram- kvæmda- stjóra sam- skipta- og upplýsingasviðs ís- lenskrar erfðagreining- ar. Hann gegndi áður stöðu fréttastjóra Stöðvar 2. í viðtali ræð- ir hann meðal annars um árin í íslenskum fjölmiðlaheimi og starf- ið hjá íslenskri erfða- greiningu. - Þú vannst sem blaðamaður og síðan sem fréttamaður hjú Sjón- varpinu áður en þú fórst til Stöðvar 2 sem fréttastjóri. Var áberandi munur á því að vinna hjáRUVog Stöð 2? „Það var mikill munur á þessu tvennu. Eg var fyrsti maðurinn sem var ráðinn inn á fréttastofu Stöðvar 2 og það var mitt hlutverk að búa hana til, ráða fólk og móta ritstjórn- arstefnu. Það voru mikil við- hrigði að koma í þ'að frelsi úr RUV helsi. Þar voru allir hlutir í föstu fari og ef einhverju átti að breyta þurfti að fara í gegn- um heila hjörð af smákóngum og svo endaði öll útgerðin hjá pólitískt kjörnu útvarpsráði. Þetta var svo gott sem óvinn- andi virki og það var gríðarleg- ur munur á þessu tvennu." - Finnst þér að rfhið eigi að reka sjónvarpsstöð? „Eg get alveg séð fyrir mér að ríkið reki sjónvarp á sömu for- sendum og BBC hefur lengst af verið rekið. Þá er tekin menningarpólitísk ákvörðun um að reka ríkissjónvarp, líkt og til dæmis þjóðleikhús eða þjóðminjasafn, en um leið á þá ríkissjónvarpið að gera það sem markaðurinn gerir ekki. Það verður til dæmis seint mark- aðsvænt að setja upp stór og þungbúin íslensk leikrit fyrir sjónvarp og þess vegna ætti rík- issjónvarpið að gera það. Það mætti líkja þessu við hlutverk ríkisrekinnar sinfóníuhljóm- sveitar. Ég sæi enga ástæðu til að vera að halda úti sinfóníu- hljómsveit fyrir skattfé ef hún héldi svo bara popptónleika eins og allir aðrir. En það er einmitt það sem RUV er að gera. RUV er rekið fyrir skattfé en gerir ekkert öðruvísi en aðr- ar sjónvarpsstöðvar heldur keppir við Stöð 2, Sýn og Skjá einn um erlent afjireyingar- og íþróttaefni. Eg vil ekki borga skatta til þess. Eg vil borga skatta til að sjá eitthvað í ríkis- sjónvarpinu sem ég sé ekki á hinum stöðvunum, vandað ís- lenskt efni, leikrit, náttúrulífs- myndir, eitthvað sem markað- urinn sér ekki um. En í stað þessa sitjum við uppi með rík- issjónvarp scm gerir það sem aðrir gera hvort sem er.“ Áhrif Stöðvar 2 - Heldurðu að fréttastofa Stöðv- ar 2 hafi breylt einhverju í ts- lenskum fjölmiðlaheimi ? „Eg held að hún hafi breytl „Ég sæi enga ástæðu til að vera að halda úti sin- fóníuhljómsveit fyrir skattfé ef hún héldi svo bara popptónleika eins og allir aðrir. En það er einmitt það sem RUV er að gera. RUV er rekið fýrir skattfé en gerir ekkert öðruvísi en aðrar sjónvarpsstöðvar heldur keppir við Stöð 2, Sýn og Skjá einn um erlent afþreyingar- og íþrótta- efni.“ mjög miklu. Það voru að vísu byrjaðar ákveðnar breytingar í rétta átt hjá Ríkissjónvarpinu á þessum tíma, en tilkoma Stöðvar 2 gjörbreytti frétta- landslaginu, - líka hjá RUV. Ein helsta breytingin fólst kannski í því að fréttastofa Stöðvar 2 afnam þá lotningu fyrir valdinu sem hafði verið ríkjandi á fjölmiðlum fram að þeim tíma. Þetta hafði svo aft- ur áhrif á Ríkissjónvarpið og hraðaði brevtingum hjá þeim. Eg held að fréttastofa Stöðvar 2 hafi spilað ákvcðið lykilhlut- verk í þessari þróun." - Getur fréttamennska verið hlutlaus? „Lykillinn að því að búnar séu til trúverðugar fréttir er að menn geri sér grein fyrir þvi að þær geta aldrei orðið fullkom- lega hlutlausar. Fréttamenn verða alltaf að stefna að hlut- leysi en það er takmark scm þeir munu aldrei ná. Það eru allir haldnir ákveðnum fordóm- um sem þarf að rcyna að gera sér grein fyrir og yfirvinna. Það er sjálf sóknin í að höndla þetta hlutleysi sem aldrei verð- ur fangað sem gerir menn að góðum fréttamönnum." - Á Stöð 2 hafa fréttamenn iðulega getið þess ef stjórnmála- menn neita að mæla í viðtöl. Er það meðvituð stefna? „Með þessu er verið að reyna að kenna stjórnmálamönnum að með því að neita að mæta geta þeir ekki að komið í veg fyrir umfjöllun um viðkomandi máli. Auðvitað geta menn haft réttmætar ástæður fyrir því að koma ekki í viðtal en þá er sjálfsögð krafa að þcir skýri af hverju þeir eigi ekki heim- angegnt. Stjórnmálamenn geta ekki stjórnað umfjöllun í fjöl- miðlun. Stefnan er sú að setja málið á dagskrá án tillits til þess hvort viðkomandi stjórn- málamaður kýs að mæta eða ekki.“ - Hefurðu orðið var við það á ferli þínum sem fréttamaður og fréttastjóri að stjórnmálamenn reyni að hafa áhrif? „Já, óbeint reyna þeir til dæmis að hafa áhrif með þeim hætti að neita að mæta. Þeir halda að fréttin verði ckki til cf þeir láta ekki ná í sig, neiti að tjá sig eða neiti að mæta í um- ræður við pólitíska andstæð- inga. Beinar tilraunir til að hafa áhrif á fréttir held ég að séu liðin tíð. En þegar ég byrj- aði á fréttastofu Ríkissjón- varpsins voru þar enn að vinna menn sem mundu þá tíð að ráðherrar hringdu og sögðust ætla að koma í viðtal um kvöld- ið og tilkynntu að bílstjórinn væri á leiðinni með spurning- arnar. Þessar aðferðir tíðkast ekki lengur. Sjálfur fann ég fyrir þrýstingi þegar ég hóf störf sem þing- fréttamaöur. Þar þótti ég nokk- uð harðsækinn í fréttunum og grimmari en Jiingfréttamenn áttu vanda til. Eg var búinn að vera í starfinu í einhverjar vik- ur þegar þrír þingflokksfor- menn komu að máli við mig og segja að þeim líki ekki alls kostar við fréttamennsku mína, hún sé atgangur og frekja og auk þess sé þar ekki ætíð verið að ræða um það sem þeim þætti mikilvægast. Þeir settu mér þá kosti að annaö hvort myndi ég falla í það far sem tíðkast hafði þarna eða þcir

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.