Dagur - 11.11.2000, Side 17
Dfigur_
LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 2000 - 17
LJrW 1 LAjJDJjJU j
David Beckham
Bókaútgáfan Hóiar hefur sent
frá sér framhald af Rauðu
djöflunum, bókinni um
Manchester United. í fyrri bók-
inni var greint frá sögu þessa
vinsæla liðs, en að þessu sinni
er sagt frá helstu knattspyrnu-
stjörnunum sem keppt hafa
með því. Dagur birtir hér kafl-
ann um David Beckham.
Fullt nafn: David Robert Joseph Beck-
ham.
Fæddur: 2. maí 1975.
Þjóðerni: Enskur.
Staða: Hægri útherji (hægri miðvallar-
spilari).
Knattspyrnuferill: MANCHESTER
UNIED frá jiílí 1991 (atvinnumaður frá
janúar 1993). Spilaði fimm leiki sem
lánsmaður hiá Preston kevpnistimabilið
1994-95.
Frumraun með aðalliði Manchester
United: Á útivelli gegn Brighton i deildar-
bikarheppninni, þann 23. september
1992, þá enn á reynslusamningi. Urslit: 1-
1.
Sá ekkert nema
Manchester United
Þrátt fyrir að David Beckham sé fæddur
og alinn upp í London voru höfuðborgar-
liðin í ákaflega litlum raetum hjá pilti.
Eitt þeirra, Tottenham, sýndi honum þó
mikinn áhuga, en það dugði ekki til.
Hann sá ekkert nema Manchester United
og sótti á æskuárum sínum alla leiki
rauðu djöflanna í höfuðborginni - var
meira að segja lukkutröll liðsins á einum
þeirra, gegn West Ham á Upton Park.
Hreifst hann einkum af leikmanni númer
7, fyrirliðanum Bryan Robson.
Þegar Beckham var á tólfta aldursári sá
hann sjónvarpsþátt um hinn heimsfræga
knattspyrnuskóla Bohhy Charlton, fyrr-
um stórstjörnu Manchester United. Þar
kom fram að skólinn væri að skipuleggja
knattspyrnunámskeið vítt og breitt um
England, sjötta árið í röð. Beckham
spurði móður sína þegar í stað, hvort
hann mætti innrita sig á námskeiðið í
London og tók hún því vel. Það
var svo móðurafi hans - Totten-
ham-aðdáandi í húð og hár - sem
greiddi þátttökugjaldið fyrir snáð-
ann, eitt hundrað tuttugu og fimm
pund.
Þar með var grunnurinn lagður
að framtíð drengsins, þökk sé af-
anurn. Beckham lét mikið að sér
kveða í knáttspyrnuskólanum og
vann meðal annars til verðlauna
lyrir knatttækni; hlaut þá fiest stig
sem gefin höfðu verið til þessa í
skólanum og fékk hann medalíuna
afhenta á leikdegi á Old Trafford,
á undan viðureign Manchester
United og Tottenham í deilda-
keppninni. Það var toppurinn á
barnæskunni, þó svo að hann hafi
uppskorið hvort tveggja í senn við
þetta tækifæri, klapp og fúkyrði
frá sömu áhorfendunum, þegar
nafn hans og heimilisfang var les-
ið upp í hátalarakerfinu. Ahang-
endur Tottenham héldu nefnilega
að Beckham væri í þeirra hópi
sökum þess að hann byggi í
London og fögnuðu honum ákaft í
fyrstu. Um leið og þulurinn bætti
því kotroskinn við, að sigurvegar-
inn í knatttækninni styddi
Manchester United af heilum
hug, breyttist hins vegar viðmót þeirra í
hans garð, svo ekki verður með orðum
lýst. Hann fékk því snemma að kynnast
ást og hatri stúkugesta.
Fylgdust grannt með drengnum
Bobby Charlton sparaði ekki hrósyrðin
um þennan lærling sinn í knattspyrnu-
skólanum. „Eg hef ekki séð efnilegri
dreng en Beckham," sagði gamla fót-
boltagoðið og bað fory'stumenn rauðu
djöflanna að hafa augun á þessum pilti í
framtíðinni. Þeir vissu að Charlton hafði
lög að mæla og fólu leikmannanjósnara
sínum í London, Malcolm Fidgeon, að
fvlgjast grannt með Beckham í skóla- og
hverfaliðsleikjum á næstu mánuðum.
