Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1982, Síða 2
ANTIK
GALLERY
Miðbæ
SÍMi 35997
HÁALEITISBRAUT
58-60
Úrval aforiginal
ANTIK-húsgögnum
ogýmsum munum
ÚtxkoHnn ttóM
MliðW
ÚtMkortnn xkipur
frén.öU
SÝNING
UM
HELGINA
kí 10-4
laugardag og
sunnudag
Gagnleg nýj-
ung borgar
stjórnar
Reykjavíkur
DAGBLAÐIÐ & VlSIR. LAUGARDAGUR 3. APRÍL 1982.
LKynningarblað
fum skipulagsmál
—verður dreift í hvert hús á næstu dögum
Borgarstjórn Reykjavíkur hefur látiö
útbúa sirstakt kynningarblað um
skipulagsmál i Reykjavik sem borið
verður i hvert hús i borginni á næstu
dðgum. Kynningarblaðiö er unnið sam-
kvæmt ákvörðun borgarráðs sem stað-
fest var i borgarstjórn 2. júlí á síðasta
ári.
Umsjón með útgáfu blaösins var í
höndum Egils Skúla Ingibergssonar
borgarstjóra, Þórðar Þorbjamarsonar
borgarverkfræðings, Guðrúnar Jóns-
dóttur forstöðumanns Borgarskipu-
lagsins og Gunnars Eydal skrifstofu-
stjóra. í blaðinu er lögð áherzla á kynn-
ingu svonefndra austursvæða en auk
þess er getiö um helztu ákvarðanir nú-
verandi borgarstjórnar i skipulagsmál-
um. Dreifing upplýsinga um skipulags-
mál til almennings meö þessum hætti er
nýjung af hálfu borgaryfirvalda. Taldi
Guðrún Jónsdóttir að meö þessum
hætti væri unnt að ná til' enn fleiri
borgarbúa en með skipulagssýningum
eins og borgarstjórn hefur áður gengizt
fyrir. Taldi hún að með þessum hætti
Lokaátakiö í
Happdrætti SÁÁ
”Undirtektir þeirra 70 þúsund
kvenna sem fengu senda happdrættis-
miöa SÁÁ hafa verið mjög góðar og
stór hluti þessa hóps hefur greitt mið-
ana fljótt og vel,” sagði Gísli Lárusson
i happdrættisnefnd SÁÁ í stuttu spjalli
við blaðið.
Dregið verður 7. april í happdrætt-
inu og nú stendur lokaátakið yfir. Níu
bílar eru í vinning, sjö Colt, einn Saab
Turbo og einn Opel Ascona.
„Efnt er til þessa happdrættis vegna
þess að nú ætlar SÁÁ að ráðast í þá
stórframkvæmd aö byggja nýja
sjúkrastöð. Við getum ekki verið öllu
lengur að Silungapolli, þar sem viö
fengum inni til bráðabirgða og ekki
hægt að standa í sffelldum flutningi
milli leiguhúsa. Byggð veröur 60 rúma
sjúkrastöð og borgin úthlutaði okkur
lóð undir hana við Grafarvog.
Framkvæmdir hefjast i vor og við ætl-
um að flytja inn fyrir árslok. En þetta
hefst ekki nema með sameiginlegu
átaki allra landsmanna og við treystum
því að almenningur leggi okkur gott lið
nú sem áður,” sagði Gisli Lárusson.
-SG
Lumenitn
CITRÖEN
GSogCX
nýjar fréttir
fyrir þá mörgu sem beöið hafa. Nú eigum viö líka
platínulausan kveikjubúnaö frá LUMENITION í
kveikjur meö kasettuplatínum.
Bætir stórlega gangsetningu og gangöryggi í
slyddu og hríö.
Ennfremur í mótorhjól.
HONDA — KAWASAKI — SUSUKI
sem breytir þeim í raunveruleg 9*®
tryllitæki.
HABERG hf
Skeifunni 3e. Sími 84788
mætti vekja áhuga fleira fólks á um-
hverfi sinu og hugsanlega næsta skrefi í
þessum málum verið að kynna þær
skipulagshugmyndir sem ekki hefðu
verið teknar endanlegar ákvarðanir
um.
Minnihluti borgarstjórnar hefur
gagnrýnt þessa útgáfu og sagt að hér
væri um að ræða kosningaáróður.
EgiU SkúU Ingibergsson sagði hins
vegar að þessi útgáfa hefði verið ákveð-
in siðasta sumar og hefði verið ráð fyrir
því gert að blaðið kæmi út miklu fyrr.
Kópavogur:
Páskamarfcaður
■ dag
í dag, kl. 14,00, mun Hjúkrunar-
heimUi aldraðra í Kópavogi halda
markað í anddyri hjúkrunarheimUis-
ins að Kópavogsbraut 1. Þar verður
til sölu ýmislegt, sem heimUinu hefur
verið gefiö tU fjáröflunar, s.s. nýr
fatnaður, nýbakaðar kökur til pásk-
anna, ýmislegt föndur o.fl., o.fl. Nú
er verið að leggja áherzlu á síðasta
áfanga í hjúkrunarheimUinu áður en
það verður tekið i notkun. Það er því
afar mikUvægt að ná fjármagni til
þessara lokaframkvæmda, þar sem
margir bíða nú eftir að komast inn í
heimUið og njóta þeirrar aðhlynn-
ingar, sem þar verður. Við vonumst
til að sjá sem flesta velunnara
hjúkrunarheimilisins á páskamarkaði
þessum, svo takast megi að opna á
tilsettum tíma.
