Dagur - Tíminn - 23.11.1996, Side 7

Dagur - Tíminn - 23.11.1996, Side 7
Jkgur-®mröm Laugardagur 23. nóvember 1996 -19 Mynd: Hilmar Þór. Valdimar Örn Flygenring, leikari, er kom- inn heim. Eftir hálfs árs dvöl í Hollywood sannfærðist hann um að sá heimur ætti ekki við sig, og enn síður fjölskyldu sína. Hann segist vera reynslunni ríkari og sáttur við að hafa prófað, því nú veit hann að hann er ekki að missa af neinu. etta er ofsalega grimmt þjóðfélag þarna úti. Þegar við lögðum þetta á vogar- skálar, annars vegar að ala börnin okkar upp í svona þjóð- félagi og hins vegar það sem í boði var í kvikmyndaheiminum, var valið í rauninni mjög auð- velt. Ansi margir þarna eru til- búnir til að gera hvað sem er, hvenær sem er, hvernig sem er og fyrir hvern sem er. Ég er ekki tilbúinn að leggja sjálfan mig á borðið án nokkurra spurninga og þegar valið stendur á milli þessa og barnanna þá er guhót- in, sem á að vera agnið, aðeins farin að skorpna. Ætli ég sé ekki kominn á það stig í lífinu að börnin mín skipta mig meira máli en yíirborðskenndur stundarframi." Valdimar og Ásdís Sigurðar- dóttir, eiginkona hans, fluttu ásamt þremur börnum sínum til Los Angeles í Bandaríkjunum í sumar. Þau höfðu dottið í lukkupottinn og unnið svokallað „grænt kort“ í happdrætti sem gaf þeim mögu- leika á að fara til Bandaríkj- anna og stunda þar atvinnu. Draumurinn um að reyna fyrir sér í Hollywood hafði lengi blundað í Valdimari og fjöl- skyldan ákvað að láta slag standa og flytja vestur um haf. Ekkert þeirra heillaðist hins vegar af útlandinu og var Valdi- mar h'tið hrifinn af þeirri yfir- borðsmennsku sem honum fannst þarna ríkjandi. En hvað með kvikmyndirnar, gekk hon- um eitthvað að koma sér á framfæri? Heitur í helvíti „Það gekk í rauninni ágætlega," svarar Valdimar. „Ég var hepp- inn að því leyti að ég kynntist mörgum sem voru mér hjálp- legir. Ég komst t.d. inn í leik- arafélagið, sem yfirleitt er mik- ið mál, og lék eitthvert smá- hlutverk í sjónvarpsþætti. Red Shues Diary heitir hann og er reyndar sýndur hér heima. Ljósblár þáttur en ég var nú samt í fötunum allan tímann," segir hann hlæjandi. Annað hlutverk stóð Valdi- mari einnig til boða sem honum leist ekki á og lái það honum hver sem vill. „Handritið var eftir mann sem heitir Zhalman King en hann skrifaði m.a. 9'A viku. Heldur hefur honum nú hrakað síðan þá, blessuðum karlinum. Hann er með fyrir- tæki innst í San Fernandodaln- um og þangað keyrði ég til að hitta hann. Hitinn var 42-3°C og ég var í bíl með engri loft- kælingu og varð alltaf heit- ara og heitara. Ég fór síðan inn í eitthvert hús og hitti manninn. Hann bauð mér strax hlutverk og vildi endilega fá mig til að lesa textann sem ég og gerði. Efnið var heldur í heitara kantinum og mér leið eiginlega eins og ég hefði keyrt til helvítis, hitt þar fyrir sjálfan djöfulinn og lesið upp fyrir hann eitthvað mjög heitt. Þetta var ekki beint það sem ég hafði hugsað mér,“ riQ- ar Valdimar upp og brosir að minningunni. Ekki gert ráð fyrir börnum Þó nokkur tækifæri hafi rekið á fjörur hans gerði Valdimar sér grein fyrh að hann gæti þurft að bíða í a.m.k. 2-5 ár eftir stóra tækifærinu. Kannski kæmi það aldrei, og jafnvel þó það kæmi gæti það þróast á annan veg en hann óskaði. Glansinn var óðum að hverfa af Hollywood. Og ekki hjálpaði til að á þessum slóðum fær ijöiskyldufólk Utla fyrh- greiðslu. Sjúkratryggingar eru t.d. óheyrilega dýrar og sömu sögu er að segja af leikskóla- gjöldum. „Þó fólk þurfi að borga eitthvað fyrh heilbrigðisþjón- ustu og aðra þjónustu hér á ís- Ég hef aldrei skynjað eins sterkt áður hve peningar eru mikið eitur. Það er hægt að sjá á fólki ef það er mjög eitrað. Það er búið að selja sál sína fyrir peninga. landi er það bara dropi í hafið miðað við það sem þarna þurfti að borga fyrir sömu þjónustu," segir hann. „Þjóðfélagið er þannig að börn eiga að vera voðalega sæt í fínum fötum. Ef heyrist í þeim vita Kanarnir síðan ekkert hvað á að gera við þau. Þar sem við bjuggum máttu krakkarnh ekki leika sér við sundlaugina því þau voru með hávaða og vöktu einhverja sem voru á nætur- vakt. Það var út af fyrh sig skilj- anlegt. En þegar þau máttu ekki heldur leika sér inni í íbúðinni vegna