Dagur - Tíminn - 23.11.1996, Blaðsíða 14
26 - Laugardagur 23. nóvember 1996
|Dagur-®TOtimi
'lvlatarkrókur
Uppskriftirnar sem Sigrún Heba Ómarsdóttir býður okkur upp
á koma úr ýmsum áttum. „Ég œtlaði fyrst að hafa þrjá kín-
verska rétti en þeir taka svo mikinn tíma þannig að ég lét
mér einn tiltölulega fljótlegan nœgja, “ segir hún. Sigrún er
nemi í snyrtifrœði við Fjölbrautaskólann íBreiðholti auk þess
sem hún vinnur að því að klára stúdentspróf við MK. Hún er í
sambúð og á einn son, hinn fimm ára gamla Sigurð Örn. Sig-
rún skorar á mágkonu sína, Ýr Gunnlaugsdóttur, í nœsta
Matarkrók.
Fjölkrydduð nautasteik
m/spergilkáli
230 g nautakjöt
1 hvítlauksgeiri (marinn)
Z tsk. engilferrót (söxuð)
'á tsk. kryddblanda, 5 teg-
undir (Five Spice Powder)
2 msk. jarðhnetuolía
100 g spergilkál
1 búnt af graslauk (2-3
lengjur)
’A tsk. salt
1 msk. dökk sojasósa
l'/ dl heitt vatn
2 msk. komsterkja (hrœrt í
örlitlu af köldu vatni)
Skerið kjötið í þunnar sneiðar
og síðan í mjóar ræmur. Bland-
ið hvítlauknum, engiferinu og
kryddblöndunni við kjötið.
Hitið pönnu (wok) og setjið
helminginn af jarðhnetuolíunni
á hana og steikið sperglkálið í
ca. 8 mínútur. Takið síðan kálið
af og hellið restinni af olíunni á
pönnuna. Setjið kjötið svo á og
steikið í ca. 3 mínútur. Hellið
spergilkálinu, sojasósunni, salt-
inu og vatninu á kjötið og hitið
að suðu. Hellið kornsterkjunni
útí og hrærið stöðugt í meðan
sósan þykknar. Dreifið svo gras-
lauknum yfir. Berið fram með
hrísgrjónum.
Undirbúningur: 15 mínútur
Matreiðsla: 15 mínútur
Daim ostakaka
Botn:
1 pakki Haust hafrakex
150 g smjörlíki eða smjör
Krem:
250 g rjómaostur
100 g flórsykur
1 egg
1 peli rjómi
2 stór Diam súkkulaði (mulin)
Botninn er búinn til með því
að mylja kexið, bræða smjörið
og hræra vel saman. Setjið síð-
an í form og þrýstið vel niður í
botninn. Geymið í kæli meðan
kremið er gert.
Hrærið flórsykri og eggi sam-
an. Setjið næst ostinn og mulda
Diam súkkulaðið útí og hrærið.
Stífþeytið rjómann og blandið
honum saman við. Hellið krem-
inu á botninn.
Kælið í ískkáp í minnst 6-8
tíma. Má skreyta með jarðar-
berjum og kiwi.
Marengsterta Hildar
Efri botn:
3 eggjarauður
1 egg
80gsykur
2 msk. hveiti
1 tsk. lyftiduft
Neðri botn:
3 eggjahvítur
180 g púðursykur
heslihnetur (hakkaðar)
rifið suðusúkkulaði
Krem:
100 g suðusúkkulaði
2 eggjarauður
100 g Jlórsykur
75 g smjör
Annað:
1 peli rjómi
Búið efri botninn til fyrst. Þeytið
eggið, eggjarauðurnar og strá-
sykurinn vel saman. Setjið svo
hveitið og lyftiduftið útí og
hrærið létt. Bakið neðarlega í
ofni við 150° C í 10-12 mínútur.
Neðri botninn er næstur.
Þeytið eggjahvíturnar og púður-
sykurinn vel saman eða þar til
Sigrún Heba Ómarsdóttir.
deigið er orðið vel stíft. Setjið
svo í kökuform með bökunar-
pappír undir og stráið hnetun-
um og súkkulaðinu ofan á. Bak-
ið neðst í ofni við 100° C í ca. 2
klukkutíma.
Kremið er búið til með því að
bræða súkkulaðið yfir gufubaði,
þeyta eggjarauður, flórsykur og
smjörið saman og setja svo
brædda súkkulaðið útí og
hræra. Smyrjið neðri botninn
með kreminu. Setjið svo þeytt-
an rjóma á milli botnanna
(þeytið ca. 1 pela).
nif)
'/( lel
eimilis-
homið
Eplakaka frá Sviss
Botn:
200 g hveiti
100 g smjör/smjörlíki
50gsykur
1 egg
Fylling:
600 g epli
1 msk. sítrónusafi
2 egg
3 msk. sykur
3 msk. hunang
’/ tsk. kanill
Z tsk. kardimommur
125 g muldar hnetur
2 eggjarauður
2 msk. rjómi
Smjörið mulið saman með
sykrinum og hveitinu. Egginu
bætt í og hnoðað saman. Geymt
á köldum stað í 30 mín. Deigið
flatt út, sett í kringlótt form (ca.
22-24 sm). Eplin skræld, kjarn-
ar íjarlægðir. Helmingur epl-
anna raspaður gróft. Hinn
helmingurinn skorinn í stóra
báta, sítrónusafi settur yfir.
