Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1981, Qupperneq 10
10
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 1981.
AUGLÝSING
Einstæðar æviminningabækur
HORFT TIL
LIÐINNA STUNDA
Eftir Þórarinn Þórarinsson
fyrrverandi skólastjóra á Eið-
um. Það er alþjóð löngu kunn-
ugt að Þórarinn er mikill
fræðaþulur og jafnframt
glettinn og spaugsamur. I bók
sinni segir hann frá kynnum
sínum af margskonar fólki
sem hann hefur hitt á lífsleið-
inni, meistara Kjarval jafnt
sem kotbændum og sannar
Þórarinn í bók sinni að hann
hefur haft næmt auga fyrir
því sem var að gerast í kring-
um hann og frásagnarlistin
bregst honum ekki. Bókin er
prýdd fjölda mynda og teikn-
inga.
SJÓMANNSÆVI
Eftir Karvel Ögmundsson.
Karvel erlöngu landsþekktur
aflaskipstjóri og dugmikill út-
gerðarmaður, en hann man
sannarlega tímana tvenna. 11.
bindi æviminninga sinna segir
Karvel frá uppvaxtarárum
sínum á Snæfellsnesi og hin-
um kröppu kjörum sem öll al-
þýða bjó þá við. Hann hefur
frá mörgu að segja og saga
hans er jafnframt spegill af
baráttu Islendinga frá erfiði
og örbyrgð til velsældar.
Brugðið er upp sterkri og
skýrri mynd af atvinnuháttum
og lífi fólks á fyrstu áratugum
•aldarinnar.
ÞÁLÆTÉG
SLAG STANDA
Saga ævintýramannsins Lofts
Einarssonar í Höfnum skráð
af Magnúsi Bjarnfreðssyni.
Fáir núlifandi íslendingar
hafa lifað öðru eins ævintýra-
lífi og Loftur, en segja má að
ævintýrin hafi komið til hans,
þegar hann þá leitaði þeirra
ekki. Þótt Loftur hafi gjarnan
viðurnefnið „ríkiu þá hefur
það ekki alltaf átt við. Hann
velti sér einn daginn upp úr
peningum og heimsins lysti-
semdum, en hinn næsta svaf
hann örsnauður á bekkjum í
almenningsgörðum. En það
var sama á hverju valt. Loftur
lét einfaldlega slag standa og
hafði ekki teljandi áhyggjur af
morgundeginum.
Jón BjaraasímFm gwbsvík
Bændur
afltÍott
BÆNDUR SEGJA
ALLT GOTT
Bókaverð
Verð útgáfubóka Arnar og Örlygs hf. er sem hér segir:
Verð kr.:
Bændur segja allt gott........279,00
Charles Darwin................247,00
Djúpið........................216,00
220 gómsætir sjávarréttir.....345,80
Horft til liðinna stunda......340,00
Hvað gerðist á íslandi 1980...469,00
Jörvagleði ...................247,00
Landið þitt — ísland ........ 672,00
Líf í ljóma frægðar
(bæði bindin)............. 296,40
Sagan um Þráin ...............239,00
Sjómannsævi ..................340,00
Stóra bomban ................ 296,40
Sumarblóm í Paradís...........234,65
Togaraöldin...................592,80
Vigdís forseti - President Vigdís 268,50
Þá læt ég slag standa.........296,40
Þjóðsögur og þættir úr Mýrdal.. 248,00
Þrautgóðir á raunastund....... 283,00
Binni bóndi og drekinn ógurlegi . 74,10
Fótboltafélagið Falur á Islandi . 59,30
Gegnum holt og hæðir.........148,20
Hreyfimyndabókin Dýrin ...... 49,40
Hreyfimyndabókin Hljóðin .... 49,40
OliverTwist................ 59,30
Rasmus Klumpur og uppskeran . 24,70
Rasmus klumpur og kappsigling
í furðuheimi ............. 24,70
Rasmus klumpur smíðar skip .... 24,70
Rasmus klumpur skoðar
pýramída.................. 24,70
Tíu litlir indíánar ......... 59,00
Það er gaman að telja........ 74,10
Gegnum holt og hæðir -
hljómplata og snælda ........168,00
Eftir Jón Bjarnason frá
Garðsvík. Tvær fyrri ævi-
minningabækur Jóns: Bænda-
blóð og Hvað segja bændur
nú? hlutu mjög góðar viðtökur
bæði gagnrýnenda og almenn-
ings, enda hefur fyrrum
Garðsvíkurbóndi einkar lipran
penna og létta lund og kann að
segja þannig frá'' ævikjörum
íslenskra bænda og bænda-
menningu að bækur hans
geymast en gleymast ekki. í
hinni nýju bók sinni fatast
Jóni hvergi flugið, er hann
segir frá lífshlaupi sínu og
sveitunga sinna.