Hvorki strákurinn, né foreldrar hans,
vissu þó af áhuga félagsins, en þar kom
að Fidgeon kynnti sig fyrir þeim og
greindi frá öllu laumuspilinu. Beckham
og foreldrar hans trúðu vart sínum eigin
eyrum. Hann var aðeins tólf ára, en hafði
samt verið undir smásjá frægasta knatt-
spyrnuliðs á Englandi - án þess að eitt-
hvert þeirra hefði hugmynd um. Þetta
var ótrúlegt en satt og fimm árum seinna,
eða í september 1992, lék hann í fyrsta
skipti með aðalliði Manchester United;
kom þá inn á sem varamaður í jafnteflis-
leik gegn Brighton í deildarbikarkeppn-
inni.
Næsta tækifæris var aftur á móti langt
að bíða. Það leit ekki dagsins ljós fyrr en
í apríl 1995, en þaðan í frá hefur Beck-
ham verið einn af máttarstólpum þessa
sigursælasta knattspyrnuliðs tíunda ára-
tugarins á Englandi, þó aldrei eins og
keppnistímabilið 1998-99, þegar félagið
vann þrennuna svokölluðu; varð Eng-
lands-, bikar- og Evrópumeistari. Hann
fór þá hvað eftir annað á kostum og sýndi
og sannaði að fáir standa honum jafnfæt-
is í knattmeðferð, sendingum og skot-
tækni. Hann er tvímælalaust á stalli með
þeim allra bestu og 1999 hafnaði hann í
öðru sæti í kjöri Alþjóðaknattspyrnusam-
bandsins, FIFA, á Knattspyrnumanni árs-
ins. En þrátt fyrir að margt hafi gengið
Beckham í haginn hefur hann engu að
síður mátt þola mikið mótlæti. Hann
er ómissandi hleklcur í enska landslið-
inu, en brottrekstur hans af velli f leik
Argentínu og Englands í sextán liða
úrslitunum í heimsmeistarakeppninni
í Frakklandi 1998 var að líkindum
dýrkeyptur. Hann fékk að líta rauða
spjaldið í byrjun síðari hálfleiks, eftir
hefnihrot á Diego Simeone, þegar
staðan var 2-2. Argentínumönnum
tókst að vísu ekki að nýta sér Iiðs-
muninn í venjulegum leiktíma og síð-
ar framlengingu, en knúðu fram sigur
í vítaspyrnukeppni og slógu þar með
Englendinga út.
Skammir og slúöurfréttir
Þetta tap hafa ýmsir skrifað alfarið á
reikning Beckham, sérstaklega þeir
sem fylgja mótherjum Manchester
United að málum og láta hinir sömu
jafnan vel í sér heyra þegar hann er
nálægur. Okvæðisorö þeirra bíta þó
lítt á honum. Hann hefur þykkan
skráp og eflist enn frekar við mótlætið
ef eitthvað er. Þessi hegðun áhorf-
enda er engu að síður leiðigjörn til
lengdar.
Þá hafa svæsnar slúðurfréttir í
kjaftablöðum einnig reynst Beckham
hvimleiðar. Hann hefur þó oft og tíð-
um svarað fullum hálsi fyrir sig, en
veit jafnframt að svona nokkuð fylgir
frægðinni - og selur blöðin.
Leikir/mörk fyrir Manchester United:
a) Deildakeppnin: 175/36.
b) Bikarkeppnin: 18/5.
c) Deildarbikarkeppnin: 7/0.
d) Evrópuleikir: 46/7.
Leikir/mörk alls: 246/48.
Viðurkenningar með félaginu: Eng-
landsmeistari 1995-96, 1996-97, 1998-
99 og 1999-2000, bikarmeistari 1996 og
1999, Evrópumeistari 1999 og Besta fé-
lagslið heims 1999.
Athugasemd: David Beckham var einnig
viðloðandi leikmannahópinn hjá
Manchester United þegar félagið vann
Englandsmeistaratitilinn 1992-93 og
1993-94, en spilaði þó engan deildaleik á
þessum árttm.
Persónulegar viðurkenningar: Valinn
Efnilegasti knattspyrnumaðurinn á
Englandi árið 1997 (af Samtökum at-
vinnuknattspyrnumanna). A-landsleik-
ir/mörkfyrir England: 34/1.
Dregur til úrslita
Björn
Þorlaksson
skrifar
Úrslit Islands-
mótsins í tví-
menningi fara
fram í dag og á
morgun í
Bridgehöllinni,
Þönglabakka. 40
pör berjast um
hituna og hefst
spilamennska
kl. 11.00 báða
dagana. Áhorf-
endur eru velkomnir.
