Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1981, Page 47

Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1981, Page 47
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 1981. 47 FOSTRU- MÁUÐ Á NESINU: iSÁTTAFUNDUR ’VERÐUR ÍDAG „Við erum ekki búnar að gefa nein svör ennþá og það verður ekki gert í dag. Við viljum fá lengri unhugsunar- frest. Málið er sem sagt í algjörri biðstöðu,” sagði forstöðukonan á barnaheimilinu Sólbrekku á Seltjarnar- nesi i viðtali við blaðið í gær. Að sögn Magnúsar Erlendssonar forseta bæjarstjórnar lagði stjórn for- eldrafélagsins þar hugmyndir fyrir Sigurgeir Sigurðsson bæjarstjóra að innritun á dagheimilið yrði framvegis ekki í höndum hans, heldur myndi for- stöðukona dagvistarheimilisins hafa umsjón með þeim til vorsins. Þá væri fyrirhugað að setja á stofn félagsmála- ráð, sem væntanlega tæki við þeim. Sagði Magnús ennfremur, að bæjar- stjórn hefði verið ákveðin i að hlíta fyrirmælum ráðuneytisins varðandi fjölda á barnaheimilinu. Hvort fóstrurnar hefðu ekki vitað um þá staðreynd málsins, þyrði hann ekki að fullyrða. Loks mun fyrirhugað að foreldra- samtökin veröi milligönguaðilar „embættismanna bæjarins og stofnunarinnar”, eins og Magnús komst að orði, og kvaðst hann fagna mjög tilurð samtakanna og starfi þeirra. Sagðist hann enn fremur vilja mótmæla því sem fram hefði komið um að „samskipti fóstra og meirihluta bæjarstjórnar hafi verið erfið og lítils skilnings gætt meðal bæjarstjórnar- manna á störfum fóstra.” Hvorki hann né aðrir bæjarstjórnarfulltrúar þekktu umræddar stúlkur, hvað þá að þeir hefðu rætt við þær. Kvað Magnús bæjarstjórnarfulltrúi vona einlæglega að allir sambúðarerfiðleikar heyrðu fortíðinni til. Samkvæmt upplýsingum blaðsins gera foreldrar á Nesinu sér nú þær vonir að fóstrurnar dragi at- vinnuumsóknir sínar, hjá Reykjavíkur- borg, til baka og haldi áfram störfum á barnaheimilinu. Bæjarstjórnin hefur fóstrum í dag, og þar verða málin boðað til fundar með foreldrum og væntanlega rædd til hlítar. -JSS hækka Bætur almannatrygginga til lifeyrisþega hækka nú um mánaða- mótin til samræmis við hækkun vísitölu og nýgerða kjarasamninga. Vísitöluhækkunin er 9.92% en önnur hækkun sem gildir frá 1. nóvember nemur 3.25%. Þó eru hér undanskilin tekjutrygging og heimilis- uppbót sem fá4% hækkun. Þetta þýðir að elli- og örorkulífeyrir einstaklings með tekjutryggingu og heimilisuppbót verður kr. 4095 krónur á mánuði, en 6.045 krónur fyrir hjón. Örorkubætur og lágmarks ellilíf- eyrir verða 1.679 krónur, barnalífeyrir 859 krónur og lágmarks mæðralaun verða 147 krónur. Sultartangi og Blanda Þegar smáfólkið er látið bíða lengi í bílnum eftir pabba og mömmu verður að gera sér eitthvað til dundurs. Þvíekki að nýta móðuna, sem safnast á rúðuna og teikna eða klessa nefinu á rúðuna. Ef foreldrarnir vilja ekki fingra- eða nefför á rúðum, þá er bara að strjúka slíkt af með rökum klút. -Mynd-Einar Ólason Trygg- ingabæt- urnar „Ef við mönnum okkur upp í að ráðast í verulega orkufrekan iðnað er nauðsynlegt að fleiri en ein