Dagur - Tíminn - 23.11.1996, Blaðsíða 2
!
14- Laugardagur 23. nóvember 1996 4Ditgur-®mrám
Helgin er tími fjölskyldunnar. Loksins gefst
foreldrum tími til að gera eitthvað
skemmtilegt með börnunum. En hvað á að
gera? Dagur-Tíminn fer nú af stað með
sérstakan dálk í helgarblaði þar sem tínt
verður til eitt og annað sniðugt og
skemmtilegt fyrir smáfólkið. Góða skemmt-
un!
Eins og í fleiri góðum barnaleikritum er
markmið Rúa og Stúa að börnin gangi
röskari út að sýningu lokinni, albúin að
takast á við Fallna spýtu í stað þess að
lyppast niður fyrir framan imbann. Leikrit-
ið er um ringulreiðina sem skapast þegar
vélin, sem gerði allt fyrir bæjarbúa, bilar
og er sýnt á laugardag og sunnudag í
Höfðaborginni í höfuðborginni. Álíka
heilsusamlegt leikrit eftir Magnús Scheving
verður frumsýnt í Loftkastalanum á laug-
ardaginn. Ekki má gleyma sýningu Leik-
brúðulands, Hvað er á seyði?, sem er
fjallað sérstaklega um hér á síðunni.
Sígilt
Ef til er það barn sem á eftir að sjá Karde-
mommubæinn þá er bara að skreppa í
Þjóðleikhúsið á sunnudaginn. Og fyrir
börnin norðan heiða eru Dýrin í Hálsaskógi
sýnd í Samkomuhúsinu á Akureyri um
helgina.
Förðunarskóli á Akureyri
Hulda Grímsdóttir lætur hugmynda-
flugið ráða ferðinni
í fantasíuförðun.
Módel er Gyða Björk Aradóttir.
vikna námskeið og kalli sig förð-
unarfræðinga en aðrir hafi
kannski lært í 9 mánuði og hafi
sama heiti. „Þannig að nafnið eitt
og sér segir fítið,“ bætir hún við.
í Förðunarskóla Akureyrar
eru eingöngu konur og eru þær á
öllum aldri. „Ég tek helst ekki
yngri en 18 ára en það má segja
að þær séu frá þeim aldri og upp
úr. Sú elsta sem hefur talað við
mig í sambandi við skólann er á
fimmtugsaldri en í Reykjavík veit
ég af einni á sjötugsaldri. Þar er
líka karlmaður að læra, þannig
að það er aldrei að vita hvað ger-
ist.“ AI
Anna Toher, gestakennari og skóla-
stjóri Förðunarskóla íslands, var
með sýnikennslu í fantasíuförðun.
Módelið, Anna Sigrún Sigurðardóttir,
er jafnframt nemandi við Förðunar-
skólann á Akureyri.
I haust tók til starfa
förðunarskóli á
Akureyri og er hann
sá fyrsti sinnar teg-
undar í bænum.
Skólinn er í sam-
starfi við Förðunar-
skóla íslands í
Reykjavík og býður
upp á samskonar
námsskrá.
Sú sem kom skólanum á fót er Nanna
G. Yngvadóttir sem rekið hefur Snyrti-
stofu Nönnu í 13 ár. Hún seldi snyrtistof-
una í vor ogt ákvað í framhaldi af þeirri
sölu að fara af stað með förðunarskóla.
Og viðbrögðin létu ekki á sér standa. „Ég
auglýsti einu sinni í Degi í júlí og hef
ekki þurft að auglýsa meira,“ segir
Nanna.
Námið byggir upp á
tveimur sex vikna nám-
skeiðum. Fyrstu sex vik-
urnar eru grunnnám þar
sem farið er yfir ýmis
konar förðun s.s. nátt-
úrulega förðun, milda
förðun, ljóðmyndaförðun,
tískusýningaförðun og
leiðréttingaförðun. Seinni
vikurnar sex er farið yfir
sögu förðunar frá 1920
en Nanna segir nauðsyn-
legt að kynna sér söguna
þar sem förðun endur-
taki sig sífellt. „Síðan för-
um við gegnum öðruvísi
förðun eins og t.d. förðun
fyrir eldri konur, fanta-
síuförðun og fleira."
