Dagur - Tíminn - 23.11.1996, Page 8

Dagur - Tíminn - 23.11.1996, Page 8
20 - Laugardagur 23. nóvember 1996 IJagur-CEmxmn Móðurmissir Nýlega er komin út bókin Á VAKTINNI eftir Steinar J. Lúðvíksson en bókin hefur að geyma œvi- minningar Hannesar Þ. Hafstein sem varð þjóð- kunnur maður fyrir störf sín fyrir Slysavarnafélag íslands. í upphafi frá- sagnar sinnar fjallar Hannes um œsku- og bernskuár sín á Húsavík og segir að sér sé enn í dag tamt að tala um Húsavík sem „ heima “. Dagur-Tíminn birtir með leyfi útgefanda stutt brot úr bókinni þar sem Hannes fjallar um árin sín á Húsavík og þau þáttaskil sem urðu í lífi fjölskyldu hans er móðir hansféllfrá snemma árs 1939, þá á besta aldrl Millifyrirsagnir eru blaðsins. Það var mjög ríkt í pabba að iunræta okkur systkin- imum að umgangast fólk af virðingu og var þar sama hver átti í hlut. Þetta var stund- um hægara sagt en gert því að á Húsavík, eins og alls staðar annars staðar, voru kynlegir kvistir og slíkt fólk vill oft verða skotspónn barna og ungmenna. Ég man eftir því að maður, sem þótti dáh'tið sérkennilegur, átti oft leið fram hjá Sýslumanns- húsinu. Ég gat hermt bærilega eftir pabba og gat ekki stillt mig þegar maðurinn var að ganga fram hjá að kalla til hans með rödd pabba: „Komdu og finndu mig!“ Um leið og ég hafði kallað lét ég mig hverfa en maðurinn skálmaði rakleiðis upp á sýslu- mannskontór. Pabbi tók honum alúðlega og þeir spjölluðu sam- an góða stund. Báðir biðu eftir að erindi væri borið upp en þegar það gerðist ekki hvarf aðkomumaðurinn á braut. Næstu daga endurtók ég leikinn og pabba fór að grun að ekki væri allt með felldu. Lagði hann hramminn dálítið þungt á öxl- ina á mér þegar hann stóð mig að verki nokkru síðar og leiddi mér það fyrir sjónir að þannig hagaði maður sér ekki. Því má bæta við að eitt sinn var það sem oftar að maður þessi átti erindi við pabba, sem bauð honum inn á kontór, gaf honum vindil og kveikti í honum. „Það er svei mér gott að þú komst, Guðmundur minn, ég hef all- staðar verið að leita að þér,“ sagði pabbi. Karlinn hætti að totta vindilinn og svaraði að bragði: „Og var ég þá hvergi, sýslumaður minn?“ væri hægt að beita. Fxíkkalyf voru ekki komin til sögunnar þegar þetta var og engin önnur lyf eða lækrúng til við kolbrandinum. Liðu svo dagar og vikur. Stundum lækkaði hitinn og mamma virt- ist á batavegi en síðan blossaði hann upp aftur og hún varð fár- veik. Þegar leið á marsmánuð fór líðan hennar heldur að skána. Lengra var orðið á milli hita- kastanna og hún virtist hress- ari. Undir kvöld 27. mars kom ég heim eftir að hafa verið að leika mér niðri í ijöru og á bát- um í fjöruborðinu. Ég var að kanna hvort rauðmagi væri genginn svo nærri landi að hægt væri að skutla hann. Þeg- ar ég kom heim var Björn lækn- ir þar fyrir og þegar ég kom upp á loft heyrði ég að hann og pabbi voru að tala saman um að mamma væri orðin það hress að hún gæti farið að fara á fætur. Ég man hvað ég gladd- ist í hjarta mínu að heyra þetta og fannst að brátt yrði allt sem áðxir en það var eins og mara hvildi yfir heimilinu meðan hxín átti í baráttunni við sjúkdóm- inn. Ég sofnaði því vært um kvöldið en klukkan hálffimm um morguninn kom pabbi, vakti mig og sagði mér að mamma væri dáin. Ekki þarf að fara mörgum orðum xnn hvern- ig mér varð við. Ég hafði alla tíð verið mikill mömmustrákur. Hún var það akkeri í lífi mínu sem ég gat alltaf treyst á og veikindi mín á barnsárunum höfðu orðið