Dagur - Tíminn - 23.11.1996, Page 19

Dagur - Tíminn - 23.11.1996, Page 19
 Laugardagur 23. nóvember 1996 - 31 Tveir frá Texas Til eru margar gamansögur í Bandaríkjunum sem ganga út á það hve allt sé stórt og mikið í Texas. Víst er það líka að olían sem þar er víða í jörðu auk öflugrar nautgriparæktar, svo tvennt sé nefnt. Hefur það gert fylkið að einu því búsæld- arlegasta, þannig að sögurnar eru ekki alveg út í loftið. Um Texas hefur líka verið sagt í hálfkæringi, að þar spili annar hver strákur á gítar og syngi, þvílíkur íjöldi er af slíkum tón- listarmönnum þar. Hafa margir þeirra svo orðið frægir langt út fyrir landamörk Texas og jafn- vel komist í flokk frægustu tón- listarmanna heims. Er nafn Stevie Ray Vaughan eitt besta dæmið um það, en drengurinn sá naut meðan hann var og hét, virðingar og vinsælda hvar- vetna á byggðu bóli. Vaughan mótaðist, eins og svo margir aðrir af sama sauðahúsi, í hinni miklu tónlistarhringiðu sem einkennir borgina Austin í Tex- as og það sama gildir um tvo aðra góða, en jafnframt um margt ólika gítarleikara, Eric Johnson og Doyle Bramhall II, sem náð hafa að skapa sér nafn með áberandi hætti. Sá munur er þó á hjá þeim, að Johnson kom upp í Austin á sama tíma og Vaughan og var lengi vel stillt upp sem hans helsta „keppinaut", en Bramhall II er öllu yngri og á skemmri feril að baki. Aftur á móti á hann það sameiginlegt með Johnson að tengjast nafni Vaughans og það á fleiri en einn hátt. Vaughan fyrirmynd Faðir Bramhalls II, Doyle Bramhall I, var nefnilega náinn vinur og samstarfsmaður Vaug- hans, samdi t.d. með honum lög og texta, þannig að hann varð fyrir miklum áhrifum frá hetj- unni, eins og svo margir aðrir ungir menn honum samtíða. Eftir lát Vaughans, árið 1992 var svo Bramhall II komin í hljómsveit með félögum Vaug- hans í Double Trouble tríóinu, þeim Tommy Shannon bassa- leikara og Chris Layton tromm- ara, ásamt hinum góðkunna söngvara og gítarleikara Charlie Sexton, sem kallaðist Arc Angels. Sendu þeir frá sér velheppnaða samnefnda rokkplötu, sem seldist dável, en upp úr samstarfinu slitnaði hins vegar ekki löngu eftir útgáfuna. Bramhall II var þegar Arc Ang- el kom til, kominn með samn- ing við Geffen-risann upp á vas- ann, en það er ekki fyrr en nú að hans fyrsta einherjaplata kemur út. Johnson er svo líka fyrir skömmu búinn að senda frá sér nýja plötu og er hann líka á mála hjá Geffen. Undir upptökustjórn kvennanna þekktu, Wendy og Lisu (sem reyndar eru frægari sem dúett- inn Wendy og Lisa og hafa sent frá sér einar þrjár lukkulegar plötur) er hinn samnefndi frumburður Bramhalls II, blendingur af poppi, rókki og þjóðlagatilþrifum með hinni þokkalegustu útkomu, en ljóst er að hann hefur ennþá ekki mótast nema að takmörkuðu leyti sem sjálfstæður tónlistar- maður. Með stílinn á hreinu Hjá Eric Johnson er hins vegar allt á hreinu hvað stílinn snert- ir. Rétt eins og Vaughan og Bramhall II reyndar líka, liggja rætur hans í blústónlistinni að stórum hluta, en með tímanum hefur hann hins vegar nokkuð fjarlægst ræturnar og mátast sem alhliða djass/djassrokks gítarleikari. Nýja platan hans, Venus Isle, ber glöggt merki stílistans, fljótandi og á köflum draumkennd að hætt nútímans, með miklum og tæknilegum út- setningum. í ofanálag er svo platan býsna melódísk, sem ekki er alltaf upp á teningnum á plötum sem þessari. Gerir það hana því aðgengilegri en e.t.v. ella hefði verið. Lagið s.r.v., tileinkað minningu Vaug- hans, er dæmi um þetta og sýn- ir eitt og sér að Johnson er góð- ur lagasmiður. Þeir sem aðhyll- ast annars vegar djassrokk, t.d. eins og Mezzoforte hefur staðið fyrir og hrífast svo líka af góðu og vel sömdu gítarrokk að hætti Joe Satriani hins vegar, ættu ekki að láta þessa plötu hans fara. Eric Johnson var eitt sinn stillt upp sem