Dagur - Tíminn - 23.11.1996, Síða 6

Dagur - Tíminn - 23.11.1996, Síða 6
18 - Laugardagur 23. nóvember 1996 Hctgur-'3Smtrm Kaupmaðurinn í kúlunni Kaupmönnunum á horninu fer óðum fækkandi. í Vestmannaeyjum gafst sá næst síðasti upp í haust. Nú er aðeins einn slíkur eftir og reyndar er hann tiltölu- lega nýbyrjaður. Miklu nær væri að kalla hann kaupmanninn í kúlunni því matvöru- verslun hans er í eina kúluhúsinu í Vestmannaeyjum. Eina kúluhúsið í Vestmannaeyjum er jafnframt matvöruverslun. Hann heitir Sigmar Ge- orgsson, Eyjamaður í húð og hár, sem hefur verið í tæp 30 ár í kaup- mennsku. Hann segir að kaup- mennirnir á horninu í landinu eigi á brattan að sækja því stór- markaðirnir eigi auðveldara aðgengi, í krafti stærðar sinnar, í vörur á hagstæðara verði. Sig- mar er Davíð Eyjamanna sem berst við Goh'at á matvöru- markaðinum í Eyjum og hefur komið ár sinni vel fyrir borð á aðeins þremur árum síðan hann opnaði sína eigin verslun, Vöruval. Sigmar Georgsson er fæddur kaupmaður að flestra mati. Þjónustulipurðin uppmáluð, tekur innkaupapokana fyrir kerlingarnar og skokkar með þá út í bíl og fær blíðlegt bros á móti, og framtíðarkúnna. Kenn- arinn hans í gagnfræðaskóla ráðlagi Sigmari að gerast versl- unarmaður eftir framúrskar- andi árangur í bókfærslu. Sig- mar réði sig til Kaupfélags Vestmannaeyja 1967. Skömmu síðar var þessi 17 ára piltur gerður að verslunarstjóra stærstu matvöruverslunar Vest- mannaeyja, „alveg óvænt“ eins og hann kemst sjálfur að orði. Margt hefur breyst í versl- unarrekstri á 30 árum. Sigmar er til vitnis um það. Úrvalið meira, nánast óendanlegt. Ótrúlegur uppgangur Tíu árum síðar vann hann í aukavinnu í byggingavinnu og var að sprengja fyrir grunni á nýrri matvöruverslun, Tangan- um. Sigmar var keyptur yfir á Tanganum sem opnaði svo í stórglæsilegu verslunarhúsnæði sem KÁ leigir í dag. En það blundaði í Sigmari að fara í sjálfstæðan atvinnurekstur og hann keypti kúluhúsið í Eyjum, ásamt eiginkonu sinni, Eddu Angantýsdóttur, og opnaði mat- vöruverslunina Vöruval á 200 fermetrum í maí 1993. „Ég var fyrst með tvær stelp- ur í vinnu hjá mér. f dag eru 12 manns á launaskrá hjá mér þannig að uppgangurinn hefur verið ævintýralegur svo ekki sé meira sagt. Árangurinn hefur verið góður miðað við hversu' lítil búðin er. Vonlaust er að stækka hana enda stóð það ekki til því ég átti ekki von á þessum undirtektum. Ætli ég sé ekki með um þrjátíu prósent af mat- vörumarkaðinum í Eyjum í dag. Síðustu tvö árin hafa skilað ágætis afkomu," segir Sigmar. Samkeppnisaðili hans í Eyjum er Kaupfélag Árnesinga sem rekur tvær stórar matvöru- verslanir. Samkeppnin á matvöru- markaðinum fer sífellt harðn- andi. Stórmörkuðum og versl- unarkeðjum hefur farið fjölg- andi á kostnað kaupmannsins á horninu. En kaupmaðurinn í kúlunni í Eyjum lætur ekki deigan síga. Þegar helsti keppi- nauturinn í Eyjum fór að hafa opið á sunnudögum, varð Sig- mar að sigla í kjölfarið og opna einnig á sunnudögum því hann var farinn að missa kúnna. „Sunnudagar voru heilagir hjá mér, ég ætlaði mér ekki að vinna heldur slaka á heima. En núna mæti óg um hálf átta á morgnana og er heppinn að sleppa heim um hálf níu á kvöldin. Svona er þetta alla daga vikunnar. Mikið er fyrir þessu haft og oft er ég lúinn. Auðvitað held ég að ég sé ómissandi en eílaust yrði ég „Sunnudagarvoru heilagir hjá mér, ég ætlaði mér ekki að vinna heldur slaka á heima. En núna mæti ég um hálf átta á morgnana og er heppinn að sleppa heim um hálf níu á kvöldin.“ hissa hvað allt myndi ganga vel ef ég færi í burtu í einhvern tíma. En svona er þetta að standa í eigin verslunarekstri," segir Sigmar. í verðkönnunum hefur Vöru- val hans Sigmars komið mjög vel út og verið sambærilegt við keppinautana og aðra kaup- menn á landsbyggðinni. Sigmar segir að litlu kaupmennirnir eigi undir högg að sækja enda hafi þeir ekki sama bolmagn og stórmarkaðir til að kaupa inn í miklu inagni og fá góðan af- slátt. Eini mótleikur Sigmars er að hafa álagninguna í algjöru lágmarki. Ilann hlær að því, segist hafa fengið mann úr stór- markaði í Reykjavík í heimsókn fyrir skömmu og sýnt honum álagningu í búðinni. Stórmark- aðsmaðurinn hristi bara haus- inn og sagði að þetta gæti aldrei gengið. En það gerir það nú samt, með dugnaði og eljusemi eigandans. Kaupmaðurinn á horninu á undir högg að sækja Styrkur kaupmannsins í kúl- unni og á horninu felst í per- sónulegri þjónustu. Sigmar seg- ist getað útvegað viðskiptavin- um sínum nánast allt sem þeir óska eftir með skömmum fyrir- vara. Ilins vegar hefur hann lít- ið lagerpláss og getur því ekki keypt mikið magn í einu. „Ég er í sambandi við aðra smákaupmenn á landinu. Róð- urinn er þungur á sumum bæj- um en betiá á öðrum. Það virð- ist fara eftir staðsetningu búð- anna, hún hefur allt að segja. Þessar verslunarkeðjur sem hafa sprottið upp eins og gor- kúlur, hafa sett sig í samband við mig til þess að athuga hvort ég hafi áhuga á að vera með í keðjunni. Ég hef afþakkað það hingað til. Það eru kostir og gallar sem fylgja því. Aðal ástæðan er kannski sú að ég er með svo lítið lagerpláss," segir Sigmar. Og þótt hann sé kominn heim upp úr hálf níu á kvöldin er ekki þar með sagt að hann geti sest upp í sófa og slakað á. Nei, þá bíður hans pappírs- vinna og bókhald fram eftir kvöldi. Þetta fylgir því að vera sjálfstæður kaupmaður með enga yíirbyggingu. Vinna og aftur vinna. ÞoGuÆyjum Hjónin Sigmar Georgsson og Edda Angantýsdóttir í kúlubúðinni sinni.

x

Dagur - Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.