Dagur - Tíminn - 23.11.1996, Page 1

Dagur - Tíminn - 23.11.1996, Page 1
Góða helgi! Laugardagur 23. nóvember 1996 - 79. og 80. árgangur - 225. tölublað VELKOMINN HEIM! Hollywoodglansinn er lítill í samanburði við sjarma vinalegra anda á Tjörninni í Reykjavík. Valdi- mar Flygenring hefur í það minnsta komist að þeirri niðurstöðu að heima sé best, hefur yfirgeilð Ameríku sem honum þykir heldur lítið til koma, og er sestur aftur að á íslandi. Sjá bls. 19 Leikhúslið landsins hefur fengið liðsauka úr óvœntri átt. Magnús Scheving, þolfimimeistar- inn sprœki, leikur ofvirkan íþróttaálf sem koll- varpar lífsháttum íbúa Latabœjar í barnaleik- ritinu Áfram Latibœr. Heilnœmum boðskap um lífsgleði og holla lífshœtti er pakkað inn í líf- legan leik og söng svo jafnvel 2ja ára púkar œttu að dragast inn í atburðarásina og með- taka heilræðin. Enda œttu þau að kannast við sig í Loftkastalanum blessuð börnin því um- gjörðin minnir œði mikið á teiknimyndir að hœtti Disneys. Sjábls.16 MAÐUK yiKUNNAR / Dagur-Tíminn óskar eftir fjölskyldu! Ætl- unin er að gera merkilega samfélagslega tilraun á einni eða fleiri íslenskum fjöl- skyldum. Óskað er eftir sjálfboðaliðum sem fallast á að neita sér um að horfa á sjónvarp í eina viku! Er hægt að lifa af án sjónvarps? Hvað gerist þegar íjölskyldan getur ekki drepið tímann við kassann? Við óskum eftir raunveru- legum íslenskum íjölskyldum til að taka þátt í þessari tilraun, halda dagbók og gefa skýrslu til okkar hinna um það hvernig er að lifa án sjónvarps. Verðlaun í boði! Við óskum eftir þátttöku heimila þar sem um er að ræða 3-4 einstaklinga. T.d. hjón með eitt barn á aldrinum 6-16 ára eða einstætt foreldri með 2-3 börn á þessum aldri. Við veitum verð- laun fyrir þátttökuna, en umfram allt verður þetta fróðleg tilraun! Hugsið málið, verið með. Verður þín fjölskylda sjónvarpslaus í eina viku? Fylgist með Degi-Tímanum á þriðjudag og í morgunútvarpi Bylgjunnar hjá Margréti og Þorgeiri.

x

Dagur - Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.