til þess að við vor- um tengdari en gerist og geng- ur með mæðgin. Jóhann frændi fór strax og náði í Björn lækni og mömmu voru veittar nábjargir. Pabbi fór síðan að reyna að ná sambandi við systkini mín sem flest voru fyrir sunnan. Jóhann bróðir og eiginkona hans, Ragnheiður Hauksdóttir Thors, voru erlend- is en Jóhann stundaði þar framhaldsnám í lögfræði. Þegar náðist samband við þau kom í ljós að þau grunaði þá þegar að eitthvað alvarlegt hefði komið fyrir. Þau höfðu íslenskan fána á fallegri borðstöng á heimili sínu en þennan grip höfðu þau fengið að gjöf við brottförina að heiman. Þegar þau risu úr rekkju morguninn sem mamma dó var eitt það fyrsta sem þau tóku eftir að fáninn var í hálfa stöng. Þau töldu þetta fyrirboða válegra tíðinda að heiman og sú var líka raunin. Grátið í hlöðunni Andlát mömmu spurðist fljótt út á Húsavík. Eldsnemma um morguninn byrjaði fólk að koma og votta Qölskyldunni samúð sína. Ein af þeim fyrstu, sem komu, var vinkona okkar, Sigríður Ingvarsdóttir, sem reyndi að styrkja okkur og hugga. Enn þann dag í dag geymi ég mynd hennar í mirrn- ingu minni þegar hún labbaði frá húsinu að heimsókninni lok- Sýslumannshúsið - Fensalir á Húsavík. Ský dregur fyrir sólu Árið 1939 urðu mikil þáttaskil hjá íjölskyldu minni á Húsavík og þegar ég lít nú til baka finnst mér að þá ljúki hinum áhyggju- lausu og skemmtilegu æskudög- um mínum og alvara lífsins taki við. Eins og ég hef áður vikið að tók mamma virkan þátt í störf- um Kvenfélags Húsavíkur. Eitt af því, sem kvenfélagskonur önnuðust oft, var undirbúning- ur jarðarfara og erfidrykkjur. Það var um miðjan febrúar 1939 sem mamma, ásamt fleiri konum úr félaginu, var að und- irbúa jarðarför og voru þær m.a. að koma fyrir blóma- skreytingu í kirkjunni. Þá varð mamma fyrir því óhappi að stinga sig annaðhvort á kaktusi eða rósaþyrni. Strax um kvöldið varð hún þess vör að illt var hlaupið í lítið sár, sem af stung- unni hlaust, og daginn eftir var hún komin með háan hita og leið illa. Kallað var á Björn Jós- efsson lækni sem kvað upp þann úrskurð að hún hefði fengið blóðeitrun og að alvara væri á ferðum. Nokkrum dögum áður en þetta gerðist hafði pabbi farið suður til Reykjavíkur í erinda- gjörum fyrir höfnina og síldar- verksmiðjuna. Vegna slæmrar tíðar var engin leið fyrir hann að komast heim og má nærri geta hvernig honum hefur liðið ijarri heimili og fársjúkri eigin- konu sem var í mikilli lífshættu. Það var ekki fyrr en tveimur vikum eftir að mamma veiktist sem honum tókst loks að kom- ast heim með Goðafossi. Skipið átti reyndar ekki að hafa við- komu á Húsavík en Pétur Björnsson skipstjóri, sem frétt hafði um veikindi mömmu, kom þar við, pabba vegna. Þegar mamma veiktist voru aðeins við tvö yngstu syskinin heima, Þór- unn og ég. Váleg tíðindi Mömmu hélt áfram að versna. Hún var stöðugt með háan hita og var algjörlega rúmfóst. Björn læknir gerði allt, sem í hans valdi stóð, og hjúkraði mömmu af einstakri umhyggju. Þá kom einnig Guðmimdur Karl Pétursson, læknir frá Akureyri, gagngert til Húsavíkur til þess að reyna að Uðsinna starfsbróð- ur sínum og ákveða í samráði við hann hvaða læknismeðferð Sýslumannshjónin á Húsavík með börnum sínum. Myndin var tekin á silfurbrúðkaupsdegi þeirra 12. júlí 1937. F.v.: Þóra, Hannes, Jóhann, Þórunn Jónsdóttir Havsteen, Jón Kristinn, Júlíus Havsteen, Ragnheiður, Þórunn, Soffía og Jakob.

x

Dagur - Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.