Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1982, Side 3
3
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MÁNUDAGUR 1. MARZ 1982.
Hollendingarnir tveir, Pieter J. Nieuwland og Jan Jaarsveld. við litlu fsvélina sem
þeir hafa sett upp til sýnis úti í örfirisey. (DV-mynd EÓ)
ÍSVÉL SEM KEMST
í MINNSTU BÁTA
Sjálfstæðismenn á Akureyri uggandi:
DREGUR FLOKKURINN
HLUTAFÉ SJALLANS
TIL REYKJAVÍKUR?
Þórður Gunnarsson og fleiri
einstaklingar hafa gert tilboð í hluta-
fjáreign Sjálfstæðisflokksins i Akri
hf., en það félag á og rekur Sjálf-
stæðishúsið á Akureyri, sem
fiokkurinn vill ganga að þegar
formsatriðum hefur verið fullnægt,
eins og fram hefur komið í DV.
Þórður Gunnarsson staðfesti þetta
í samtali við blaðið, en vildi ekki tjá
sig um það frekar á þessu stigi, sagði
of marga enda lausa enn til að það
væri hægt. Sagði Þórður, að það
vekti fyrir sér að endurbyggja
skemmtistað í Sjálfstæðishúsinu, en
hann sagðist ekki vita um vilja ann-
arra sem að tiiboðinu stæðu, en það
væru a.m.k. 10—12manns.
Rúmtega helmingur hlutafjár í
Akri hf. er í höndum Sjálfstæðis-
flokksins, fulltrúaráðs flokksins á
Akureyri, kjördæmisráðs í Norður-
landskjördæmi eystra og einstaka
sjálfstæðisfélaga nyrðra. Samkvæmt
samtölum DV við forystumenn
flokksins nyrðra óttast þeir að
flokkurinn komi til með að draga
þetta fé til Reykjavíkur eftir að hluta-
bréfin eru seld. „Það er lítið hægt um
það að segja á þessu stigi. Þetta fé
kemur til með að skiptast milli þess-
ara aðila samkvæmt hlutafjáreign
hvers og eins, hvernig sem þvi verður
svo ráðstafað. En þaðer stefnt að þvi
að flokkurinn eignist húsnæði undir
starfsemi sína á Akureyri,” sagði
Kjartan Gunnarsson, framkvæmda-
stjóri Sjálfstæðisflokksins í samtali
við blaðið.
Samkvæmt upplýsingum Björns
Jósefs Arnviðarsonar, formanns full-
trúaráðs Sjálfstæðisflokksins á
Akureyri, hafa sjálfstæðismenn
nyrðra ákveðið hús í huga. Er það
Ráðhústorg 5, þar sem Sport- og
hljóðfæraverzlun Akureyrar hefur
verið til húsa, en á efri hæðum húss-
ins hafa verið íbúðir. Er það
hugmyndin að hýsa þar starfsemi
flokksins, jafnframt því sem húseign-
in gæfi leigutekjur til að standa undir
eigin rekstri. Núverandi eigandi
húseignarinnar er Ágúst Ólafsson.
Mun þessi hugmynd hafa verið
viðruð við hann. Hvort úr verður
kemur í ljós þegar og ef úr sölu hluta-
bréfanna í Akri hf. verður. -GS
Að undanförnu hafa dvalið hér tveir
Hpllendingar' á vegum fyrirtækisins
Nonni h/f á Grandagarði við að setja
upp og kynna nýja ísvél, sem ætluð er í
báta.
Koma þeir frá Promac í Hollandi en
það fyrirtæki sérhæfir sig m.a. í smíði
ísvéla. Þessi vél sem þeir eru með hér er
frábrugðin öðrum að mörgu leyti. Hún
er afkastamikil en tekur samt mjög lítið
pláss og má því hæglega koma henni
fyrir í minnstu skipum.
Margir útgerðarmenn eru spenntir
fyrir þessari vél af þeim sökum. Telja
þeir að litlar ísvélar verði komnar í alla
báta á næstu tveim til þrem árum og
þess betra því fyrirferðarminnisem þær
eru.
-klp-
Áfengi og
tóbak hækkar
um 10 pró-
sent í dag
Enn hækkar áfengi og tóbak og að
þessu sinni um 10 prósent, en hækkun-
in tekur gildi í dag.
Er hækkunin sú sama yfir alla linuna,
það er að segja 10 prósent hækkun á
sterkum drykkjum, léttvíni og tóbaki.
Vegna verðhækkananna verða allar
útsölur Áfengis- og tóbaksverzlunar
ríkisins lokaðar í dag.
- KÞ
Skipafréttir
lesnaráný
Útvarpsráð hefur ákveðið að láta
aftur taka upp lestur skipafrétta í út-
varpinu. Þessum lestri var hætt fyrir
nokkrum vikum og olli sú ákvörðun
mikilli óánægju margra. Að athuguðu
máli þótti því rétt að veita þessa þjón-
ustu áfram.
- SG
Vestmannaeyjar:
Aðstoðvið ný
fyrirtæki
Bæjarstjórn Vestmannaeyja er nú að
kanna möguleika á nýjungum í at-
vinnulífi kaupstaðarins. Stendur til að
bæjarsjóður byggi upp húsnæði og
leigi síðan, eða bjóði til kaups,
húsnæðið á góðum kjörum til þeirra er
vilja setja upp fyrirtæki í Eyjum.
„Okkur finnst atvinnulifið full ein-
hæft eins og þaðer nú,” sagði Sigurður
Jónsson, bæjarstjórnarmaður og for-
maður þeirrar nefndar sem hefur með
þessi mál að gera i samtali við DV.
„Því langar okkur til að gera könnun á
þessu og leggjum áherzlu á iðngreinar
sem ekki eru fyrir hendi í Vestmanna-
eyjum núna.”
- KÞ