þess að gólfin voru svo þunn að húsverðinum, sem bjó fyrir neðan, fannst það ómögu- legt, var mér nóg boðið." Valdimar vill ekki vera með alhæfingar um alla bandarísku þjóðina en það fólk sem hann kynntist í Los Angeles var hon- um ekki mikið að skapi. „Hann er dálítið merkhegur þessi leik- ur þeirra að peningum. Þeir láta allt líta út fyrir að vera miklu meira en það er. Ef ég á að segja eins og er held ég að ameríski draumurinn sé eitt- hvert stórkostlegasta sölutrikk í heimi. Ég hef aldrei skynjað eins sterkt áður hve peningar eru mikið eitur. Það er hægt að sjá á fólki ef það er mjög eitrað. Það er búið að selja sál sína fyr- h peninga." Annað sem fór fyrir brjóstið á Valdimari var að honum fannst fólk á þessum slóðum leggja lít- ið upp úr því að segja satt og rétt frá. „Ég hef nú hingað til reynt að spegla mig í minni samvisku en þetta fólk er algjör- lega samviskulaust. Lýgur upp í opið geðið á manni ef því sýnist svo. Þetta er eitthvað sem ég get ekki aðlagað mig að. Ég vil miklu frekar grilla murtu við Þingvallavatn en að standa í þessu bulli. Ég er alvarlega að íhuga að ganga til liðs við Al- þýðubandalagið efth að hafa séð hvað kapítalisminn, í sinni sterkustu mynd, er hroðalegur.“ Samt sem áður sáttur Þrátt fyrir vonbrigði með landið sem auglýsir sig sem Land tæki- færanna er Valdimar langt frá því að vera bitur eða vonsvik- inn. „Ég er ofsalega sáttur og glaður að hafa farið út og próf- að þetta, og við erum það reyndar bæði hjónin. Við feng- um þetta tækifæri og ef við hef- um ekki farið værum við sjálf- sagt alltaf að naga okkur í handabökin. Nú er ég líka búinn að komast að því að hérna heima þurfum við enga minni- máttarkennd að hafa gagnvart Ameríku. Og þó mér finnist að matvöruverðið gæti verið aðeins lægra hér á íslandi og meðferð okkar á áfengi mætti batna held ég að við getum verið ansi glöð og ánægð með þetta þjóðfélag okkar.“ - Hvað er framundan hjá þér núna? „Ég veit það eiginlega ekki. Fyrst er að finna íbúð og best að nota hér tækifærið og kanna auglýsingamátt Dags-Tímans. Jú, svo er ég að fara að spila á Blúsbarnum á laugardag [í kvöld] og síðan spila ég með gospelbandi í Hjallakirkju í Kópavogi, fæðingarbæ konunn- ar minnar á sunnudaginn. Rétt dafnar best með röngu,“ svarar Valdimar glottandi. „Annað veit ég nú ekki. Ég var að tala við frænda minn um daginn hvort ég ætti ekki bara að fara á samning hjá honum og læra að verða smiður. Heiðarleg atvinna er svolítið spennandi núna,“ bætir hann hugsandi við og tek- ur fram að ekki veiti af að vinna mikið. „Þetta var ekki ódýrt ferðalag.“ Saknaði leikhússins En hvað með leiklistina, er hann búinn að gefa hana upp á bát- inn? „Leikhúsið er farið í gang og búið að taka allar ákvarðanir þannig að ég reikna ekki með að komast þar inn í vetur. Ef eitthvað myndi gerast í þeim efnum væri það sannarlega óvænt og furðuleg ánægja. Ég komst hins vegar að því þegar ég var úti hvað íslenska leikhús- ið á mikið í mér. Þegar ég fékk þær sorgarfréttir að hver stór- höfðinginn á fætur öðrum í leik- húsheiminum væri að falla frá fór ég bara allur í keng. Þá fann ég hvað ég saknaði leikhússins og hvað mig langaði til að vera þar.“ Áður en Qöl- skylda Valdimars flutti heim dvaldi hún einn mán- uð í Miami þar sem Ásdís kona hans á ætt- ingja. Hún og börnin flugu frá Vestur- ströndinni til Florida en Valdimar keyrði á bflnum þehra. „Ég var aleinn á einhverju mótelherbergi í Miss- issippi þegar mér var sagt að Helgi frændi [Skúlason] væri dá- inn. Það helltust yfir mig alls- konar tilfinningar og ég fann hve ég tilheyrði leikhúsinu. Þær tilfinningar sem höfðu verið að veltast um í mér krystölluðust skyndilega. Og svo Bríet líka, þessi elska. Þó við höfum ekki alltaf verið sammála þótti mér alltaf óskaplega vænt um hana. íslendingar eru yndislegt fólk og ég elska þetta land. Hér vil ég ala upp alla mína Flygenringa." AI /Etli ég sé ekki kominn á það stig í lífinu að börnin mín skipta mig meira máli en yfir- borðskenndur stundar- frami. Ég er alvarlega að íhuga að ganga til liðs við Alþýðubandalagið eftir að hafa séð hvað kapítalisminn, í sinni sterkustu mynd, er hroðalegur.

x

Dagur - Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.