Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.1981, Page 31
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1981.
Sjónvarp
39
HUÓÐHÚSIÐ Á AKUREYRIHEFUR ALLT-
AF MQRA OG MEIRA AF VERKEFNUM
Það var allt á fullu í Hljóðhúsi Akur-
eyrar þegar okkur bar þar að garði dag
einn fyrir skömmu. Björgvin Júníusson
hafði farið eldsnemma á fætur til að
Bjarni Sigtryggsson gæti látið til sín
heyra í Morgunvöku og frætt hlust-
endur um land allt um gang mála á
Akureyri. Síðan var fullbókað fram á
kvöld, bæði barnatímar, morgunorð
og gott ef ekki pistlar úr nærsveitum,
eins og til dæmis fráSauðárkróki.
„Björgvin hefur svo mikið að gera
að hann þyrfti að hafa svefnpoka á
staðnum,” sagði Bjarni, sem er fyrr-
verandi blaðamaður á Alþýðublaðinu
en er nú framkvæmdastjóri Akur-
eyrardeildar Rauða kross íslands.
Hann hefur búið þarna á staðnum í
fimm ár. Það er ekki langt á mæli-
kvarða Akureyringa. Maður sem þar
hefur búið í tuttugu ár er ennþá sagður
nýfluttur til bæjarins
Verður ráðinn
sórstakur dag-
skrárfulltrúi?
Þangað til fyrir svo sem tveim árum
var ekkert stúdíó sem slíkt á Akureyri.
En Björgvin hafði skapað sér upptöku-
aðstöðu í Borgarbíói, þar sem hann er
framkvæmdastjóri, og þegar mikið lá
við var salur í íisi barnaskólans fenginn
að láni. Svo bauðst útvarpinu traust
og gott lítið hús við Norðurgötu. Það
var áður reykhús og sumir þykjast
finna hangikjötslykt þar ennþá. En það
held ég að sé orðum aukið.
Það kom eiginlega á óvart að sjá
annríkið þarna, sérstaklega þegar
maður bar það saman við rólegheitin
fyrir nokkrum árum. En nú er alltaf
meira og meira efni fengið frá Akur-
eyri.
Tækniskilyrðin eru svo góð að það er
til dæmis ekkert mál fyrir Sigmar B. að
hringja norður og biðja Guðmund
Frímannsson að tala um bók í þættin-
um Á vettvangi. Það er sent suður á
örbylgjum og þaðan beint út til hlust-
enda um land allt.
Að sjálfsögðu er útvarpið með fastan
fréttaritara á Akureyri, Hermann
Sveinbjörnsson sem eitt sinn var blaða-
maður á Tímanum en er nú á Degi.
Einu sinni í mánuði er sérstakur frétta-
þáttur: Norðanpóstur, gerður af
Gísla Sigurgeirssyni sem einnig er
fréttaritari Vísis á staðnum.
Okkur var sagt að útvarpið hefði i
hyggju að ráða fastan frétta- og dag-
skrárfulltrúa þar nyrðra. Það virðist
prýðileg hugmynd og ekki verða
vandræði með efnið.
-IHH.
KENNARARAUNIR
—sjónvarp í kvSld kl. 22,15:
Laurence Olivier sem
grámyglaður kennari
— og Sarah Miles sem ástfanginn stelpukjáni
Fimmtán eða sextán ára skóla-
stúlka í fátækrahverfi einhverrar
enskrar borgar verður ástfangin af
grámyglulegum kennara sínum. Hún
reynir að fá hann til við sig. En hann
hrindir henni frá sér eða kannski er
réttara að segja ýtir henni blíðlega
burt.
Hún móðgast og æpir: Nauðgun!
Nauðgun! Og tekst heldur betur að
koma honum i klandur.
Þetta er efni myndarinnar Kenn-
araraunir, sem sögð er vel gerð og
spennandi. Leikstjóm Peter Glen-
villes mun vera prýðileg, og leikar-
arnir eru tómir snillingar, Laurence
Olivier, Sarah Miles, Simone
Signoret og Terence Stamp. Árgerð:
Og loks er það svo Terence Stamp
sem þama var rétt að hefja sinn leik-
feril eins og Sarah Miles. Hann var
22ja ára og þetta var næst fyrsta
myndin hans.
Skömmu seinna lék hann í The
Collector, mynd um brjálaðan
fiðrildasafnara sem rænir stúlku
sem hann er skotinn í og lokar hana
inni í kjallara, þar sem hún á
endanum lætur lífið. Og síðan
mörgum öðrum.
Sem sagt, engin þriðja flokks
útsölumynd.
-IHH.
Hljóðhúsið á Akureyri var áður reykhús og sumir þykjast finna hangikjötslykt
þar ennþá, en allt stefnir í síaukna starfsemi þess á næstu misserum.
■ .v
*m
Björgvin Júníussnn: bíóstjóri og
aðalstarfsmaður rikisútvarpsins fyrir
norðan.
>PlSp
Bjarni Siglryggsson lalar í siniann
eflir að vera nýbúinn að senda frá sér
pistil i Morgunvöku.
DB-myndir: Guðmundur Svanssnn.
PRÓFKJÖR SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS 29.-30. NÓVEMBER 1981
1962.
Sarah Miles er skólastúlkan. Hún
var ekki nema nitján ára sjálf og
þetta var fyrsta kvikmyndahlutverkið
hennar. Siðan hefur hún fengið
óskarsverðlaun að minnsta kosti
tvisvar (The Servant og Ryan’-s
Daughter.).