Gullstigamót
Landstvímenningur - Samnor-
rænn tvímenningur verður spil-
aður 16. nóv. og 17. nóv. nk.
Þetta er í fjórða sinn sem öll
Norðurlöndin standa saman að
þessari keppni og í þetta sinn
sér Bridgesamband Islands um
framkvæmdina. Utreikningur-
inn fer fram á netinu, þannig að
úrslit ættu að liggja fyrir fljót-
lega eftir að spilamennsku lýkur.
Spilað verður bæði kvöld og
hvert félag getur spilað annað
kvöldið eða bæði. Gefin verða
gullstig og veitt verðlaun fyrir
hæstu skor hvort kvöld. Eftir
spilamennsku fá allir afhenta
bók með spilunum og umsögn
um spilin sem Guðmundur Páll
Arnarson heimsmeistari skrifar.
Dömurnar um næstu helgi
Islandsmót kvenna í tvímenn-
ingi verður haldið í Þönglabakk-
anum um næstu helgi.Skráning
er hafin í s. 587 9360 eða
bridge@bridge.is
Æfingakvöld
Bridgeskólinn og Bridgesam-
band Islands bjóða nýliðum upp
á létta spilamennsku fimm
mánudagskvöld fý'rir áramót í
Bridgehiillinni í Þönglabakka 1.
Spilaður verður tvímenningur
12-6 spil eftir atvikum. Verð
fy'rir manninn er 700 kr. fyrir
hvert spilakvöld og er gjaldið
greitt á staðnum. Ekki er nauð-
synlegt að binda sig öll fimm
kvöldin og er nóg að mæta tím-
anlega og skrá sig á staðnum.
Spilamennska hefst kl. 20.00 og
verður í umsjón Hjálmtýs R.
Baldurssonar. Ekki er nauðsyn-
legt að mæta í pörum og mun
hinum „stöku" útvegaður makk-
er.
Kvöldin fimm eru: mánudagur
13. nóvember, mánudagur 20.
nóvember, mánudagur 27. nóv-
ember, mánudagur 4. desember
og mánudagur 1 1. desember.
Auglýsingarnar unnu
Þriðjudaginn 31. október var
síðasta spilakvöld í þriggja
kvölda Haust Board A Match
sveitakeppni BR. Sveitunum
24 var skipt í þrjá 8 sveita riðla
eftir stöðu í mótinu. Sveit ls-
lensku Auglý'singastofunnar var
með gott forskot ef 2 fyrstu
kvöldin og virtust öruggir sigur-
vegarar en strax í fyrstu umferð-
unum jafnaðist mótið og stefndi
í hörkubaráttu. Sveitin stóðst
þó öll áhlaup og stóð uppi sem
sigurvegari 3 stigum á undan
sveit Guðmundar Baldurssonar
sem tók góðan kipp síðasta
kvöldið og fór í verðlaunasæti úr
B-riðli. Meðalskor var 83 og
efstu sveitir voru:
1. Islenska auglýsingastofan 101
2. Guðmundur Baldursson 98
3. Jóhann Stefánssön 97
Fyrir sveit íslensku auglýs-
ingastofunnar spiluðu: Gunn-
laugur Karlsson, Ásmundur
Örnólfsson, Helgi Bogason,
Guðjón Bragason og Vignir
Hauksson.
Þessir tveir unrtu undankeppni Islandsmótsins. Verða þeir aftur á skotskónum nú
um helgina í úrslitunum?
Pétur og Stefán efstir
Pétur Guðjónsson og Stefán
Ragnarsson eru efstir í Akureyrar-
mótinu í tvímenningi þegar einu
spilakvöldi er ólokið. Nokkur pör
hafa haft forystu í mótinu en tvör
pör eru líklegust til afreka þegar
staðan er skoðuð að loknum 4
kvöldum.
1. Pétur-Stefán 153
2. Grettir Frímannsson
-Hörður Blöndal 131
3. Björn Þorláksson-Reynir
Helgason 100
4. Hilmar Jakobsson
-Ævar Armannsson 94
5. Frímann Stefánsson
-Guðmundur Halldórsson 47
Spilað er bæði á sunnudags-
k\'öldum og þriðjudagskvöldum í
Hamri og hefst spilamennska kl.
19.30. Allir velkomnir.
Bræður unnu í Sandgerði
Anton Haraldsson og Sigur-
björn, bróðir hans, unnu stórmót-
ið í Sandgerði sem fram fór um
síðustu helgi með yfirburðum.
Peningaverðíaun námu alls
I 56.000 kr. auk þess sém fjöldi
aukavinningá var dreginn út.