keppinauti Stevie Ray Vaughan, en náði að rífa sig burt frá slíku og skapaði sinn eigin stil. Umsjónarmaður Magnús Geir Guðmundsson Stefán Hilmarsson hefur mörg undanfarin ár verið einn af mest áberandi og vinsælli söngvurum landsins. Kom hann fyrst fram á sjónar- sviðið, eins og flestir sjálfsagt muna, með Sniglabandinu, en hefur síðan gert garðinn frægan með Sálinni hans Jóns míns og Pláhnetunni, auk þess að hafa nú undir það síðasta verið að syngja með hinum og þessum, Millunum, Spookie Boogie o.fl. Árið 1993 sendi Stefán svo frá sér sína fyrstu plötu undir eigin nafni, Líf, sem reyndist vera hin besta og hugljúfasta poppplata og er tvímælalaust með því betra sem hann hefur komið nálægt. Önnur platan, Eins og er.., sem var eins og landsmenn hafa væntanlega orðið varir við, að koma út fyrir tæpum þremur vikum, sýnir hins vegar allt aðra hlið á söngvaranum og má með sanni segja að hún sé rót- tæk breyting frá fyrri plötunni. Dulúðugt og seiðandi popp, sem jafnvel á köflum jaðrar við að vera dansættar, það er að segja í stíl við trip hop og/eða drum & base (þessar stefnur þarf ekki Stefán Hilmarsson fer nýjar leiðir með annarri plötu sinni, Eins og er... að skýra nánar fyrir þeim sem fylgjast vel með því sem er að gerast í Bretlandi) lýsir því einna best sem Stefán er að fást við á plötunni, en hana vann hann að mestu leyti með þeim Friðriki Sturlusyni, félaga sín- um til margra ára og Mána Svavarssyni (Gests) „tækni- trölli" úr Pís of keik m.a. Er þetta mikið stökk frá fyrri plötunni, en þó ekki alveg ókunnugt viðfangsefni. Stefán hefur nefnilega spreytt sig með hljómsveitinni norðlensk ætt- uðu, Fantasíu, á danspoppi, t.d. í titillagi stuttmyndarinnar Negli þig næst, en breytingin er samt sem áður umtalsverð. Það er óhætt út af fyrir sig að gefa plús fyrir slíka róttækni, því í henni felst óneitanlega áhætta, en það virðist álitamál hversu vel þetta hefur tekist sköpunar- lega séð. Dæmi nú annars hver fyrir sig. • Salan á plötu Bubba, All- ar áttir, er að sögn útgefanda búin að vera ævintýraleg á þeim tæpa mánuði frá því hún kom út. Hafa yfir 3.000 eintök selst á þessum stutta tíma, sem að líkindum er met. • Stone Roses, rokksveitin framsækna frá Manchester, sem fyrir sex árum gerði Tricky fær mikið lof fyrir nýju plötuna sína. hreinlega allt vitlaust með fyrstu stóru plötunni sinni, virðist nú hafa lagt upp laup- ana. Frá fyrstu hendi hafa vandræði fylgt sveitinni. Það tók hana t.d. fjögur ár að koma með aðra plötu, Second comming, sem svo alls ekki stóð undir væntingum. • Blessunin hún Björk, fékk ekki verðlaun á evrópsku MTV-hátíðinni fyrir rúmri viku, en að mati sumra átti hún ágæta möguleika á því. Hún fór hins vegar vel af stað með nýjasta lagið sitt, Possi- bly Maybe, á breskum vin- sældalistum nokkrum dögum fyrir hátíðina. Fór það á topp óháða listans svonefnda og í 13. sæti sölulistans. Því miður dalaði lagið strax í liðinni viku. Datt alla leið niður í 33. sæti. • Góðvinur Bjarkar, trip hop goðið Tricky, byrjaði lak- ar með sitt nýjasta lag, Christian Sands, í 37. sæti og í síðustu viku datt það svo út af topp 40. Nýja platan hans Tricky, Pre-Millennium Tensi- on, fær aftur á móti hreint frábæra dóma í bresku popp- pressunni. Segir einn gagn- rýnandi t.d. að platan sé sú besta á 10. áratugnum, hvorki meira né minna. • í Bandaríkjunum tókst ballöðurokkurunum í Van Ha- len í þriðja sinn í röð a.m.k.að fara með nýja plötu sína bein- ustu leið á topp sölulistans. Þetta gerðist fyrir tveimur vikum með safnplötuna þeirra nýju, Volume 1. Síðasta Ant- hologyplata Bítlana númer 3 (þær áttu reyndar upphaflega að verða ijórar, en forminu var síðan breyttf) tók hins vegar efsta sætið af Van Ha- len í síðustu viku.

x

Dagur - Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.