Starfsheitið segir
lítið
Förðun er ekld löggild
iðngrein hérlendis og því
veitir námið engin starfs-
réttindi. „Förðunarfræð-
ingar á íslandi hafa mjög
ólíkan bakgrunn," segir
Nanna og nefnir sem
dæmi að sumir þeirra
hafi farið erlendis á 2-3
Trúðaskólinn
Ef orðaleikir og trúðslæti heilla púkana
þína er Trúðaskólinn í Borgarleikhúsinu
rétta leikritið. Það verður sýnt á laugardag
og sunnudag.
Skautar
Nú, ef ormarnir eru búnir að fá sig full-
sadda af þessari menningarneyslu, eða
pyngja foreldranna hætt að taka í svona
rétt undir mánaðamótin, væri ekki úr vegi
að dúða liðið í jöklagallana og storma út á
nærliggjandi ísilagða tjörn, reima á sig
skautana (gerir maður það kannski ekki
iengur?) og bruna af stað.
Hugsjónastarf
Hellist yfir ykkur kærleikur í garð grasrót-
ar- og hugsjónafóiks væri ekki úr vegi að
fara í bíltúr með fjölskylduna upp í Lækjar-
botna við Rauðavatn, þar sem Waldorf
skólinn Ylur heldur basar á laugardaginn
kl.14-18.
Jólastemmnmg
Barnafólk á Akureyri og nágrenni, sem
ekki treystir sér í sunnudagsbíltúr alla leið
að Rauða vatni, getur tekið smáfólkið með
í Jólalandið margfræga í Eyjafirði. Opið
alla daga fram á kvöld. Ágæt leið til að
komast í jólastemmningu fyrir laufa-
brauðsgerð og smákökubakstur.
Undraheimar
Leikbrúðulands
Um síðustu helgi frumsýndi Leik-
brúðuland Hvað er á seyði? að Frí-
kirkjuvegi 11 í Reykjavík, undir leik-
stjórn hins danska brúðumeistara Ole
Bruun-Rasmussen. Sem oft áður hefur
verið Ieitað í smiðju íslenskra þjóðsagna
til að skapa undraheima Leikbrúðu-
lands. Sýnt er og sagt frá óhreinu börn-
unum hennar Evu, sem Guð breytti í
huldufólk af því að hann fékk ekki að sjá
þau, Kolrössu Krókríðandi og risanum
forkostulega með hausana þrjá og síðast
en ekki síst er göldruð upp úr sögupott-
inum hugljúf saga um lítinn arnarunga á
Qallstindi og lítinn dreng við rætur
fjallsins. Sýningin er um það bil klukku-
stundar löng og um handrit, brúður og
leiktjöld sjá Erna Guðmarsdóttir, Bryn-
dís Gunnarsdóttir og Helga Steffensen.
Fjöldi annarra listamanna kemur við
sögu þessarrar sýningar, en Leikbrúðu-
land á nú að baki næstum því þriggja
áratuga langan og farsælan feril. Lítill
samfylgdarmaður blaðamanns, sein
hafði aldrei
áður í leikhús
komið, sat
stjarfur af
hrifningu á
frumsýning-
unni og eldri
börn og full-
orðnir virtust
ekki skemmta
sér síður.
Sýningar á
Hvað er á
seyði? verða
kl. 15 að Frí-
kirkjuvegi 11
næstu tvo
sunnudaga og
hefjast síðan
fljótlega aftur
eftir áramót.
Miðaverð er kr.
500.
H.H.S.
Óhreinu börnin hennar Evu, sem urðu að huldufólki, koma við sögu í nýrri
sýningu Leikbrúðulands, enda er þar oft leitað í smiðju íslenskra þjóð-
sagna.