Dagur - Tíminn - 02.11.1996, Síða 6
18 - Laugardagur 2. nóvember 1996 Ikgur-®mróm
Rúmlega fimmtungur
unglinga eru alltaf eða
oftast syfjaðir í skólanum.
Sísyfjuðum unglingum iíkar
verr í skólanum og
námsárangur þeirra er
slakari en ósyfjaðra
jafnaldra.
Myndin er sviðsett.
Mynd: GS
Syíj aðir unglingar
Hver man ekki eftir því hve gott var að
sofa fram eftir öllu á unglingsaldrinum? í
rannsókn á 500 íslenskum unglingum
svaraði rúmur fimmtungur þeirra að þeir
vœru alltafeða oftast syfjaðir í skólanum.
Tœpur helmingur er stundum syfjaður en
aðrir merktu við sjaldan eða aldrei.
Lang algengasta orsökin er
sú að unglingamir sofa
ekki nóg. 15-16 ára ung-
menni þurfa síst minni svefn en
börn í barnaskóla, eða um 9-10
tíma. Þau sofa hinsvegar yfir-
leitt ekki svo lengi heldur fara
seint að sofa en þurfa síðan að
vakna í skóla eða vinnu,“ segir
Bryndís Benediktsdóttir, læknir
á Heilsugæslustöðinni í Garða-
bæ, en hún er ein þeirra sem
unnu að rannsókninni. Auk
hennar unnu Þórarinn Gfsla-
son, lungnalæknir á Vífilstöðum
og Aldís Yngvadóttir, deildar-
stjóri hjá Menntamálaráðuneyt-
inu, að rannsókninni.
Rannsóknin var hluti af
samaburðarrannsókn sem gerð
var til að kanna lífsviðhorf, fé-
lagslegar aðstæður og neyslu
vímuefna hjá ungingum.
Spurningalistar voru lagðir fyr-
ir 500 unglinga í átta skólum,
þar af fjórum í dreifbýli og fjór-
um í þéttbýli. Rannsóknin var
tvískipt; fyrst voru krakkarnir
spurðir þegar þeir voru 12-13
ára og aftur þegar þeir voru
15-16 ára, þremur árum
seinna. I seinna skiptið var
spurt um það sama og áður en
auk þess voru spurningar um
Finniir þú
fyrir syflu í
skólanum?
Alltaf 6,5%
Oftast 16%
Stundum 48,4%
Sjaldan 25,7%
AJdrei 3,4%
Stúlkur (26,9%) kvörtuðu
oftar um að vera sísyfj-
aðar ý=alltaf eða oftast)
en piltar (18,5%).
syfju og svefn og um námsefnið
„Að ná tökum á tilverunni“. Sá
hluti rannsóknarinnar sem við-
kemur vímuefnaneyslu hefur
þegar verið birtur í Læknablað-
inu en niðurstöður úr spurning-
um um syfju og tengsl milli
dagsyfju og vímuefna hafa ekki
birst áður.
Tengsl milli vímuefna
og syfju?
í þeim tilfellum sem ónógur
svefn getur ekki skýrt dagsyfju
segir Bryndís hugsanlegt að or-
sökin sé sjúkdómar sem valdi
syfju. Þeir séu þó alhr mjög
sjaldgæfir. „Önnur algengasta
skýringin á sísyfju unglinga er
sennilega vímuefnaneysla, ekki
síst hassið. Ef syfja er vanda-
mál hjá unglingi sem sefur nóg
þarf að hafa í huga hvort hann
sé í einhverri neyslu," segir
hún.
Eins og fram kemur í
meðfylgjandi ramma er hlutfall
sísyfjaðra mun hærra meðal
þeirra unglinga sem neyta
vímuefna. Hæst er hlutfallið hjá
þeim sem neytt hafa ólöglegra
vímuefna, en í rannsókninni
kom í ljós að þeir sem neyta
Orsakir dagsyfju
• Of stuttur nætursvefn er algengasta orsök dagsyfju ung-
linga. Unglingar þurfa álíka langan svefntíma og börn í
barnaskóla en sofa oftast mun styttra. Þeir þurfa þar að
auki góðan nætursvefn í tvær nætur til að ná sér eftir
vöku þar sem fullorðnir þurfa einungis að sofa vel eina
nótt.
• Vímuefnaneysla getur leitt til dagsyfju.
• Sjúkdómar sem allir eru sjaldgæfir, t.d. kæfisvefn,
drómasýki, sjúkdómar í miðtaugakerfi, Klein-Levin syndr-
ome ofl.
Bryndís Benediktsdóttir
Oánægðir
og gengur verr
Sísyfja dregur úr athygli og ein-
beitingu og einnig félagslegri
virkni. Enda sýnir rannsóknin
að þeir sem eru sísyfjaðir líkar
yfirleitt verr í skólanum og
námsárangur þeirra er slakari.
En hvað ráðleggur Bryndís
foreldrum að taka til bragðs ef
þeir verða varir við að ungl-
ingurinn á heimilinu gangi um
eins og svefngengill heilu og
hálfu dagana?
„Fyrst á að athuga hvort
barnið sofi nógu mikið. Mikil-
vægt er að fólk átti sig á að þeir
þurfi 9-10 tíma svefn. Mörgum
finnst að unglingum ætti að
nægja 7-8 tíma svefn eins og
Samband vímuefnaneyslu
og sísyfju í skóla:
• Af þeim sem reykja eru 37,0% sísyfjaðir í skóla en
19,2% þeirra sem ekki reykja.
• Af þeim sem hafa fundið á sér fjórum sinnum eða oftar
eru 34,9% sísyíjaðir í skóla en 13,2% hinna.
• Námsárangur þeirra sem reykja, drekka eða neyta
ólöglegra vímuefna er mun lakari en þeirra sem ekki
neyta vímuefna.
Ályktun
Þeir unglingar sem eru sísyfjaðir í skóla eru líklegri að
neyta vímuefna. Þeim líkar verr í skóla og sýna lélegri
námsárangur.
ólöglegu efnanna reykja yfirleitt
og drekka líka.
Af þeim 500 unglingum sem
svöruðu seinni spurningalistan-
um sögðust 18,6% reykja dag-
lega, 44,4% höfðu fundið á sér
fjórum sinnum eða oftar og 5%
höfðu sögu um endurtekna
ólöglega vímuefnanotkun.
fullorðnum. Ef svefninn er næg-
ur ætti næst að hafa vímuefnin í
huga. Ég veit dæmi þess að
dagleg hassreyking í heilt ár
getur viðgengst án þess að for-
eldrar hafi hugmynd um það.“
AI