Dagur - 11.11.2000, Page 16
r\r\'\Y?.v r v'
9
f
- LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 2000
Fluguveiðar að vetri (192)
Fluguveiðar týrir unga ísland
Stangveiði er ekki síður góð skemmtun fyrir börn.
Einhvem tímann
íyrr á árinu sat
ég við skriftir til
að undirbúa
þátttöku í jóla-
bókaflóðinu og
reyndi að segja
frá því þegar ég
gerðist veiðimað-
ur, ungur að
árum. Hvernig
Jakob V. Haf-
stein föðurbróðir
minn setti sér það markmið að
koma veiðibakteríunni í mig, og
tókst. Og svo rifjaði ég upp binn
f\Tsta raunverulega flugufisk,
þegar ég af þrjósku minni hélt til
streitu þeim einlæga ásetningi að
verða fluguveiðimaður. Og þá
rifjaðist upp lítið atvik sem varð
loks svo stórt í minningunni að ég
gat fundið súldina í loftinu, sudd-
an sem var af hafi, heyrði brimið
sem sló fjörusteina og hjalið í
ánni - og ég gat horft með barns-
augum undan hettuúlpu á lítinn
silung í skjóli við stein. Og eins
og ég væri að rifja upp fyrra líf gat
ég séð 10 ára fingur mína losa
fluguna af króknum á stönginni
og láta hana detta... í ána fyrir
fiskinn.
Bernskuminning eins og þessi
er dýrmæt.
Bömin í dag
Það er merkilegt hvað krakkar
geta verið spennt fyrir veiðiskap.
Það var alveg sama þótt vestan-
áttin lemdi bakkann á vatninu við
litla veiðikofann minn í sumar,
tveir frændur konu minnar voru
óðir og uppvægir að kasta á móti
rokinu og skiptast á með þessa
einu stöng sem var hægt að lána
þeim. Gat ekki orðið kalt, cnginn
fiskur tók, en alveg tilbúnir að
brasa tímunum saman við þetta.
Litla frænka mín var spurð að
því í vor hvað hún myndi gera
skemmtilegt í sumar. Hún átti í
vændum Danmerkurferð í sjálft
Tivolí, myndi rækta kál í skóla-
görðunum og fara í bíltúra, en
það sem helst var á döfinni hjá
henni var að læra að veiða með
frænda mínum. Svo dró hún
fisk, alveg sjálf. Og sagði mér um
daginn að nú væri hún að safna
fyrir veiðistöng. Önnur lítil
frænka mín man ennþá þegar við
náðum að kasta Zulu með jarða-
berjabragði (af því að endinn er
svo rauður á henni!) fyrir urriða
sem stökk á. Þá var hún sex ára.
Það var ein af skemmtilegri
glímum sem ég hef Ient í: að
styðja við stöngina hennar meðan
hún spólaði inn af gríðarlegri
ákefð.
Og dóttir vinar míns sem er
mikil hestakona hefur staðið eins
og stytta á litlum steini daglangt
og tekið mið á flotholt með lítilli
flugu dinglandi undir vatnsskorp-
unni. Ekkert nema þolinmæðin
uppmáluð.
Veiðisögur af börnum eru stór-
skemmtilegar og ótrúlega margar.
Það sá ég þegar veiðivefurinn
flugur.is hélt myndasamkeppni í
sumar: Þau eru mörg börnin sem
hafa fcngið að draga litlar og fal-
legar hleikjur í sumar, jafnvel laxa
þegar best lætur.
Nálgast jól, kemur sumar
Þar sem jólin nálgast er vert að
vekja athygli á því að nú má vekja
eða viðhalda áhuga á veiði. Um
daginn skrifuðu mér strákar á
vefnum og báðu um leiðbeiningar
um að komast í ódýra veiði. Og
sögðust svo vilja fá hugmyndir að
einföldum flugum til að hnýta.
Þeir gætu gert margt verra við
tímann í vetur en hnýta flugur, og
munu örugglega ekkert gera þarf-
legra næsta sumar en vera úti
undir berum himni og við
hjalandi vatn að senda þær sömu
flugur út fyrir fiska.
Ef eitthvað væri til sem héti
Ijölskyldustefna ríkisis ætti veiði-
skapur að vera þar ofarlega á
blaði. Nú er rétti tíminn til að
huga að því hvort ungviðið vanti
ekki góð veiðitæki fyrir næsta
sumar. Gjafatími fer nefnilega í
hönd. 10 ára krakkar geta auð-
veldlega lært að kasta flugu. Mig
grunar að þau geti verið yngri, 7-
8 ára ætti að vera í lagi með til-
sögn og góðri hjálp. Og ef menn
treysta ekki ungviðinu í fiuguköst
er óhætt að fara út í létta - munið
það - Iétta silungastöng með kast-
hjóli og flotholti, og gott úrval
flugna til að hengja neöan í það.
Ekki það að ég hafi neitt yfir-
gengilega reynslu af því að veiða
með börnum. En besta heilræði
sem ég get gefið um þau mál er
að reyna að gera þau sjálfstæð
sem fyrst. Ef nokkur möguleiki
er á. Sú fjárfesting sem felst f
þolinmæði fyrstu stundirnar, að
kenna þeím að kasta og láta æfa
sig á hjólið, gera þau klár í að
skipta um fiugu - sá tími mun
skila sér margfaldur þegar kornið
er í veiðina. Þá geta fullorðnir og
börn veitt hlið við hlið með lág-
marks áreynslu á þolinmæði
þeirra stóru, á hámarks ánægju
fyrir þau litlu.
