Dagur - Tíminn - 02.11.1996, Side 3

Dagur - Tíminn - 02.11.1996, Side 3
^Uagur-dlmrám Laugardagur 2. nóvember 1996 -15 Vímuefiii hættulegri en hraðakstur Hraðakstur og um- ferðarslys eru ekki lengur stærsta hættan sem steðjar að ungu fólki. Ekki svo að skilja að nú aki ungt fólk hægar á vegum landsins, heldur er ógnin af vímu- efnum hrein viðbót og miklu meiri en sú sem í umferðinni er,“ segja íris Jónsdóttir og Helga Henrýsdóttir, nemar við Verkmenntaskólnn á Akur- eyri og liðsmenn Jafn- ingj afræðslunnar. Flakkferð að Vestmannsvatni í gær, föstudag, héldu um 50 nemendur í MA og VMA í vímu- lausa skemmtiferð að Vest- mannsvatni í A,ðaldal. Koma á aftur til Akuréyrar síðdegis í dag, laugardag. Flakkferð nefn- ist þetta ferðalag, en svo eru nefnd vímulaus ferðalög sem Jafningjafræðslan efnir til. Jafnframt þessu er svo efnt til vímuefnalausra samkoma af ýmsu tagi. Er reyndar skilyrði fyrir þátttöku í Jafningafræðsl- unni að þátttakendur séu alfar- ið á móti vímuefnum og neyslu þeirra. íris Jónsdóttir segir að liðs- menn Jafningjafræðslunnar hafi sótt námskeið þar sem flallað var um vímuefni og skaðsemi þeirra, þar sem þau voru jafnframt þjálfuð til leið- togastarfa innan hennar. Munu þessir leiðtogar svo fara til fræðslustarfa í skólum víða um landið á næstunni og fjalla þar um vímuefni og þá vá sem þau skapa. Auðvelt að ná í efni „Það er miklu auðveldara að ná í ólögleg vímuefni en fólk held- ur. Sá hópur sem neytir þeirra í mestum mæli er á aldrinum 25 til 40 ára, en það er jafnframt það fólk sem fer hljóðast með neyslu sína á þeim,“ segja fris Jónsdóttir og Helga Henrýsdótt- ir. -sbs. Þær Helga Henrýsdóttir, t.v., og l’ris Jónsdóttir brosmildar á svip. Þær fræða jafningja sína um skaðsemi vímu- efna. Myn±-jhf. Syngjandi bæjarfélag Diddú á söngæfingu með blönduðum kór að syngja Laudate Dominum og Boleras Sevillanas. S Ifimm þúsund manna sveit- arfélagi rétt utan við höfuð- borgina kenndu við Mosfell er mikið sungið. Þar eru einir sjö kórar, þ.e. Álafosskórinn, Barnakór Varmárskóla, Karla- kórinn Stefnir, Kirkjukór Lága- fellssóknar, Mosfellskórinn, Reykjalundarkórinn og Vor- boðarnir, sem er kór aldraðra í Mosfellsbæ. Vetrarstarf kóranna hefst í ár með stórtónleikum sem kór- arnir halda í sameiningu ásamt Skólahljómsveit Mos- fellsbæjar og Sigrúnu Hjálm- týsdóttur, einsöngvara. Tón- leikarnir verða í íþróttahúsi bæjarins í dag klukkan ijögur. Á fjórða hundrað Mosfellingar koma fram og ílytja hin ýmsu verk. „Brennið þið vitar“ verður t.d. sungið af karlakór við undirleik skólahljómsveit- arinnar, sameinaður kvenna- og barnakór syngur „Dagur er risinn" og allir kórarnir syngja saman „Negrasyrpu" við und- irleik hljómsveitarinnar. Slagverksleikari Skólahljómsveitar Mosfellsbæjar æfir steðjaslögin í Steðjakórnum úr óperunni II Trovatore eftir Verdi. Dennis Bergkamp leikmaður hjá Arsenal verður í sviðsljósinu í leiknum á móti Tottenham síðar í mánuðinum. Aðdáendur Arsenal tíl London Enska knattspyrnuliðið Ar- senal á stóran aðdáenda- hóp hér á landi. Til er sérstakur Arsenal-klúbbur sem í eru 400 meðlimir af landinu öllu og fer sá hópur vaxandi. í tilefni þess að kliíbburinn er fjórtán ára um þessar mundir hefur verið ákveðið að efna til hópferðar til London og horfa á goðin spila. Arsenal er nú efst í úrvals- deildinni og í væntanlegri Lund- únaferð munu aðdáendur fylgjast með Arsenal spila gegn erkiíjcndunum í Tottenham. Farið verður utan fimmtudag- inn 21. nóvember og komið verður heim sunnudaginn 24. nóvember, en leikurinn fer fram á sunnudeginum. High- bury, heimavöllur Arsenal, verður skoðaður og einnig verður hægt að komast á leik Chelsea og Newcastle í London á laugardeginum. Einn skuld- laus meðlimur fékk frímiða í ferðina og var sá ljónheppni Sigurður Örn Sigurðsson frá Reyðarfirði. í forsvari fyrir Arsenal- klúbbinn eru þeir Kjartan Björnsson (482-2499) og Sævar Helgason (461-3103) og hafa þeir allar upplýsingar á reiðum höndum, bæði um klúbbinn og Lundúnaferðina.

x

Dagur - Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.