Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1981, Blaðsíða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1981, Blaðsíða 37
DAGBLAD1D& VÍSIR. LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 1981 37 Tilkynningar Kveikt á jólatré í Hafnarfirði Fyrir hverja jólahátið í tæpa þrjá áratugi hafa íbúar Frederiksberg vinabæjar Hafnarfjarðar i Danmörku gefið Hafnfirðingum jólatré. Bæjarstjórn Frederiksberg hefur nú sent veglegt tré, sem komið hefur verið fyrir á Thorsplani við Strandgötu. Ljós verða tendruð á jólatrénu kl. 16.00 sunnu- daginn 13. desember nk. Danski sendiherrann, Janus Paludan, afhendir tréð og dönsk stúlka kveik- ir Ijósin á því. Einar I. Halldórsson bæjarstjóri veitir trénu viðtöku. Við athöfnina leikur Lúðrasveit Hafnarfjarðar og Karlakórinn Þrestir syngur jólalög. Jólasveinar í Hafnarfirði Laugardagana 12. og 19. des mun JC Hafnarfjörður standa fyrir skemmtun um allan Hafnarfjörð. Ekið verður á 5—6 vörubílum um öll hverfi bæjarins með lögregluna í broddi fylkingar. Á vörubilunum verða jólasveinar, Grýla og Leppalúði. Fyrirhugað er að stoppa á 8 stöðum víðs vegar um bæinn og mun hljómsveitin Dansbandið leika jólalög og jólasveinarnir syngja meö, og gefa börnum sælgæti. Um leið og ekið verðum um hverf- in munu jólasveinarnir kynna verzlanir og fyrirtæki 1 bænum sem vilja taka þátt í þessari skemmtun, jafn- framt sem þeir munu spila jólalög (þessi kynning fer fram gegnum hátalarakerfi). Á hliðum vörubilanna verða hengd stór auglýsingarspjöld sem minna Hafnfirðinga á hinar ýmsu verzlanir i bænum JC Hafnarfjörður hefur gengizt fyrir miklum áróðri í þá átt að hvetja Hafnfirðinga til að verzla allt til jól- anna i Hafnarfirði. í þessu sambandi hefur JCH gef- ið út og hengt upp i allar verzlanir i bænum miöa sem ástendur: „HAFNFIRÐINGAH GERMJ JÚUINNKAUPIN iHAFNARfíROI" Síðan 1978 hefur JC Hafnarfirði gefið út Jóla- gjafahandbók sem inniheldur frekari kynningar á verzlunum með auglýsingum o.fl. Mælzt er til þess aö forcldrar taki börn sín með sér í verzlunarleiöang- urinn laugardagana 12. og 19. des. á milli kl. 13.30 og 17.00 og lofi þeim að sjá jóiasveinana koma i bæ- inn i fyrsta skiptið i ár. Jólamarkaður Goðatúni 2 viö Hafnarfjarðarveg I sömu byggingu og Blóma- búöin Fjóla. Opið alla daga vikunnar frá kl. 13.00. Hafnarfjarðarkirkja Jólavaka við kertaljós kl. 20.30 sunnudagskvöld, Háskólakórinn syngur undir stjórn Hjálmars H. Ragnarssonar. Sigurður Magnússon rithöfundur fiytur ræðu. Einleikur á selló, cinsöngur og fleira. Sóknarprestur og sóknarncfnd. Verk Picasso í Gagnfræða- skólanum á Akureyri „Guernica”, eitt frægasta verk Picassos, Ijósprent- un í upprunalegri stærð, verður til sýnis i Gagn- fræðaskólanum á Akureyri ásamt skissum af þessu verki og ljóðmyndum er sýna þróun og tilurð þess. Sýningin var áður i Listasafni Alþýðu og er nú kom- in til Akureyrar fyrir tilstuðlan nemcnda og kennara Myndlistarskólans á Akureyri. Sýningin verður opin 11.—16. desember, virka daga frá kl. 20—22 en laugardaga og sunnudaga frá kl. 14—22. Fólagar úr Alþýðuleikhúsinu f jólasveinabúning Eins og undanfarin ár fara nú félagar úr Alþýðuleik- húsinu aftur á kreik i jólasveinaklæðum. Þeir hafa samið og æft að undanförnu prógramm meö ýmis- konar sprelli og uppátækjum. Ef fólk hefur áhuga á að fá jólasveinana á jólaböllin sín getur það leitað frekari upplýsinga í simum 19567 og 20050. Jóla- sveinarnir senda öllum sinar beztu kveðjur. IMæsti fræðslufundur Fugla- verndarfólags íslands verður haldinn i Norræna húsinu þriöjudaginn 15. desember 1981 kl. 8.30. Fundarefni: 90 minútna mynd um