Dagur - Tíminn - 02.11.1996, Blaðsíða 7

Dagur - Tíminn - 02.11.1996, Blaðsíða 7
^Dagur-'ðSttttmt Laugardagur 2. nóvember 1996 -19 Verð stöðugt heilli og sælli Sigurborg Kristín Hannesdóttir. Mynd: AÞ Hún heitir Sigurborg Kristín Hann- esdóttir, er ferðamálafræðingur að mennt og hefur m.a. starfað sem hótelstjóri og kennari. Um þessar mundir starfar hún að samnorrænu umhverfis- verkefni á vegum Egilsstaðabæjar þar sem hún er búsett. Á kvöldin kennir hún jóga á milli þess sem hún æfir söng eða er að brölta eitthvað með leikfélaginu. Lesendum Dags-Tímans er hún þó fyrst og fremst kunn, sem konan, sem hvetur til breyttra Kfshátta í vikulegum pistlum undir yfirskriftinni „Heil og sæl“. í greinum sínum miðlar hún Sigurborg af eigin reynslu. Hvað varð til þess að hún fór inn á þessa braut? Skrifað frá hjartanu „Þetta byrjaði fyrir þremur árum, eftir að ég hafði verið á fyrsta jóganámskeiðinu í Bandaríkjunum. Þegar ég kom heim fékk ég ekki frið fyrir þeirri hugmynd um að fara að skrifa einshvers konar heilsu- greinar. Ég ákvað að gera eitthvað í mál- inu og bauð vikublaðinu Austra að skrifa í það heilsupistla regulega. Það varð úr og greinaflokkurinn „Bætt heilsa, betra líf‘ varð síðan til. Síðan hefur þetta undið upp á sig og nú skrifa ég vikulega pistla í tvö blöð. Mér hefur alltaf þótt gaman að skrifa og það er eins og hugmyndirnar dúkki upp. Yfirleitt tek ég eitthvað fyrir sem mér Uggur á hjarta, eða stendur mér nærri hverju sinni og oftar en ekki verða þessar greinar til að hjálpa mér sjálfri við að halda mér við efnið.“ Sigurborg segir áhuga sinn á breyttu mataræði upphaflega hafa komið til vegna stöðugrar baráttu með stórum staf, því í því stríði hafi hún aldrei gefist upp þó að vigtin hafi ýmist farið upp eða nið- ur. „Það má kannski segja að ég hafi fyrst náð að snúa vörn í sókn fyrir fimm árum. Þá breytti ég algjörlega um mataræði og hagaði því eftir kerfi samtak- anna OA sem vinna á svipuð- um grunni og AA. Þar er regl- an að lifa aðeins fyrir einn dag í einu, borða þrjár máltíðir á dag og forðast aUan mat sem inniheldur hvítt hveiti, sykur, fitur og salt. Ég var á þessum árum hótelstjóri á Hótel Valaskjálf og það var skemmtilegt og lærdómsríkt starf sem gaf mér mikið. Það vantaði samt alltaf eitthvað, ég fann fyrir stresSi og var oft óörugg með mig. Þegar ég svo hætti sem hótelstjóri ákvað Það má kannski segja að ég hafi fyrst náð að snúa vörn í sókn fyrir fimm árum. Þá breytti ég algjörlega um matarœði og hagaði því eftir kerfi samtakanna OA sem vinna á svipuðum grunni ogAA ég að gera eitthvað rót- tækt og koma jafnvægi á líf mitt. Þá má segja að ég hafi fyrst fyrir alvöru byrjað á að byggja mig upp, bæði andlega og lík- amlega. Um þetta leyti fór ég á jógakennara- námskeið í Bandarikjun- um. Það gjörbreytti öllu. Síðan hefur líf mitt verið að breytast hægt og síg- andi. Á tímabiU tók ég þennan nýja lífsstíl minn voðalega hátíðlega, en síðan slakaði ég á og fann jafnvægi í því líka. Það er aðallega matar- æðið sem ég þarf að passa, ef ég gleymi mér aðeins bæti ég strax á mig kílóum. Þar hef ég ekki enn fundið jafnvæg- ispunktinn." Ódýr lausn fyrir heilbrigðiskerfið Sigurborg hefur kennt jóga í fjögur ár. Finnst henni í raun að þessi fræði, upprunnin austiu- í Asíu, eigi eitthvert erindi hingað norður á „Klakann" ? „Já, það finnst mér. Jógað sem ég kenni, þ.e. Kripalujóga, er á margan hátt mjög aðlagað vestrænum hugsanagangi og bara ef ég lít til íslensku þjóðarinnar þá held ég að stór hluti hennar vildi svo gjarnan meira jafnvægi í líf sitt. Margir eru Ula komnir af stressi og lífsgæðakapp- hlaupið sem meira og minna snýst um forgengilega hluti fer illa með okkur.