Dagur - Tíminn - 23.11.1996, Qupperneq 9

Dagur - Tíminn - 23.11.1996, Qupperneq 9
JDbtgur-'QIímtmt Laugardagur 23. nóvember 1996 - 21 Hannes í hópi leiksystkina sinna við iaufabrauðsskurð í Þórarinshúsi en það var frú Sigríður Ingvarsdóttir sem tók myndina. Hannes er fyrir miðju í fremri röð. inni. Að venju var hún í peysu- fötununum sínum og ég fann það þegar ég horfði á eftir henni, þar sem hún gekk rösk- um skrefum frá húsinu og sveiflaði handleggjunum, að ég ætti hauk í horni þar sem þessi kona var, nú þegar mömmu nyti ekki lengur við. Þótt ég væri ungur að árum, aðeins 13 áTa, og óþroskaður skynjaði ég þá hljóðu sorg sem ríkti í öllum kaupstaðnum vegna fráfalls mömmu. Hún var öllum í héraðinu harmdauði og kannski höfum við aldrei orðið eins áþreifanlega vör við þá vináttu og hlýhug sem ríkti þar hvar- vetna í okkar garð. Sjálfur átti ég ákaf- lega bágt. Mér fannst ég vera orðinn of stór og gamall til þess að láta aðra sjá hvað mér leið illa og á erf- iðustu stundunum laumaðist ég því nið- ur í heyhlöðuna í kjallaranum, lagðist þar í heyið og gaf til- finningunum og tár- unum lausan taum- inn. Meðan mamma stóð uppi og verið var að undirbúa útförina komu öll systkini mfn heim. Ákveðið var að hún yrði jarðsett í Reykjavík en hún og pabbi höfðu þá þegar ákveðið að eyða ævikvöldi sínu þar, enda ljóst að flest börn þeirra myndu ílengj- ast syðra. Ég átti að fermast þá um vorið en vegna aðstæðna var ákveðið að flýta ferming- unni og var það auðsótt mál hjá síra Friðrik A. Friðrikssyni. Fermdist ég því einn í Húsavík- urkirkju á páskadag 9. apríl. Við athöfnina gengu pabbi og systkini mín með mér til altaris, nema yngsta systir mín, Þór- unn, sem var rúmliggjandi. Fylgt til grafar Hinn 10. apríl var mamma kvödd hinstu kveðju á Húsavík. Fyrst var húskveðja á sýslu- mannsheimilinu og síðan minn- ingarathöfn í Húsavíkurkirkju. Gengu Völsungar fyrir líkfylgd- inni til kirkju og báru þjóðfán- ann, sýslufánann og félags- merki sitt. Fánar blöktu þá hvarvetna í hálfa stöng og gíf- urlegt íjölmenni var við athöfn- ina í kirkjunni. Kistan var síðan flutt um borð í varðskipið Ægi sem flutti hana og okkur til Reykjavíkur. Hinn 13. apríl var kveðjuathöfn á heimifi töntu Soffu og Eggerts frænda að Reynistað í Skerjafirði og flutti þar vinur fjöfskyldunnar, Ragn- ar E. Kvaran, minningarræðu. Síðan var athöfn í Dómkirkj- unni og að henni lokinni var jarðsett í Fossvogskirkjugarði. Margir urðu tif þess að heiðra minningu mömmu og sýna fjölskyldunni vináttu og kærleika við fráfall hennar. Pabbi gaf síðar út í minningar- riti, sem hann dreifði til fjöl- skyldunnar og nánustu vina, þau kveðjufjóð og kveðjuorð sem skrifuð voru um hana. Fremst í ritinu er ljóð sem Jakob, bróðir minn, orti og fagt var í kistu mömmu. Það var þakkaróður í nafni okkar systk- inanna og segir þar m.a.: „ Viö getum aldrei þakkað þér hve þú varst okkur dýrðleg móðir, og því er blítt og birta hér um bernsku vorrar fyrstu slóðir. Þú leiddir oss við Ijúfa hönd, með líf og sál í öllum taugum. Um œsku vorrar óskalönd í óði og söng, með/ mildum augum. “ í ritinu voru einnig kveðjuræður síra Friðriks A. Friðrikssonar á Húsavík og Ragnars E. Kvaran, auk minningarljóða eftir Guð- mund Friðjónsson, skáld frá Sandi, Karl Kristjánsson, oddvita og síðar alþingismann og Árna Sigurðsson, póst á Húsavík. Á síðustu síðum ritsins skrifar pabbi svo kveðjuorð sín til mömmu. Ég held að þau skýri betur en langar útlistingar þá einlægu ást sem hann bar til hennar og það trausta samband og samheldni sem alltaf ein- kenndi samband