Galapagoseyj- arnar i Kyrrahafi, um fugla og dýralíf þar. önnur mál. öllum heimill aðgangur. Stjórnin. Bifreiðaíþróttaklúbbur Reykjavíkur heldur rally-cross keppni á is á Leirtjörn við Úlfars- fell i dag, laugardag, 12. desember kl. 13.30. Perusala Lions Fyrir jólin munu félagar úr Lionsklúbbnum Baldri selja ljósaperur i miöborg Reykjavikur, eins og und- anfarin ár. Ágóðanum af perusölunni er varið til aðstoðar við aldraða og hefur féð einkum farið til kaupa á ýms- um búnaði fyrir Hrafnistuheimilin. Baldursmenn treysta þvi að samborgaramir kaupi Lionsperur og sýni með þvi skilning á þörfinni fyrir aðstoð við aldraða. Meðfylgjandi mynd er tekin þegar nokkrir Baldursfélagar afhentu forráðamönnum Hrafnistu- heimilanna sjúkrarúm að gjöf. Frá Vélprjónasambandi ís- lands Markaður með ýmsar prjónavörur sem félagar i Vél- prjónasambandinu hafa gert verður opnaður að Hallveigarstöðum sunnudaginn 13. desember kl. 13.00. Opið til kl. 18.00. Aðeins opið þennan eina dag. Basar: Islenzka íhugunarfélagið heldur basar aö Hverfis- götu 18, annarri hæð, gegnt Þjóðleikhúsinu, sunnu- daginn 13. desember kl. 14.00, á boöstólum verða m.a. þurrkaðir blómvendir, kökur, alls konar handavinna og margt fleira. Jólavaka við kertaljós í Hafnar- fjarðarkirkju Þriðja sunnud. í Aðventu, 13. des., kl. 20.30 verður hin árlega Jólavaka við kertaljós haldin i Hafnar- fjaröarkirkju. Nú sem endranær verður vakan með fjölbreyttu sniöi og mjög til hennar vandaö. Aðventukvöld í Laugarneskirkju Sunnudaginn 13. des. kl. 20.30 veröur aðventu- kvöld I Laugarneskirkju. Biskup íslands, herra Pétur Sigurgeirsson verður ræðumaöur kvöldsins. Belcanto-kórinn úr Garða- bæ syngur undir stjórn Guðfinnu Dóru Ólafsdóttur. Kórinn fiytur Kantötuna: Lobet Christen eru en Heiland eftir Buxtehude og nokkur jólalög. Undir- leikarar með k'órnum veröa Sigrún Eðvaldsdóttir, Hildigunnur Halldórsdóttir og Sigurður Halldórs- son ásamt organista kirkjunnar Gústaf Jóhannes- syni sem einnig leikur einleik. Upplestur annast Pálmi Hjartarson kennari og börn úr barnastarfi Laugarncskirkju flytja helgileik undir stjórn Margrétar Hróbjartsdóttur safnaðarsystur. Sam- komunni lýkur með almennum safnaðarsöng. Helgihald þessa dags verður aö öðru leyti með hefðbundnu sniði þ.e. barnaguðsþjónusta kl. 11 og messa kl. 14. Dansklúbbur Heiðars Ástvaldssonar Jólagleðin verður laugardaginn 12. des. að Brautar- holti 4 og hefst kl. 21.00. Jólamatur og ýmislegt til skemmtunar. Ferðalög Ferðafélag íslands Dagsferð sunnudaginn 13. des. kl. 11. Gengið verður um Lágaskarð að Stóra Sandfelli ( 424 m). Fólk er beðið að athuga að búa sig vel I gönguferðina. Fararstjóri: Hjálmar Guðmundsson. Farið frá Umferöarmiðstöðinni, austanmegin. Farmiðar við bíl. Verð kr. 50.- Ath. Engin ferð kl. 13. Áramótaferö i Þórsmörk 31. des.—2. jan.; brottför Id. 07. Gönguferðir eftir þvi sem birtan leyfir.’áramóta- brenna, kvöldvökur. Ef færð spillist svo, að ekki yrði unnt að komast i Þórsmörk, verður gist í Hér- aösskólanum að Skógum. Upplýsingar og farmiðasala á skrifstofunni, öldu- götu 3. Útivistarferðir Sunnudagur 13. desember kl. 13.00 Geidinganes. Létt ganga fyrir alla, 40 kr., fritt fyrir börn með full- orðnum. Farið frá BSÍ vestanverðu. Nýársferð i Þórsmörk, 1.—3. janúar. II. Tveir hátaiarar, viðrrrkassi: Tðpphljómgífði, ekkerr glamur. TTT -,lT"-*"n“t4Tverá"videosendiíigu stéfi'dur.^ ' Húsavík: Bókaversl. Þórarins Stefánssonar á J| . &Sóku,ERadS“ií'1|jSWnuStan J ...............:................................— ----------------------—■----:---——-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.