Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1981, Síða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1981, Síða 29
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 1981. 29 LAUSNIR A HEILABRJOTUM -DB-V mynd: Bjarnleifur. Flataskóli „ítröllahöndum” 1) Jón er 52 og Gunnar er 39. 2) Færið glös nr. 2 og 3 lengst til hægri — færið 5 og 6 í eyðuna. Eyðan sem þá myndast er fyllt með glösum nr. 8 og 2, og trikkinu lýk- ur með því að færa 1 og 5 yfir til hægri. Mjögeinfalt! 3) Kvikmyndin mun vera 3 klukku- stunda löng — en brúin er 1200 fet á lengd. 4) 17 ferfætlingar, 26 fuglar. 5) 24 egg. Hæna verpir samkvæmt þessu 1/3 eggi á dag, 6 hænur verpa þá fjórum eggjum á dag og á sex dögum er því 24 eggjum orpið — ekki satt?! 6) Kl. 10.59 ogkl. 11.54. 7) Klukkan myndi segja að réttur tími væri 4.23 1/3. En vegna þess að litli visir fer í öfuga átt verður að draga þá tölu frá 60 til að kom- ast að hinum raunverulega tíma, sem er 4.36 12/13. 8) VI—II = IV 9) Form F á að koma þar sem spurningarmerkið er þvi það er eina formið sem er stöðgut, þ.e. getur ekki oltið um koll. Röð formanna á efri línunni er stöðugt- valt-stöðuvt-valt ols.frv. 10) B hlýtur að vera sama og 1 og þess vegna er I sama og 0. Sem sagt: 9--- 1 - - 1SL030 10-5- Þá hlýtur M = 2 og 0 = 3. Dæmið lítur svona út: 9 4 3 2 133 2 1 10-7 5 3 11) Reiknum með því að allir ljúgi. Þá er dauðaorsök Sesselíu þessi: Ef Gísli lýgur: Morð en Eiríkur sakiaus. Ef Eiríkur lýgur: Morð en Eiríkur sekur. Ef Gísli lýgur: Slys. En það er ljóst að engar tvær þess- ara staðhæfinga geta báðar verið rangar. Annaðhvort er ein eða allar rangar. En dómarinn sagði að ef einn lygi, þá væri það sjálfs- morð. En annaðhvort lýgur enginn eða tveir. Þess vegna laug enginn, Sesselía dó af slysförum. 12) Það er reitur D. Röð reitanna níu er þessi: Bókstafir fyrir utan = plús. Bókstafir fyrir innan = minus. Þeir lesast á þennan hátt: + 2:3 = :l :3 +4= + 1 : 1 + 1=0 Og ykkur til upplýsinga um þessa síðustu þraut, ekki síst fyrir þau ykkar sem gátuð leyst hana, þá hefur hún verið notuð í inntökuprófi í félagsskap- inn Mensa sem er alþjóðlegur klúbbur fyrir fólk með óeðlilega háa greindar- vísitölu! Ms Kennararnir sögðu að skólinn legði mikið upp úr því að skipuleggja ferðir á sýningar og söfn og mælist þetta lif- andi skólastarf vel fyrir hjá bömunum. Haukur sækir myndefni sitt í íslensk- ar þjóðsögur enda ber sýningin nafnið ,,í tröllahöndum”. Sagði hann að fleiri skólar hefðu notfært sér tækifærið til að kynna börnum þetta efni sem ein- kennir svo mjög sögu þjóðar okkar. Sýningin er í Galleri Lækjartorg og stendur yfir til 29. nóvember. Það vantaði svo sannarlega ekki áhugann hjá þessum ungu sýningar- gestum hans Hauks Halldórssonar, er listamaðurinn leiddi þá inn í ævintýra- |heim 'tröllanna sinna. Gestirnir voru 6-9 ára börn úr Flata- skóla í Garðabæ sem lögðu í menning- arferð til miðbæjarins undir stjórn kennara sinna. Haukur spjallaði fyrst um inntak myndanna en siðan fengu börnin sjálf pappir og blýant i hönd og teiknuðu tröll undir leiðsögn hans. Þjóöskáldiö góða. Hinn mikli Hstamaöur bundins og óbundins máls. Almenna bókafélagið, Austurstræti 18, sími 25544. — Skemmuvegi 36, Kóp. Sími 73055 Tómas Guðmundsson-Rit I-X Ljóð I — Ljóð II — Ljóð III — Léttara hjal — Myndir og minningar — Menn og minni — Æviþættir og aldarfar I — Æviþættir og aldarfar II — Æviþættir og aldarfar III — Æviþættir og aldarfar IV. ALBERT- stóra trompið Reykjavík veröur að vinnast Inngangur Undirbúningur