þeirra. Þar segir hann: „Elskulega Tótlan mín: Jeg kveð þig ekki, þvíjeg má ekki til þess hugsa, að missa þig burt frá mér. Hefi og á dásamlegan hátt orðið þess var, að þú yfirgefur mig ekki. Lán mitt var, í þessu lífi, að jeg eignaðist þig. Gleði mín, var að sjá þig ham- ingjusama. Sœla mín verður, að sameinast þér aftur. Þú ert sannfœring mín um lífið eftir dauðann. Júlíus. “ Banamein mömmu mun hafa verið blóðtappi og heyrði ég síðar að sennilega hefði löng rúmlega hennar orsakað mynd- un hans. Á þessum árum var ekkert lagt upp úr því að sjúkl- ingar gjigju í fæturna .eða hreyfðu sfg mikið en nú er íSmp vegar lögð áhersla á að fólk fiiri sem fyrst á stjá eftir aðgerðir og uppskurði. Hugsanir um örlög mömmu blunduðu í mér þegar ég þuffti sjálfur að gangast undir erfiðar læknisaðgerðir en þegar ég vaknaði upp eftir þær var fyrsta hugsun mín sú að koma mér fram úr og hreyfa mig. -,-m. í bókinni segir Hannes frá fyrsta „stórferðalagi" sínu sem var á Alþingishátíðina á Þingvöllum árið 1930 en þar var þessi mynd tekin. F.v.: Jakob Hafstein, Ragnheiður Hafstein, Jón Kristinn Hafstein, Hannes Þ. Hafstein, Jóhann Hafstein, Þórunn Jóns- dóttir Havsteen, Júlíus Havsteen og bræðurnir Vernharður og Stefán Bjarnasynir. Umboðsmenn vantar um landið allt til léttra starfa fyrir liknarfélag við vinnu að góðu málefni. Ef þú hefur tíma aflögu þá sendu okkur örlitl- ar upplýsingar um sjálfan þig, s.s. nafn, síma- númer, heimilisfang og annað er máh skiptir, til: P.G.P.,box 7870,127 Reykjavík. Steinullarbíllinn auglýsir Einangrum öll hús, ný sem gömul, með steinull frá Sauðárkróki. Ullinni er blásið á sinn stað hvort sem er í holrúm, útveggi, þök, innveggi (hljóðeinangrun) eða ofan á loftplötur. Getum komist að stöðum sem erfitt er að komast að. Ókeypis skoðun - Gerum tilboð JÓN ÞÓRÐARSON Simi 587-9194, bílas. 853-3892, fax 587-9164 Hagstofa íslands - Þjóðskrá Er lögheimi yðar rétt skráð í þjóðskrá? Nú er unnið að frágangi árlegrar íbúaskrár 1. desember. Mik- ilvægt er að lögheimili sé rétt skráð í þjóðskrá. Hvað er lögheimili? Samkvæmt lögheimilislögum frá 1. janúar 1991 er lögheimili sá staður þar sem maður hefur fasta búsetu. Hvað er föst búseta? Föst búseta er sá staður þar sem maður hefur bækistöð sína, dvelst að jafnaði í tómstundum sínum. hefur heimilis- muni sína og svefnstaður hans er. Þetta þýðir að lögheimili manns skal jafnan vera þar sem hann býr á hverjum tíma. Hvað er ekki föst búseta? Dvöl frá heimili um stundarsakir t.d. vegna orlofs, vinnuferða og veikinda er ekki breyting á fastri búsetu og þar af leiðandi ekki breyting á lögheimili. Sama gildir t.d. um dvöl í gistihús- um, sjúkrahúsum, heimavistarskólum og fangelsum. Hvernig eiga hjón og fólk í óvígðri sambúð að vera skráð? Séu þessir aðilar samvistum eiga þeir að hafa sama lög- heimili. Hvað barnafólk varðar er reglan sú að dvelji annar hvor aðilinn fjarri fjölskyldu sinni um stundarsakir, t.d. vegna atvinnu, skal lögheimili allrar fjölskyldunnar vera skráð hjá þeim sem hefur börn þeirra hjá sér. Hvenær og hvar skal tilkynna flutning? Breytingu á fastri búsetu á að tilkynna innan 7 daga frá flutn- ingi til skrifstofu þess sveitarfélags sem flutt er til. Ennfremur má tilkynna flutning beint til Hagstofu íslands - Þjóðskrár eða lögregluvarðstofu í Reykjavík. Tilkynningar skulu vera skrif- legar á þar til gerðum eyðublöðum. Hagstofa íslands - Þjóðskrá Skuggasundi 3 -150 Reykjavík Sfmi: 560 9800 - Brál^ími: 562 3312 HDagur-CLtntmtt -besti tími dagsins!

x

Dagur - Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.