Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.1981, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ & VlSIR. FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1981.
7
Lesendur Lesendur
Blindur Bandaríkja
maður hefur áhuga
á íslandi
Sam Ward skrifar frá Bandaríkjun-
um:
Ég er 27 ára gamall og hef mikinn
áhuga á Norðurlöndunum, sérstak-
lega íslandi. Ég er blindur og get því
ekki lesið venjuleg bréf en ég hef
mikinn áhuga á að komast í samband
við einhvern eða einhverja sem
myndi vilja skiptast á „bréfum”,
töluðum inn ákassettur.
Ég hef áhuga á hvers konar út-
varpsstarfsemi, sérstaklega stutt-
bylgjuútvarpi; myntsöfnun, þótt ekki
sé ég nú langt á veg kominn í þeim
efnum; rokkplötum frá um það bil
1950; veðurfræði og landafræði.
Eitt áhugamála minna er að safna
upptökum af erlendum fréttum og
verðurfregnum. Veðurfregnirnar
mega vel vera úr sjálfsvara veður-
stofu. Mér skilst að í Reykjavík sé
slíkur sjálfsvari, sími 17000: Mig
langar til þess að fá slíka upptöku
ásamt þýðingu á ensku.
Mig langar einnig til þess að fá
sýnishorn af efni íslenzka útvarpsins,
sjónvarpsins og af útsendingu út-
varpsstöðvarinnar í Keflavík. Ég hef
áhuga á að skiptast á kassettu-
„bréfum” við hvern sem er milli tví-
tugs og fimmtugs, svo fremi að við-
komandi hafi góða enskukunnáttu.
Ég á kort af íslandi, merkt með
blindraletri, en því fylgdu engar upp-
lýsingar um landið. Ég hef áhuga á
slíkum upplýsingum á blindraletri,
ekki síður en á kassettu, því ísland er
það Norðurlandanna sem ég veit
minnstum.
Stöku sinnum heyri ég fréttir frá ís-
landi í finnska útvarpinu og fæ að
vita hitastigið í Reykjavík næstum
daglega, en það er allt og sumt. Ég
hef mikinn áhuga á að komast í sam-
band við útvarpsáhugamenn, ef ein-
hverjar stuttbylgjustöðvar eru til á ís-
landi og ef þær eru þá í sambandi við
Norður-Ameríku.
Ég hefði jafnvel áhuga á að komast
í samband við bandaríska útvarps-
áhugamenn á íslandi, ef einhverjir
eru, því ég gæti þá leyft þeim að
heyra upptökur af heimaslóðum
þeirra, hafi þeir áhuga eða þjáist af
heimþrá.
Mestan áhuga hef ég samt á að
komast í samband við Islendinga, því
mig langar til þess að fræðast um
þetta athyglisverða land, sem flestir
halda að sé einn stór jökull.
Utanáskrift mín er:
Sam Ward
104 S. Westmoor Ave.
Columbus
Ohio 43204
USA.
Blaðið hafði samband við
Gisla Hc'gason, hjá Blindrafélaginu
og mun Gísli sjá til þess að efni bréfs
þessa birtist á fréttabréfi Blindrafé-
lagsins sem kemur út á kassettum.
Jafnframt mun Sam fá smásendingu
frá Veðurstofu íslands, svo eitthvað
mun hann þó fá fyrir snúð sinn.
-FG.
Opið til kl. 22.00
í kvöld
og til kl. 16.00
laugardaginn
28. nóvember
Verzlið ódýrt,
allt á sama stað
RAGNAR JÚLÍUSSON
skólastjóri
Nýtum reynslu Ragnars
• ískólamálum
• í æskulýðsmálum
• í atvinnumálum
• ífélagsmálum
Hann á erindi í borgarstjórn
Munið prófkjör sjálfstæðismanna
vegna borgarstjómarkosninganna
í vor.
Prófkjörið fer fram sunnudaginn
29. nóvember
og mánudaginn 30. nóvember.
Kjörstaðir verða fjórir talsins, í
Átthagasal Hótel Sögu, f Valhöll við
Háaleitisbraut, að Hraunbæ 102b og
Seljabraut 54.
Sunnudaginn 29. nóvember verða
kjörstaðir opnir frá kl. 10 til kl. 20.
Mánudaginn 30. nóvember er aðeins
kosið í Valhöll, og þar er opið frá kl.
15.30 til kl. 20.
Ragnar Júlíusson skólastjóri
hefur um fjölda ára veriS fulltrúi í borgarstjóm
Reykvíkinga. Ragnar býr yfir mikilli reynslu á
sviSi stjórnsýslu, hann hefur haft víStæk afskipti
af fræðslumálum, félagsmálum og
atvinnumálum Reykvíkinga. Ragnar hefur
einnig tekið virkan þátt í félagsstarfi
sjálfstæðismanna, auk margra annarra félaga, og
var lengi formaður Landsmálafélagsins Varðar.
Skrifstofa stuðningsmanna Ragnars er að
Suðurlandsbraut 12, 3. hæð.
Símar 81550 og 81551
STUÐNINGSMENN
0050 Giirtei.'Be>t/'Ceiniure
,354 Schaí>kniítsd-seart/Cache-ftez.
354 Schaí/Knitted-scart/Caí