Egg, hunang, sykur, kanill og
kardimommur þeytt vel saman,
rifnum eplunum bætt út í ásamt
muldum hnetunum og þetta
sett á deigbotninn. Þar ofan á
er raðað eplabátunum. Eggja-
rauðurnar hrærðar með rjóm-
anum og það látið jafnt yfir epl-
in í forminu. Kakan er svo bök-
uð við 200° í ca. 40 mín.
Gerhorn
Ca. 16 stk.
50 g ger
2 / dl mjólk
ÍOO g smjör
2 egg
1 msk. sykur
Ca. 500 g hveiti
Egg til að pensla með
Sesam- eða birkifrœjum
stráð ofaná
Mjólkin og smjörið hitað
saman, haft ylvolgt. Gerið sett
út í, svo eggin, sykurinn og ca.
helmingur hveitisins. Hrært í
jafnt deig. Deigið tekið upp á
borð og hnoðað í höndunum á
mjöli stráðu borði. Deigið látið
hefast í ca. 1 klst. Hnoðað aftur
og skipt í 2 hluta, flatt út í 2
kringlóttar kökur, sem svo eru
skornar í 8 þríhyrninga hver.
Þeir eru svo vafðir upp frá
breiðari endanum. Settir á bök-
unarpappírsklædda plötu, með
samskeytin niður. Látið hefast í
30 mín. Hornin smurð með
samanhrærðu eggi, fræi stráð
yfir og bakað við 225° í ca. 15
mín.
BAKAÐ MEÐ BÖRNUNUM
Skúffukaka
m/ kókosmjöli
250 g mjúkt Ljómasmjörlíki
250gsykur
4 egg
Rifið hýði af 1 appelsínu
250 g hveiti
100 g kókosmjöl
1 tsk. lyftiduft
1 dl appelsínusafi
50 g rúsínur
50 g saxað súkkulaði
Yfirkökuna:
150 g fiórsykur
2-3 msk. appelsínusafi
Kókosmjöli stráð yfir
Takið allt til sem á að fara í
kökuna. Vigtið allt nákvæmlega.
Smyrjið skúffuna (ca. 25-30 sm)
með bræddu smjöri. Saxið
súkkulaðið, blandið 1 msk. af
hveiti saman við súkkulaðið og
rúsínurnar. Hrærið smjörlíkið
og sykurinn lengi og vel saman.
Eggjunum hrært út í einu í senn
og hrært vel á milli. Appelsínu-
raspinu, hveitinu, kókosmjöl-
inu, lyftiduftinu og appelsínu-
safanum hrært saman við hrær-
una. Blandið rúsínunum og
súkkulaðinu saman við. Deigið
sett í formið og kakan bökuð
við 175° í ca. 45 mín. Prufið
með prjóni hvort kakan sé bök-
uð. Ef ekkert deig loðir við
prjóninn, er hún bökuð. Ef eitt-
hvað loðir við prjóninn, þarf
kakan að vera um stund lengur
í ofninum. Takið kökuna út,
munið að nota pottaleppa svo
þið brennið ykkur ekki. Þegar
kakan er orðin köld, er smurt
yfir hana glassúr af flórsykrin-
um sem hefur verið hrærður vel
saman með appelsínusafa. Svo
er kókosmjöli stráð yfir.
Úr þessu deigi má líka baka
„muffins" eða múffur eins og
sumir kalla kökurnar. Þá er ca.
1 matskeið af deigi sett í bréf-
form, flórsykurbráð borin á
þegar kökurnar eru kaldar.
Leyfið börnunum að vera
með að baka góða köku, þegar
þau koma heim úr skólanum.
GÓÐUR FORRÉTTUR
Rœkjukokkteill
Fyrir 4
300 g rœkjur
Z salathöfuð
150 g majones
1 dl rjómi
1-2 msk. tómatpure
Salt og pipar
1 msk. sérrí
Þeytið rjómann, blandið
majonesi saman við hann,
ásamt tómatpure, salti, pipar
og sérrí. Setjið salatblað í
ávaxtaskál á fæti (4 skálar),
skerið salatið í mjóar ræmur.
Rækjurnar settar yfir og hellið
sósunni þar yfir. Stráið smáveg-
is dilli yfir og sítrónusneið eða
sítrónubát. Ristað brauð borið
með.
IfL
úsæld
heimsins svahlind...
Næst þegar þú finnur fyrir
að tárin eru að koma,
reyndu þá alls ekki að
stöðva þau. Gráturinn er
eins mikilvægur og hlátur-
inn. Gráturinn léttir okkur
að „slappa af‘, lækkar blóð-
þrýstinginn og léttir á
stressi. Prófessor George
Guthery við Háskólann í
Oklahoma heldur því jafn-
framt fram, að við eigum
helst ekki að gráta í ein-
rúmi. Það sé allra best að fá
að gráta á „öxlinni“ á góð-
um vini.
óð ráð
1. Það er mikill sparnaður í
því að smyrja aldrei með
köldu smjöri beint úr
kæliskápnum. Maður not-
ar miklu meira smjör ef
það er kalt.
2. Gott er að nota kartöflu-
skrælið til að skera
skorpu utan af osti. Þá fer
sáralítið til spillis af ostin-
um.
3. Það er gaman að búa til
smáhluti til að festa á
kæliskápinn eða nota t.d.
fallega litla steina sem við
fundum í sumar. Svo
kaupum við segulstál í
föndurbúð og límum á
það.