Dagur - 11.11.2000, Side 15

Dagur - 11.11.2000, Side 15
 LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 2000 - 15 LÍF QG STÍLL i Þessir pokar eru íslensk hönnun og bera vöru- Þe/r SMASH og kosta 3.900,- Þessi rauða taska með slönguskinns- mynstri að framan er úr leðri og kostar 9.400,- í Drangey. í töskunum Tóskur eru fylgifiskar kvenna á öllum aldri. Þar er „andlitið“ og þar eru innkaupalistarnir, hanskarnir, peninga- veskið og nú upp á síðkastið - farsímarnir. Sumt af þessu er skilið eftir heima þegar farið er út á kvöldin og þá duga selskapstöskur undir það brýnasta. Þessar töskur með slönguskinnsmynstrinu fást í mörgum litum i Drangey. Þær eru úr leðri og kosta 8.600,- „Eftir áralangar vinsældir eru nylontöskurnar dálítið að hopa af markaðinum og leðurtöskurn- ar að taka við sér og um leið verður leðurlíkið vandaðra,“ seg- ir María Maríusdóttir verslunar- stjóri í töskuversluninni Drang- ey. Bakpokana sem notaðir eru á báðar axlir segir hún halda vinsældum sínum áfram en töskurnar með hálfa X bandinu að detta út. Eitt eiga flestir sam- eiginlegt sem velja sér töskur að sögn Maríu - allir biðji um hólf fyrir farsíma og skiptir þá engu máli á hvaða aldri þeir eru. Hún segir töskuframleiðendur hafa áttað sig á þessari þörf og því séu farsímahólf í flestum stærri töskum. „Ef svo ólíklega vill til Hér er íris með brúna og hvíta tösku úr plast- efni sem fæst I Vera Moda og kostar að þeir eigi ekki síma þá hentar það vel undir gleraugu.“ segir hún. Djörf taska - sjálfstæð kona Að sögn Maríu eru lakktöskur mikið í tísku í vetur og eins blanda af svörtum og kremuðum litum saman. Reyndar leyfast allir mögulegir litir og brúnt er að koma inn töluvert sterkt aftur. Það er ekki allt kolsvart lengur! „Þar að auki er það skemmtilega sjónarmið uppi núna að taskan beri persónuleikanum vitni þannig að því djarfari tösku sem kona gengur með, því sjálfstæð- ari sé hún. Konan á ekki lengur að velja sér tösku við skó, heldur le)fa hugmyndafluginu að ráða. Maður sér það núna, einkum hjá ungum kon- um, að þær eru Brún leðurtaska krókódíla- Fæst í Drangey og kostar Lakktaska með beis höldum. óstar 5.500 i Drangey. 9.900,- íris tilbúin ídjammið. Taskan er úr gerviefni með hömruðu mynstri. Kostar 1.990,- og fæst í Vera Moda myndir: hilmar þór Ein góð i vinnuna, úr leðurlíki, kostar 5.800- og fæst i Drangey. með doppóttar, rósóttar, bleikar eða Ijósgrænar töskur, alveg óháð því hverju þær klæðast," segir María. Slönguskinn, krókódíla- skinn og strútsskinn, verða mikið f tísku í vetur og enn meira næsta sumar að sögn Maríu. Þar á hún við leður eða gerviefni með hömruðu mynstri eins og í skinni þessara dýra. ______ Leðurlíkistöskurn- ar eru til í mörgum gæða- og verðflokkum, þær dýrustu slaga í ódýrustu leðurtöskurnar. Toskur með litlum höldum Athygli vekur að nýju sam- kvæmistöskurnar eru margar með litlum höldum. „Það er dá- lítið í tísku núna að halda á töskunum, segir María og bætir við: „Islenskar konur eru svolítið fastar í að hafa þær á öxlinni en yngri dömur eru viljugri að breyta til og sjást því oft með töskur í hönd eða á armi.“ Hún bendir á að í stað þess að stinga Rósótt hendinni að utan- með öllu. Þessi er í verðu inn í Drangey, á 6.900. haldið og halda þá hendinni að sér, sem verkar dálítið þving- að, sé betra að stinga henni út í gegn um haldið. „Þá er hægt að halda á koktailglasinu eða hverju sem er í hendinni!" segir hún. GUN. Hér sýnir María hvernig best er að halda á töskunni í koktail- boðunum. Taskan kostar 2.900 og fæst í Drangey.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.