Hún lék einnig í hinni frægu mynd
Antonionis, Blow-Up, um ljósmynd-
ara sem fyrir tilviljun tekur mynd af
morði en er rændur filmunum.
Lawrence Olivier er kennari
hennar. Þessi frægi Shakespeare-leik-
ari, sem túlkað hefur Hamlet
Danaprins betur en nokkur annar,
filaut mikið lof fyrir túlkun sína á
skólakennaranum i þessari mynd.
Hann er svo samgróinn hluverkinu
að það er ekki hægt að ímynda sér að
hann hafi nokkru sinni gert annað en
reyna að uppfræða unglinga.
Simone Signoret, frönsk, hefur
minna hlutverk sem ástrík en ergileg
eiginkona kennarans. Þessi leikkona
hefur verið stolt Frakka fyrir það
hvað hún er vitur og veraldarvön.
3nnn=i.i4muuj(
SKÓLAVÖRÐUSTIG 41 - SÍMI 20235.
er verðugur fulltrúi
í borgarstjórn Reykjavíkur,
það hefur hann sýnt með
störfum sínum sem
varaborgarfulltrúi á
undanförnum árum.
Hilmar hefur um langt árabil
starfað innan verkalýðs-
hreyfingarinnar, m.a. setið
í miðstjórn Alþýðusambands
íslands og er í Verkalýðs-
ráði Sjálfstæðisflokksins.
Þá hefur Hilmar sinnt málefnum
íþróttahreyfingarinnar og
er formaður Knattspyrnu-
félagsins FRAM.
Trvggjum Hilmari Guðlaugssyni
ÖRUGGT SÆTI í borgarstjórn
Reykjavíkur með því að kjósa
hann í prófkjöri Sjálf-
stæðisflokksins nú um
helgina.
STUÐNINGSMENN
Upplýsingasími 37750
X Hilmar Gudlauasson
múrari
Veðrið
Veðurspá
dagsins
Yfir Grænlandi er 1030 ntb
hæð en 977 mb lægð milli íslands
,og Færeyja sem þokast austur.
Veður fer kólnandi.
Suöurland og Faxaflói: Norðvest-
an kaldi og viða él, einkum á
miðum og annesjum. Norðan og
norðvestan stinningskaldi eða all-
hvasst og léttir til þegar liða tekur
ádaginn.
Breiðafjörður: Allhvöss eða
hvöss norðaustan átt. Víða él.
Vestfirðir: Allhvass norðaustan
til landsins, en stormur á miðum.
Heldur hægari í nótt. Snjókoma
og síðan éljagangur norðan til.
Úrkomulitið sunnan til.
Slrandir og Norðvesturland til
Austfjarða: Norðaustanátt.
Hvassviðri eða stormur á annesj-
um og miðum en talsvert hægari
til landsins. Snjókoma og siðan
éljagangur. Heldur hægari í nótt.
Suðausturland: Norðan- og norð-
austanátt. Viða stinningskaldi
eða allhvasst. Él austantil á mið-
utn en annars úrkomulitið og
víða bjart veður þegar líða tekur á
daginn.
Veðrið
hér og þar
Akureyri snjókoma 0, Bergen
rigning 4, Helsinki snjókoma -4,
Kaupmannahöfn rigning 5, Osló
kornsnjór 3, Reykjavík snjókoma
1, Stokkhólmur léttskýjað II,
Þórshöfn alskýjað 6.
Kl. 18ígær:
Aþena skýjað 14, Berlín rigning
3, Chicago alskýjað 14, Feneyjar
heiðskirt 9, Frankfurt hálfskýjað
4, Nuuk heiðskirt 8, London hálf-
skýjað 12, Luxemborg hálfskýjað
3, Las Palmas skýjað 3, Mallorka
skýjað 11, Monlreal alskýjað 1,
New York alskýjað 6, París
skýjað 7, Róm heiðskírt 8, ■
Malaga léttskýjað 17, Vín
skýjað2, VVinnipeg snjókoma2.
Gengið
27. nóvember 1981 kl. 09.15
Einingkl. 12.00 Kaup Sala Sala
1 BandarOtjadollar 8,156 8,180 8,998
1 Stariingspund 15,843 15,890 17,479
1 Kanadadoiiar 6,923 6,944 7,638
1 Dönsk króna 1,1369 1,1403 1,2543
1 Norsk króna 1,4195 1,4237 1,5661
1 Saansk króna 1,4935 1,4979 1,6477
1 Finnsktmark 1,8887 1,8922 2,0814
1 Franskur franki 1,4529 1,4571 1,6028
1 Belg. franki 0,2181 0,2187 0,2407
1 Svbsn.franki 4,5737 4,5871 5,0458
1 HoMenzk florína 3,3488 3,3587 3,6946
1 V.-þýxkt mark 3,6664 3,6772 4,0449
1 ftötsk Itrs 0,00683 0,00685 0,00753
1 Austurr. Sch. 0,5223 0,5239 0,5762
1 Portug. Escudo 0,1264 0,1268 0,1394
1 Spánskur pesetí 0.G858 0,0861 0,0947
1 Japansktyen 0,03769 0,03780 0,04158
1 frsktound 13,009 13,047 14,351
8DR (sérstök 9,5556 9,5837
dráttarréttindi)
01/09
Sfmsveri vegna gengbskráningar 22190.