Dagur - Tíminn - 02.11.1996, Side 6

Dagur - Tíminn - 02.11.1996, Side 6
18 - Laugardagur 2. nóvember 1996 Ikgur-®mróm Rúmlega fimmtungur unglinga eru alltaf eða oftast syfjaðir í skólanum. Sísyfjuðum unglingum iíkar verr í skólanum og námsárangur þeirra er slakari en ósyfjaðra jafnaldra. Myndin er sviðsett. Mynd: GS Syíj aðir unglingar Hver man ekki eftir því hve gott var að sofa fram eftir öllu á unglingsaldrinum? í rannsókn á 500 íslenskum unglingum svaraði rúmur fimmtungur þeirra að þeir vœru alltafeða oftast syfjaðir í skólanum. Tœpur helmingur er stundum syfjaður en aðrir merktu við sjaldan eða aldrei. Lang algengasta orsökin er sú að unglingamir sofa ekki nóg. 15-16 ára ung- menni þurfa síst minni svefn en börn í barnaskóla, eða um 9-10 tíma. Þau sofa hinsvegar yfir- leitt ekki svo lengi heldur fara seint að sofa en þurfa síðan að vakna í skóla eða vinnu,“ segir Bryndís Benediktsdóttir, læknir á Heilsugæslustöðinni í Garða- bæ, en hún er ein þeirra sem unnu að rannsókninni. Auk hennar unnu Þórarinn Gfsla- son, lungnalæknir á Vífilstöðum og Aldís Yngvadóttir, deildar- stjóri hjá Menntamálaráðuneyt- inu, að rannsókninni. Rannsóknin var hluti af samaburðarrannsókn sem gerð var til að kanna lífsviðhorf, fé- lagslegar aðstæður og neyslu vímuefna hjá ungingum. Spurningalistar voru lagðir fyr- ir 500 unglinga í átta skólum, þar af fjórum í dreifbýli og fjór- um í þéttbýli. Rannsóknin var tvískipt; fyrst voru krakkarnir spurðir þegar þeir voru 12-13 ára og aftur þegar þeir voru 15-16 ára, þremur árum seinna. I seinna skiptið var spurt um það sama og áður en auk þess voru spurningar um Finniir þú fyrir syflu í skólanum? Alltaf 6,5% Oftast 16% Stundum 48,4% Sjaldan 25,7% AJdrei 3,4% Stúlkur (26,9%) kvörtuðu oftar um að vera sísyfj- aðar ý=alltaf eða oftast) en piltar (18,5%). syfju og svefn og um námsefnið „Að ná tökum á tilverunni“. Sá hluti rannsóknarinnar sem við- kemur vímuefnaneyslu hefur þegar verið birtur í Læknablað- inu en niðurstöður úr spurning- um um syfju og tengsl milli dagsyfju og vímuefna hafa ekki birst áður. Tengsl milli vímuefna og syfju? í þeim tilfellum sem ónógur svefn getur ekki skýrt dagsyfju segir Bryndís hugsanlegt að or- sökin sé sjúkdómar sem valdi syfju. Þeir séu þó alhr mjög sjaldgæfir. „Önnur algengasta skýringin á sísyfju unglinga er sennilega vímuefnaneysla, ekki síst hassið. Ef syfja er vanda- mál hjá unglingi sem sefur nóg þarf að hafa í huga hvort hann sé í einhverri neyslu," segir hún. Eins og fram kemur í meðfylgjandi ramma er hlutfall sísyfjaðra mun hærra meðal þeirra unglinga sem neyta vímuefna. Hæst er hlutfallið hjá þeim sem neytt hafa ólöglegra vímuefna, en í rannsókninni kom í ljós að þeir sem neyta Orsakir dagsyfju • Of stuttur nætursvefn er algengasta orsök dagsyfju ung- linga. Unglingar þurfa álíka langan svefntíma og börn í barnaskóla en sofa oftast mun styttra. Þeir þurfa þar að auki góðan nætursvefn í tvær nætur til að ná sér eftir vöku þar sem fullorðnir þurfa einungis að sofa vel eina nótt. • Vímuefnaneysla getur leitt til dagsyfju. • Sjúkdómar sem allir eru sjaldgæfir, t.d. kæfisvefn, drómasýki, sjúkdómar í miðtaugakerfi, Klein-Levin syndr- ome ofl. Bryndís Benediktsdóttir Oánægðir og gengur verr Sísyfja dregur úr athygli og ein- beitingu og einnig félagslegri virkni. Enda sýnir rannsóknin að þeir sem eru sísyfjaðir líkar yfirleitt verr í skólanum og námsárangur þeirra er slakari. En hvað ráðleggur Bryndís foreldrum að taka til bragðs ef þeir verða varir við að ungl- ingurinn á heimilinu gangi um eins og svefngengill heilu og hálfu dagana? „Fyrst á að athuga hvort barnið sofi nógu mikið. Mikil- vægt er að fólk átti sig á að þeir þurfi 9-10 tíma svefn. Mörgum finnst að unglingum ætti að nægja 7-8 tíma svefn eins og Samband vímuefnaneyslu og sísyfju í skóla: • Af þeim sem reykja eru 37,0% sísyfjaðir í skóla en 19,2% þeirra sem ekki reykja. • Af þeim sem hafa fundið á sér fjórum sinnum eða oftar eru 34,9% sísyíjaðir í skóla en 13,2% hinna. • Námsárangur þeirra sem reykja, drekka eða neyta ólöglegra vímuefna er mun lakari en þeirra sem ekki neyta vímuefna. Ályktun Þeir unglingar sem eru sísyfjaðir í skóla eru líklegri að neyta vímuefna. Þeim líkar verr í skóla og sýna lélegri námsárangur. ólöglegu efnanna reykja yfirleitt og drekka líka. Af þeim 500 unglingum sem svöruðu seinni spurningalistan- um sögðust 18,6% reykja dag- lega, 44,4% höfðu fundið á sér fjórum sinnum eða oftar og 5% höfðu sögu um endurtekna ólöglega vímuefnanotkun. fullorðnum. Ef svefninn er næg- ur ætti næst að hafa vímuefnin í huga. Ég veit dæmi þess að dagleg hassreyking í heilt ár getur viðgengst án þess að for- eldrar hafi hugmynd um það.“ AI

x

Dagur - Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.