íbúasamtök
vesturbæjar:
Fulltrúum
framboða
boðiðáfund
íbúasamtök vesturbæjar syðri
gangast fyrir félagsfundi á laugar-
daginn kemur, þ. 3. apríl, í Tjarnar-
bæ. Fundurinn hefst kl. 14.
Barnakór Melaskólans mun syngja
og fulltrúum framboðsflokkanna í
Reykjavík hefur veriö boðið að
ávarpa fundarmenn. Að sögn Odds
Benediktssonar, formanns íbúasam-
takanna hefur þeim Davið Oddssyni,
(Sjálfstæðisfl.), Guðrúnu Jónsdóttur
(Kvennaframboð) Kristjáni
Benediktssyni (Framsókn), Siguröi
E. Guömundssyni (Alþýðuflokki) og
Sigurjóni Péturssyni (Alþýðubanda-
lagi) verið boðið sérstaklega til þessa
fundar.
Þroskahjálpá
Suðurnesjum
með opið hús
Þroskahjálp á Suðurnesjum tekur
formlega í notkun um helgina ný-
byggingu félagsins að Suðurvöllum 9
í Keflavík og verður opið hús laugar-
dag og sunnudag klukkan 14—17.
Húsið er 204 fermetrar að stærð,
svokallað einingahús, og byggt fyrir
framlag úr Framkvæmdasjóði
þroskaheftra og öryrkja, úr Erfða-
fjársjóði og fyrir eigið fé félagsins.
Þá var og tekiö lán úr Erfðafjársjóði.
í húsinu verður endurhæfingastöð og
leikfangasafn, auk þess sem aðstaða
er til félagsstarfsemi. Rekstrarstjóri
hins nýja húss er Ásta Björnsdóttir.
_________________ —KÞ.
DV-BÍÓ
Arabískt œvintýri, gaman-
mynd í Iftum meö ísfenzk-
um toxta, veröur sýnt í DV
bfói 6 morgun kfukkan 13 í
Ragnboganum.
En vinnsla þess hafi tekið meiri tima en
áætlað var i upphafi og því sé það til-
viljun að það komi út svo skömmu fyr-
ir kosningar. Sagði hann að ekki hafi
þótt stætt á því, eftir að búið var að
leggja svo mikla vinnu í verkið, að
hætta nú við. Auk þess sé hér aöeins
um að ræða upplýsingar sem unnar séu
upp úr opinberum heimildum af em-
bættismönnum borgarinnar.
Kostnaður við útgáfu kynningar-
blaðsins var áætlaður, í janúar sl., um
150þúsund krónur.
ÓEF.
SLÖKKVILIÐ
5-11-00
LEIGUBILL
5-1666
J.C.
GARÐAR
J.C. Garðar:
Öryggiáheimilinu
Öryggi á heimilinu. I dag, laugar-
daginn 3. apríl, munu félagar í J.C.
Görðum í Garðabæ afhenda límmiöa
með símanúmerum lögreglu, slökkvi-
liðs og leigubils á öll heimili í
bænum. Svo eftir þessa helgi verða
þessir miðar á öllum símum í
Garðabæ. Með miöunum fylgja
upplýsingar um ýmis atriði sem
stuölað geta að auknu öryggi á
heimilinu. Fyrsta „umslagið” var
afhent forseta bæjarstjórnar, 1.
apríl.
Fella- og Hólahverf i:
Skóflustungaað
kirkjubyggingu
Fyrsta skóflustunga að kirkjubygg-
ingu fyrir Fella- og Hólahverfi verður
tekin á morgun klukkan 15.15.
Kirkjan kemur til meö að standa
við Hólaberg gegnt EUiöaárdalnum.
Verður kirkjuskipiö og safnaðar-
heimilið samtals um 900 fermetrar að
grunnfleti. Arkitektar eru þeir Gylfi
Guðjónsson og Ingimundur Sveins-
son, en þeir unnu til fyrstu verðlauna
er efnt var til samkeppni um teikn-
ingu að kirkjunni. Verkfræðingur er
Jón B. Stefánsson og bygginga-
meistari Haraldur Sumarliðason.
—KÞ.
Martin Berkofsky
með píanótónleika
á Norðurlandi
Martin Berkofsky, einn af fremstu
túlkendum á píanótónsmfðum Franz
Liszt, heldur tónleika í Borgarbíói á
Akureyri í dag, laugardag, og hefjast
þeir klukkan 15. Á morgun leikur
hann í félagsheimili Aðaldælinga og
hefjast þeir tónleikar klukkan 16. Á
efnisskránni verða verk eftir Liszt,
Beethoven og Ogden.
Ágóðinn af tónleikunum á Akur-
eyri rennur í styrktarsjóð nemenda
við tónlistarskólann þar í bæ.
Berkofsky mun og i þessari
íslandsferð sinni leiöbeina á nám-
skeiði fyrir nemendur og kennara
bæði við Tónlistarskólann á Akur-
eyri og í Kópavogi.
-KÞ.