virkjun sé í gangi samtimis,” sagði Eggert Haukdal alþingismaður í samtali við blaðið. í viðtali við Eggert i Dagblaðinu & Visi í gær var haft eftir Eggert að hann teldi hægt að vinna jöfnum höndum að virkjun við Sultartanga og Fljótsdal, en þarna átti að sjálfsögðu að standa Sult- artanga og Blöndu, Eggert sagði enn- fremur að virkjunarhraðinn ætti að sjálfsögðu að ákvarðast af því sem orkunýting gæfi tilefni til. -SG. Bómullargallar: mefl og án hettu. Verfl kr. 270-296. Peysur: Verð frá k: 68-80. Buxur (tvöfaldar) Verfl kr. 80.- Sokkar Körfuboltaskór Verfl kr. 50-65 veiurpeysur: Allar stœrflir Margir litir Verð kr. 135-247 Háskólabolir: Efni: 85% bómull 15% acryl Utir: grátt m/rauðum og bláum röndum Grátt m/svörtum og bláum röndum Verfl kr. 110-130 Svörvið fréttagetraun 1) Jóhunnu Egilsdóttir 2) Sjálfstæðisflokki 3) Rúnur Bjarnuson 4) Númer átta 5) Alfa-nefnd 6) Til að samþykkja sérslakt kvennaframboð í borgarstjórnar- kosningunum i vor í Reykjavik. 7) Þrettán 8) Joe Orton 9) Ein komma sjö milljónir (nýjar) 10) Anatoly Karpov 11) Danir 12) Auður Bjarnadóttir. Fótboltar Verfl kr. 130-587. < Handboltar Verflfrákr. 170-376 Körfuboltar Verflfrá kr. 158-670. Sportvöruverslun Mjúkt frottó: 90% bómull 10% nylon Margir litir Verfl kr. 360-428.50 Ingólfs Óskarssonar Klapparstíg 44 — Sími 11783 Veðrið Veðurspá dagsins Gert er ráð fyrir norðanátt og frekar nöpru veðri um land allt. Fremur verður þó bjart. Ekki er búist við hvassviðri um landið fyrir helgina. Þegar liða tekur á helgina má búast við að þykkni upp sunnan og vestan lands með austan átt. Ekki er þó Ijóst hvort úrkoma muni fylgja i kjölfarið. Annars staðar á landinu mun haldast bjart veður yfir helgina. Veðrið hér og þar Klukkan 18 27/11: Akureyri snjókoma 0, Bergen súld 4, Helsinki heiðskirt -8, Kaupmannahöfn rigning 7, Osló slydda -2, Reykjavík snjókoma 0, Slokkhólmur snjókoma O.IÞórs- Itöfn alskýjað 5. Aþena skýjað 10. Berlín rigning 6, Feneyjar heiðskirt 5, Frankfurt rigning 5, Nuuk heiðskírt 8, London heiðskírt 7, Luxemborg rigning 5, Las Palmas skýjað 21, Mallorka léttskyjað 14, París létt- skýjað 8, Róm léttskýjað 9, Mal- aga heiðskirl 16, Vín skýjað 2. Gengið 27. nóvember 1981 kl. 09.15 Eining kl. 12.00 Kaup Sala Sala 1 Bandarfkjadollar 8,156 8,180 8,998 1 Steríingspund 15,843 15,890 17,479 1 Kanadadollar 6,923 6,944 7,638 1 Dönsk króna 1,1369 1,1403 1,2543 1 Norskkróna 1,4195 1,4237 1,5661 1 Sasnskkróna 1,4935 1,4979 1,6477 1 Rnnsktmark 1,8867 1,8922 2,0814 1 Franskur franki 1,4529 1,4571 1,6028 1 Belg. franki 0,2181 0,2187 0,2407 1 Svlssn. franki 4,5737 4,5871 5,0458 1 Hollenzk florina 3,3488 3,3587 3,6946 1 V.-þýzkt mark 3,6664 3,6772 4,0449 1 ftötak Ura 0,00683 0,00685 0,00753 1 Austurr. Sch. 0,5223 0,5239 0,5762 1 Portug. Escudo 0,1264 0,1268 0,1394 1 Spán.kur pasati 0,0858 0,0861 0,0947 1 Japansktyen 0,03769 0,03780 0,04158 1 Irskt Dund 13,009 13,047 14,351 8DR (.Aratök 9,5556 9,5837 dráttanéttlndl) 01/09 Sfmsvari vegna gengUskránlngar 22190.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.