fyrir í hönd farandi kosningar til borgarstjórnar Reykjavíkur er kominn i fullan gang. Stjórnmálafiokkarnir hafa verið að ganga frá sinum prófkjörsreglum og nú um næstu helgi, sunnudaginn 29. nóv. og mánudaginn 30. nóv., gengur Sjálfstæðis- flokkurinn til prófkjörs. Prófkjörsreglur Það er söguleg staðreynd, að Sjálfstæðis- flokkurinn hefur ávallt fengið stuðning miklu stærri hl. kjósenda í Rvík í borgarstjórn- arkosningum en í alþingiskosningum. Ástæðurnar eru aðallega tvær. I. Reykvíking: ar hafa viljað að stjórn borgarinnar væri í höndum eins fiokks er bæri þar með einn á- byrgð á borgarstjórn. 1 2. lagi hefur Sjálf- stæðisflokkurinn ávallt átt á að skipa sér- staklega hæfum mönnum í embætti borgar- stjóra. Það hefur sést í þátttöku í prófkjörum Sjálfstæðisflokksins að í þeim hefur tekið þátt stór hópur fólks, sem er ekki flokksbundið í Sjálfstæðisfiokknum, en hefur tekið fegins hendi það tækifæri, sem boðist hefur til raunhæfs starfs, sem prófkjörið hefur boðið upp á, og á þann máta að leggja sitt lóð á metaskálarnar til þess að velja um, hvaða einstaklingar verði í forsvari fyrir flokkinn i borgarstjórn. Þessu frjálsa opna prófkjöri var illu heilli lokað nú. Öll vinnubrögð í kringum lokunina bera keim þess, að ekki sé sá friður og friðarvilji ríkjandi innan fiokksins í dag, sem menn voru að vona að heföi tekist á síðasta landsfundi. Afleiöingar prófkjörslokunar Reykjavik verður að vinnast. Þetta er sú dag- skipan, sem ganga verður út til allra borgara Reykjavikur, er vilja hag Reykjavíkur sem mestan og vilja losna við þann sambræðing og getuleysi sem við blasir nú eftir stjórnunar- tíma núverandi borgarstjórnar. Því má Sjálf- stæðisfiokkurinn ekki undir nokkrum kring- umstæðum aðhafast neitt það, sem hrint gæti stuðningsfólki frá sér. Ég fæ ekki séð, hvernig lokun prófkjörsins getur fært fiokknum 1 at- kvæði, en aftur á móti stuggar fiokkurinn með lokuninni fólki frá sér, sem finnst að það sé verið að taka frá sér réttindi sem voru byggð á frelsi og opnun á starfsemi stjórnmálaflokks. Þetta getur þýtt missi hundraða atkvæða, sem viö verðum þó að vona hið besta í sambandi við. Engar þær röksemdir, sem fram hafa verið færðar fyrir lokuninni finnst mér vera marktækar og koma til minnsta álits, þegar höfð er hliðsjón af neikvæðu hliðunum. Aftur á móti sé ég gægjast undan feldi þau öfl, er ekki vilja frið i flokknum og með lokuninni vilja koma höggi á þann einstaklinginn, sem breiðast hefur fylgið af frambjóðendum Sjálf- stæðisflokksins, sem náð hefur ekki eingöngu út fyrir lið flokksbundinna sjálfstæðismanna og til sjálfstæðismanna almennt, heldur hefur fylgi hans náð langt inn í raðir í flokkum and- stæðinganna. Ég persónulega þekki fjölda dæma, þar sem meira að segja mjög ákveðnir pólitískir andstæðingar hugmyndafræðilega hafa veitt Albert Guðmundssyni og Sjálf- stæðisflokknum brautargengi vegna þess trausts, er Albert vekur hjá öllum þeim er til hans þekkja eða til hans leita. Ef reynt er að meta stöðu Alberts upp innan Sjálfstæðis- fiokksins og stöðu hans meðal allra fram- bjóðenda til næstu borgarstjórnar Reykja- víkur frá sjónarmiði fjölmiðlafræði, er staðan sú, og bið ég nú alla að horfa í sjálfs sín hug, að þar er einn maður er stendur sér og fyrir ofan alla aðra, Albert Guðmundsson. Hann er þvi stærsta tromp Sjálfstæðisflokksins í næstu borgarstjórnarkosningum. Hann er það stóra og sérstæða, sem hinir flokkarnir eiga ckki. Að Sjálfstæðisflokkurinn beri gæfu til þess að bjóða upp á Albert Guðmundsson sem næsta borgarstjóra i Reykjavík er í raun for- senda fyrir því að Sjálfstæðisflokkurinn nái að endurheimta stjórn Reykjavíkurborgar. En það eru því miður ófriðaröfi innan Sjálfstæðis- flokksins, sem vilja fara aðrar leiðir í þessum málum. 