“ Og Sigurborg á ódýrt og gott ráð að gefa þjóðinni í stríðinu við stressið. „Rétt öndun er besta ráðið til að rjúfa þann vítahring sem verður til í stressi. Við erum oft með hugann á fullu, bimdinn við ýmis vandamál og áhyggjur. Á meðan spennist líkami okkar upp með tilheyr- andi fylgikvillum. Ég sé þessi einkenni oft þegar fólk er að byrja hjá mér í jóga. Ég þekki þau því ég var svona sjálf fyrir ekk- ert voðalega löngu síðan. Við kunnum ekki að slaka á. Ástæðan er sú að það er svo óskaplega mikil hugarstarfsemi í gangi. Það vantar tengslin milli hugar og líkama. Rétt öndun byggir þessa brú. Um leið og við förum að anda niður í magann, finnum við fyrir líkama okkar og þá erum við komin inn í augnablikið. Þetta er í raun algjör forsenda þess að okkur líði vel. Ég er sannfærð um að það sem væri áhrifaríkast í heilbrigðiskerfinu sem fyrir- byggjandi aðgerð, væri að kenna fólki að Margir eru illa komnir af stressi og lífsgœðakapp- hlaupið sem meira og minna snýst um forgengilega hluti fer illa með okkur. anda rétt. Þegar streitan hleðst upp hefur líkaminn svo miklu minna mótstöðuafl gagnvart sjúkdómum. Rétt öndun gefur okkur líka aukinn kraft og eykur orku- flæði í líkamanum." Á vit lífsorkunnar Sigurborg hefur ekki látið sér nægja að kenna og iðka jóga niður á láglendinu. Tvisvar sinnum hefur hún farið með hóp fólks í heilsuferðir inn á Vatnajökul, undir yfirskriftinni „Á vit lífsorkunnar“. „Ég fékk þessa hugmynd að efna til heilsuferðar eftir að hafa verið í Jjalla- ferð, þar sem setið var í snjóbíl heilu og hálfu dagana. Mataræðið í ferðinni hent- aði mér illa og mér leið ekki alltaf vel, þrátt fyrir yndislega ferð og skemmtilega ferðafélaga. Eftir að ég var komin heim fór ég að hugleiða hvort ekki væri mögu- legt að efna til heilsuferða inn á öræfi, þar sem lögð væri áhersla á létt mataræði og líkamshreyfingu. Á næsta vori var hug- myndin fullmótuð og fyrsta ferðin á vit lífsorkunnar varð að veruleika. Farkost- urinn var snjóbíllinn Tanni undir tryggri stjórn Sveins Sigurbjarnarsonar. í þessum ferðum gengum við á skíðum, stunduðum hugleiðslu, iðkuðum jóga og unnum með hópefli. Ég minnist sérstaklega kvölds í skálanum á Geldingafelli. Það var yndis- legt veður, stjörnubjart og við héldum þar grænmetisgrillveislu. Þar voru ekki vímu- gjafar af neinu tagi, samt var eins og við værum öll ölvuð, við skemmtum okkur af lífi og sál og hópurinn var eins og einn maður. Ég hef stundum sagt að ég hafi ekki í annan tíma farið öllu hærra á ham- ingjuskalanum. í þessum ferðum lærði ég hvernig náttúran vinnur með okkur og gefur okkur orku.“ Margir sækja kraft til ijallanna og eiga sér jafnvel sérstakt uppáhalds ijall. Hjá Sigurborgu er Snæfellið efst á blaði en hún hefur síðasthðin tvö sumur verið skálavörður í vikutíma í skála Ferðafélags Fljótsdalshéraðs við rætur Snæfells. „Fjölhn gefa frá sér orku og hlaða okk- ur upp. Ég finn alltaf mun á mér eftir að ég hef verið inni við SnæfeU. Það er mitt uppáhalds fjall og togar stöðugt í mig. í samskiptum við fjaUið hef ég líka unnið einn minn stærsta persónulega sigur. Það var í sumar. Ég gekk ein á ijallið og lenti í þoku. Ég hélt þó ró minni, mat aðstæður rétt og komst aftur í skála án þess að lenda í teljandi vandræðum. Annan per- sónulegan sigur vann ég þegar ég fór í viku gönguferð suður Lónsöræfi. Ég var svo grunnhyggin að taka með mér ávexti og lagði upp með þyngsta pokann. í lok fyrsta dags komst ég í skála á síðustu eldsneytisdropunum, en svo gekk þetta betur og betur með hverjum deginum sem leið þó að ferðafélagar mínir gerðu grín að mér fyrir að kunna ekki að stökkva yfir læk.“ Sigurborg hefur einnig lagt umhverfis- málum lið og er áhugamaður um um- Ég minnist sérstaklega kvölds í skálanum á Geld- ingafelli. Það var yndislegt veður, stjörnubjart og við héldum þar grœnmetisgrill- veislu. Þar voru ekki vímu- gjafar af neinu tagi, samt var eins og við vœrum öll ölvuð hverfisvernd. Er þessi áhugi til kominn í kjölfar breyttra lífshátta? „Já, þetta er samtengt. Þegar við för- um að rækta okkur sjálf, fer okkur að skipta meira hvað er í kringum okkur, bæði tengsl okkar við annað fólk og við umhverfið. Þessi umhyggja sem maður fer að bera fyrir sjálfum sér birtist í því að maður fer líka að bera meiri umhyggju fyrir móður Jörð og sýna umhverfinu meiri virðingu." Viðtal: Arndís Porvaldsdóttir.

x

Dagur - Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.