VIGDÍS FORSETI
Bókin Forsetakjör 1980 er út kom
í fyrra seldist upp á skömmum
tíma. Bókin er nú endurútgefin, og
hefur verið aukin og endurbætt.
Kemur hún bæði út á íslensku og
ensku. Nefnist íslenska útgáfan:
Vigdís forseti — Kjör hennar og
fyrsta ár í embætti, en útgáfan á
ensku heitir: President Vigdís —
Her Election and First year in
Office. í bókinni er frásögn af
fyrsta starfsári Vigdísar í forseta-
embættinu og fjölmargar myndir
frá ferðalögum hennar, heima og
erlendis. Kjörbók til þess að senda
vinum og viðskiptamönnum er-
lendis.
Tvær góðar bækur í bókaklúbbi
Eins og flestum mun kunnugt var Bókaklúbbur Arnars og Örlygs nýlega stofnaður. Tvær
fyrstu bækurnar 5 klúbbnum voru: Víkíngar í stríði og friði eftir hinn þekkta rithöfund og
sjónvarpsmann Magnús Magnússon og skáldsagan Björt mey og hrein eftir ungan höfund,
Guðberg Aðalsteinsson. Þessar bækur eru einungis seldar klúbbfélögum, en allir þeir sem eru
orðnir lögráða geta gerst klúbbfélagar. Er tekið á móti skráningum í klúbbinn í síma 84866.
SAGAN UM ÞRÁIN
Eftir Hafliða Vilhelmsson,
höfund bókanna „Leið 12
Hlemmur-Fell“ og Helgarlok.
Sagan um Þráin fjallar um
mann sem mótaður er af um-
hverfi sínu og venjum. Bak
við skelina býr persóna búin
mörgum eðlisþáttum sem
togast á og eiga í innbyrðis
styrjöld. Hvað gerist svo
þegar viðjarnar bresta? Sag-
an um Þráin er nútímasaga
— átakasaga og eins og áður
nálgast Hafliði viðfangsefni
sitt tæpitungulaust og fær
lesandann til að hrífast með
sér og taka þátt í átökunum
með söguhetjunni.
JÖRVAGLEÐI
Eftir Guðmund Halldórsson
frá Bergsstöðum. Guðmund-
ur er löngu landsþekktur rit-
höfundur, bæði fyrir smásög;
ur sínar og skáldsögur. I
hinni nýju sögu Guðmundar
er undirtónninri hið við-
kvæma deilumál sem nú er
ofarlega á baugi á íslandi,
stórvirkjanamálin og allt
það umrót er þeim fylgir.
Jafnframt segir svo Guð-
mundur frá Jörvagleði nú-
tímans, þegar fólk slær tjöld-
um við félagsheimilið pen-
ingahelgina miklu og unir
þar um stund við gleðskap og
glaum.
SUMARBLÓM
í PARADÍS
Eftir Snjólaugu Bragadóttur
frá Skáldalæk. Fyrri bækur
Snjólaugar hafa fengið mjög
góðar viðtökur ,og hún oft
verið í hópi mest seldu höf-
undanna. Sumarblóm í Para-
dís fjallar um unga Reykja-
víkurstúlku sem stendur á
tímamótum í lífi sínu í upp-
hafi bókarinnar. Örlögin
haga því þannig að hún verð-
ur þátttakandi í ævintýri sem
gerist í Breiðafjarðareyjum,
en þar hefur verið komið upp
sumarhóteli — sumarpara-
dís. Örlaganornirnar spinna
hinni ungu stúlku vef sinn og
margt fer á annan veg en
ætlað var.
Gegnum holt og hæðir
Eftir Herdísi Egilsdóttur.
Gullfallegt ævintýri um
krakka, fullorðið fólk, tröll-
skessu, tröllastráka og álfa.
Bókin er myndskreytt af
Herdísi. Jafnframt er komin
út samnefnd hljómplata með
lögum og ljóðum Herdísar.
Ragnhildur Gísladóttir sá um
útsetningu laganna, en fjöl-
margir listamenn koma við
sögu við flutning laganna.
ÖRN&ÖRLYGUR
Síöumúla 11, sími 84866
BÓKAÚTGÁFAN ÖRN
OG ÖRLYGUR H/F,
SÍÐUMÚLA 11, SÍMI 84866