Dagur - Tíminn - 02.11.1996, Qupperneq 18

Dagur - Tíminn - 02.11.1996, Qupperneq 18
30 - Laugardagur 2. nóvember 1996 JUigur-'ðltmmn S K A K Fyrir nokkrum misserum voru miklar væntingar um að hin unga ungverska skákdrottning, Judit Polgar, myndi í nálægri framtíð velta heimsmeistara karla úr sessi. Þær vonir og væntingar hafa kulnað töluvert í ljósi frammi- stöðu hennar á þessu ári. Nýlega lauk stórmóti í Til- burg í Hollandi. Mót af slíkri stærðargráðu eru ekki ný af nálinni þar á bæ, en á síðasta ári var ekkert slíkt mót haldið vegna peningaleysis. Úr því var bætt í ár og nýir styrktaraðilar voru fengnir. Að sjálfsögðu voru margir stórlaxar með í mótinu og ber þar fyrstan að nefna Anatoly Karpov. Frammistaða hans stóð ekki undir væntingum, en það sem er þó athyglisverðara er hve Judit Polgar gekk brösug- lega. Þetta kemur þó ekki á óvart, ef mið er tekið af frammistöðu hennar á síðustu mánuðum. Fyrsta alþjóðlega mótið sem hún tók þátt í á þessu ári var mótið í Dos Hermanas á Spáni. Það mót er talið eitt hið sterk- asta sem haldið hefur verið í skáksögunni. Þar lenti hún í neðsta sæti eins og í Tilbm-g. í kjölfar þeirrar keppni tók hún þátt í nokkrum mótum síðast- liðið sumar. Árangur hennar á þeim var æði misjafn, en sára- sjaldan var hún í toppbaráttu þeirra. Ekki tók mikið betra við, er hún leiddi ungversku skák- sveitina á Ólympíumótinu í Yerevan nú á dögunum. Tafl- mennska hennar var skrykkjótt og var árangur hennar slakur. Hún tapaði alltof mörgum skák- um og það jafnvel fyrir töluvert Systkinin Helgi Áss og Guðfríður Lilja Grétarsbörn skrifa um skák stigalægri skákmönnum. Hrak- farir hennar á skákborðinu virtust í Tilburg frekar færast í aukana en hitt. Þar tapaði hún sumum skákum sínum baráttu- laust og tailmennska hennar bar merki þreytu og leiða. Það væri ósanngjarnt og heimskulegt að halda því fram Judit Polgar í öldudal Judit Polgar. að möguleikar Juditar Polgar til að ná heimsmeistaratign karla væru óraunhæfir. Hins vegar er ljóst að hún á langt í land með að ná því marki. Enn sem stendur eru veikleikar hennar sem skákmanns of margir til að hún geti sigrað besta skákmann heims í einvígi. Sérstaklega er hún veik fyrir í stöðum sem krefjast stöðufegs skilnings og það virðist sem endataflstækni hennar sé ekki nógu góð. T.d. tapaði hún fyrir Ka- sparov á þessu ári í Dos Hermanas í fræðilegri jafnteflisstöðu þar sem hún hafði hrók, en hann hrók og riddara. Úrslit mótsins í Til- burg urðu annars þessi: 1-2. B. Gelfand og J. Piket 7 v. af 11 mögulegum 3. A. Sirov 614 v. 4.-5. Van Wely og P. Leko 6 v. 6.-7. A. Karpov og M. Adams 514 v. 8. E. Sutovskíj 5 v. 9.-11. Z. Almasi, P. Svidler og J. Lautier 414 v. 12. J. Polgar 4 v. Af öðrum keppendum má segja að Sírov hafl teflt manna skemmtilegast. Skákir hans voru ijörugar og skemmtilegar. Jafnframt var hann sá sem fæst jafntefli gerði. í gegnum árin hefur Judit Polgar haft tak á Sírov. í hverri skákinni á fætur annarri hefur hann þurft að Uggja kylliflatur fyrir ungversku skákdrottningunni. í Tilburg snerist dæmið hins vegar við, eins og við fáum að sjá í eftir- farandi skák. Hvítt: Sírov Svart: J. Polgar Sikileyjarvörn 1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 a6 6. Be2 e6 7. 0-0 Be7 8. f4 0-0 9. Be3 Dc7 10. g4 He8 11. f5 Bf8 12. g5 Rfd7 13. Rxe6!! (Með þessari ridd- arafórn nýtir hvítur sér þá stað- reynd að svartur hefur ekki lok- ið liðskipan sinni á drottningar- væng og hve illa menn svarts verja kónginn sinn). fxe6 14. Bh5 g6 (Illskásti kosturinn. 14...He7 og 14...Hd8 hefði í báðum tilvikum verið vel svar- að með 15. fxe6). 