1 þröngsýni sinni sjá þessi öfi ekki stöðu Alberts og Sjálfstæðisflokksins eins og stærsti hluti sjálfstæðisflokkskjósenda hefur litið þessi mál og sýnt í verki i undanfarandi prófkjörum. Hér getur verið i uppsiglingu óafturkallanlegt slys fyrir Sjálfstæðisflokkinn’ og borgara Reykjavikur. Aðeinseitt tilráða Því er aðeins eitt til ráða. Allir þeir, sem trúa og treysta Albert Guðmundssyni best til þess að leiða Sjálfstæðisflokkinn til sigurs i næstu borgarstjórnarkosningum og treysta Albert Guðmundssyni best til þess að bera höfuðá- byrgð á borgarmálefnum Reykjavíkurborgar á næsta kjörtimabili, allir þeir sjálfstæðismenn, sem líta á endurheimt Sjálfstæðisflokksins á Reykjavikurborg, sem grunninn að sameiningu og sigri Sjálfstæðisfiokksins i næstu alþingiskosningum, verða að veita Albert Guðmundssyni yfirburðafylgi í próf- kjörinu á sunnudag og mánudag nk. Ábyrgð meðlima Sjálfstæðisfiokksins er því meiri nú en áður. En allir þeir er undirrita beiðni um inngöngu í Sjálfstæðisfiokkinn um helgina á kjörstað hafa kosningarétt. Því skora ég sér- staklega á þá sjálfstæðismenn sem ekki eru flokksbundnir aðgerast nú flokksmeðlimir. Hið ótrúlega Nokkur undanfarin kvöld hefi ég verið að vinna að kosningu Alberts með þvi að hafa samband við fólk og kynna Albert og stöðu mála. Eftir þetta starf er fyrsta staðreynd, sem fyrir liggur, að allir þekkja Albert, Albert er orðinn húsgangur i orðtaki Reykvikinga. Staðreynd tvö, fólk blátt áfram trúir því ekki, að til greina komi, að Sjálfstæðisflokkurinn bjóði upp á slíkan mann til borgarstjóra i Reykjavík. Hinir aðilarnir eru blátt áfram ekki nógu þekktir, þótt allt megi gott um þá segja, og flestir munu verða i forustu í bæjar- og landsmálum fyrir Sjálfstæðisfiokkinn á næstu árum og áratugum, þá blátt áfram hafa þeir ekki haft tínia og lag á að kynna sig almenningi til þess að þeir nái þvi fjöldafylgi, sem borgarstjóraefni Sjálfstæðisfiokksins verður að hafa. Lokaorð Sjálfstæðisflokkurinn þolir blátt áfram ekki annað slys i viðbót við lokun prófkjörsins. lætta „annað slys” væri, ef sjálfstæðismenn væru nú ekki nægjanlega vökulir og tryggðu Albert ekki nægjanlega glæsta kosningu i prófkjörinu, létu slysið henda vegna einfaldrar vanrækslu. Það hefur verið sótt að hagsmunum Reykja- víkur i mjög auknum mæli á siðastliðnu kjörtimabili og þessi fjandskapur og ásókn heldur áfram, nú siðast skrefatalningin. Hlutur Reykjavíkur er í mörgum tilfellum kominn i mjög slæma stöðu borið saman við landsbyggðina. En við Reykvíkingar höfum eftir þvi tekið að á Alþingi sem annars staðar hefur Reykjavík ávallt átt traustan vörð i Albert, stundum hefur þetta gengið svo langt, að okkur hefur fundist að Reykjavik ætti aðeins einn málsvara á Alþingi. Þessi ásókn heldur áfram, þvi er meira i húfi nú en nokkurn tíma áður að til forustu i Reykjavík veljist stór og traustur einstaklingur eins og Albert. Því skora ég á alla sjálfstæðismenn sem vilja hlut Alberts, Sjálfstæðisflokksins og Reykja- vikurborgar sem mestan að leggja allt það er þeir mega af mörkum hjá vinum og vanda- mönnum og tryggja glaxilega kosningu Alberts og tryggja þar með framtiðargengi Sjálfstæðisflokksins og Reykjavíkurborgar. Pétur Guðjónsson. AUGLÝSING

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.