Hnýtingar?
Já, hnýtingar. Stálpuð börn og
unglingar hafa unun af því að
hnýta þegar áhuginn er vaknaður.
Nú cru námskeið að bytja og
stofnkostnaður við hnýtingadót
Iítill miðað við það gaman sem
hafa má af.
Veiðin næsta sumar
Og svo er það veiðin næsta sum-
ar. Nú berast pöntunarlistar frá
félögum og veiðréttarsölum sem
setja upp svimandi upphæðir í
gengisföllnum krónum og herja á
verðbólgusýktar huddur heimil-
anna. Hvernig væri að sleppa
einni dýrri ferð næsta sumar og
taka ungviðið frekar með í 3-4
daga í lítið silungsvatn? Dóla fyr-
ir 1500 krónur á dag í afslöppun?
Láta börnin reyna sig við stangir
og tauma, meðan hinn þaul-
reyndi veiðimaður tekur fram
léttustu flugustöng sem hann á,
grennir tauminn niður í hárfínan
þráð, og setur á minnstu þurrflug-
ur sem hann getur hnýtt á - sjón-
arinnar vegna. Og æfir sig að
veiða á nánast ekki neitt. Þar
væru margar fiugur (fyrirgefið
orðaleikinn) slegnar í einu höggi.
Börnin fengju holla og góða úti-
vist og iðju sem er þeim mikil
skemmtun. Sigur yfir tölvuleikj-
unum! Sigur yfir sjónvarpinu og
öllum öðrum útsendurum hin
illa! Samveran við fullorðna vini
myndi hvorugum hópi kynslóða
spilla. Og nálægðin við veiðidísir
og vatnaguði verða báðum til
yndis. Veiðimaðurinn þaulreyndi
fengi að kynnast nýrri hliö á sjálf-
um sér: veiðimanninum sem þarf
ekki að veiða - fyrir tugi þúsunda
á dag, heldur ánægjuna í marg-
földu veldi.
TVÆR FLIKUR
IEINNI_
HETTUR
0G
ÞURR
THERMO varmanærfötin eru i
raun tvær flíkur í einni.
Tveggja laga spunatækni flytur
rakann frá líkamanum og heldur
þér heitum og þurrum.
Notaðu Thermo nærfötin í
næsta feröalag,
þú sérö ekki eftir þvf.
Sportvörugerðin
Heildsala-smásala
Mávahlíd 41, Rvík, simi 562-8383
4 mwti LElT T f FJd/lió i SPfítíQÁ V n Msw V— L'iNPi 4 mw SKOðA WRKÍ
,7.i V’íl, 1 j ItiNI LtCrT I fajfí M'AL
FiAKtt fðÖLOfí
\ 'Tz. H tH&tl Hl 111 ^ \ || 111111 ||i í II ; WwM. fy : : | I | mm *P§i S&lfSæS?® 'MLkw % 'í'. JJfjl MtíM E«V>>ík Risr- ufí
f-f ! þ mmt Mjs$L ivókVA KRAÍfí- ELGuR T SPl L FATÆk- UA QÖfál \
mm KDMKT
J 1 * 1 SVf £/001
hMm 1 1 8i£m UFAHO1 TbMT
1 ■; t SWLL RMfí TfflUJ
OL&U UER5LI K'AT
< 1 HAitsr- Lfín6 'AHÖFu N'im 1 KfíRL- OÝfí
w atrrifl
1 •: í í HÍR l T ítLTf SPtLfíU FERlLL
Riffdi Arfbi ssm
lvaíw« \ 5TF.R7- UÉ HfíHCiS HYSKW/ ~T þRÖtíQ
ToH- VEfiK Kléw tr'e
BYLQS a i® INH- Y fLl HÆfi |
FÁLfð Vtffi/
mr 3 HlsQuR HlétölR fubT- INU
K(?«A ÆLDi
HllWlR ‘ATT HEST ... fiUOllG
FÝKtK- NfíR K ULi- IHQ M fítifií- MAFN
LúM- úRtt V £)N 5 reiÁ ífH 1 1 ■ 'att
TTí7“ HUofíl SRfWO)
Mhriíiö ufí FlTLfí r 2 mifí SVtLL!
£ fykOA frfftlO " -Afi 1 Sthnw ’ ^
y'AfMS
LVKT
SÍó'd
h)L
MtTTÁ
Krossgáta nr. 212
Lausn .................
Nafn ..................
Heimilisfang
Póstnúmer og staður
Helgarkrossgáta 212
í krossgátunni er gerður
greinarmunur á grönnum
og breiðum sérhljóðum.
Lausnarorð sendist til
Dags, (helgarkrossgáta
212) Strandgötu 31 á Ak-
ureyri eða í faxsíma 460
6171, Lausnarorð kross-
gátu 211 er FLAGG-
STÖNG og vinningshafi er
Friðrik Stefánsson sem býr
á Hvanneyrarbraut 2 á
Siglufirði. Hann fær senda
bókina Fanginn og dómar-
inn eftir Asgeir Jakobsson.
Vinningshafinn
fær senda bók-
ina Fanginn og
dómarinn.