15. fxg6 He7 16. Rd5! (Önnur stórglæsileg riddarafórn. Með henni tekst hvítum að opna a2-g8 skáhn- una og koma drottningu sinni í sóknina). exd5 17. Dxd5+ Kh8 18. gxh7 Hxh7 19. Bg6 Bg7 (19...Dc6 gengur ekki upp vegna framhaldsins: 20. Hxf8! Rxf8 21. Bd4+ Hg7 22. Df7 og hvítur mátar). 20. Bxh7 Dd8 21. Bf5 Re5 22. Ddl! (Loka- hnykkurinn í sókn hvíts. Drottningin verður virk á nýjan leik og þvingar fram hagstæð uppskipti. Úrslitin eru því ráð- in). Bxf5 23. exf5 De8 24. g6 Rg4 25. Bd4 De4 26. f6 Rc6 27. fxg7+ Kg8 28. Hf8+ Hxf8 29. gxf8D+ Kxf8 30. Dfl+ og svart- ur gaf, 1-0. B R I D G E Björn Þorláksson skrifar Glæsilegur árangur Grísku guðirnir reyndust ekki hliðhollir landsliðinu í bridge í útsláttarkeppn- inni gegn Indónesíu. „Þeir voru Upp&að í SjatCamim sunnudaginn 3. nóvember kl. 21.00. Verkin sýnd í Mánasal Sjallans í dag kl. 16-18 og morgun kl. 14-18. cnnz B Ú O ■ Hólabraut 13 -Akureyri S BOBGr Antufue-GaHery Sauðfjársiátrun verður 6. nóvember. Tilkynna ber fjölda sláturfjár í síðasta lagi þriðju- daginn 5. nóvember í síma 463 0443. Sláturhús KEA. hreinlega betri,“ segir Jón Baldursson en samt er ljóst að ef lukkudísirnar hefðu haft smá viðkomu, hefði landsliðið okkar allt eins getað siglt alla leið í gullið. En eigi skal gráta Björn bónda heldur fagna næst besta árangri sem ísland hefur náð á alþjóðavettvangi í bridge. Glæsilegt afrek var unnið og landsliðsfyrirliðinn er greini- fega á réttri leið. Guðmundarmótið á Hvammstanga Laugardaginn 9. nóvember kl. 10.00 árdegis verður haldið Guðmundarmót Bridgefélags Vestur-Húnvetninga, Hvamms- tanga. Ráðgert er að 36 pör spih barómeter (2x35 spil). Þátttöku- gjald er kr. 3.000 á mann og er Björn Eysteinsson virðist á hár- réttri braut með landsliðið í bridge. Mynd BÞ miðdagsverður innifalinn. Tekið er við skráningu fram tU kl. 13.00 miðvikudaginn 6. nóvem- ber. Þátttaka tUkynnist í síma 451-2370, 451-2480, 451-2738, 451-2819 og 451-2374. Keppnisstjóri verður Ólafur Jónsson frá Sighifirði. Ljósbrá og Anna Þóra með frábæran lokasprett Ljósbrá Baldursdóttir og Anna Þóra Jónsdóttir urðu Islands- meistarar í tvímenningi um síð- ustu helgi. Fyrri keppnisdaginn gekk ekkert upp en allt small saman í síðari hluta mótsins og enduðu stöllurnar með 129 stig. Erla Sigurjónsdóttir og Dröfn Guðmundsdóttir urðu í öðru sæti með 123 stig og einu stigi minni skoruðu Stefanía Skarp- héðinsdóttir-Gunnlaug Einars- dóttiur. Staða næstu para: 4. Esther Jakobsdóttir- Valgerður Kristjónsdóttir 118 5. Bryndsís Þorsteinsdóttir- Guðrún Jóhannesdóttir 102 6. Guðrún Óskarsdóttir- Ólöf Þorsteinsdóttir 64 7. Inga Lára Guðmundsdóttir- Unnur Sveinsdóttir 35 8. Soffía Guðmundsdóttir- Stefanía Sigurbjörnsdóttir Um helgina verður haldið ís- landsmót heldri og yngri spil- ara. Núverandi íslandsmeistar- ar heldri spilara eru Stefán Guðjohnsen og Guðmundur Pét- ursson en meistarar yngri spil- ara eru Ljósbrá Baldursdóttir og Stefán Jóhannsson. Þrautin Suður/allir é A965 ú ♦ ÁDT8652 * ÁG Sagnir: Suður Vestur Norður Austur ltígull pass 7tíglar allir pass Útspil: Laufkóngur Hver er besta leiðin til að bregðast ekki væntingum mak- kers sem segir í fyrsta skipti á ævinni alslemmuna í einum sagnhring? Létt er það ekki? Alslemman vinnst ef spaðinn brotnar 3-2. Þú tekur trompin og kastar síð- an tveimur spöðum í hjarta. Þá eru tveir efstu teknir í spaða og spaði trompaður. Ef liturinn brotnar 3-2 kastar sagnhafi laufgosanum í ijórða spaðann og samningurinn er í höfn.

x

Dagur - Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.