Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1982, Síða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1982, Síða 33
PAGBLAÐIÐ & VtSIR. LAUGARDAGUR 3. APRÍL 1982. 33 Menning Menning Menning Menning Nú fer senn að ljúka yfirlitssýningu á verkum eftir Ragnheiði Jónsdóttur Ream, sem staðið hefur yfir að Kjarvalsstöðum. Ef marka má heimildir i sýningarskrá hóf Ragnheiður seint eiginlegt listnám. Það var i The American University.WashingtonD.C. U.S.A. árið 1954, og stundaði hún þar nám til 1959. Listakonan hélt einar 9 einkasýningar og tók þátt i fjölda samsýninga bæði hér heima og erlendis þar sem hún var búsett um árabil. Ragnheiður Jónsdóttir Ream fæddist 10. sept. 1917 og andaðist 22. des. 1977. HJótur þroski. Þó svo ferill listakonunnar hafi byrjað fremur seint, er það greinilegt, eftir að hafa skoðað sýninguna að Kjarvalsstöðum, að hún hefur náð list- rænum þroska á óvenju skömmum tima. Ljóst er að Ragnheiður kunni að tileinka sér myndmál amerfsku expression-abstract málaranna, sem voru i algleymingi um það leyti er hún hóf listnám. En þó svo listakonan hafi nýtt sér ytra útlit New-York skólans, þá er myndhugsun Ragnheiðuar gjöróUk þeim amerisku og forsenduna að hennar málverki er fyrst og fremst, að finna í islenzku landslagi. Ef við Utum á ritgerðir eftir banda- ríska gagnrýnandann H. Rosenberg um ameriska expressionismann, sjáum við að New-York skóUnn var gjörsamlega abstract mynd-fyrirbrigði. Rosenberg segir að listamennirnir hafi þurft að tæma hug sinn og reynt að nálgast það ástand að verða i senn efnislegur og andlegur hluti af myndverkinu. (Gagn- stætt súrreaUstunum sem með sinum „automatisma” unnu út frá mynd eða tengslum fleiri mynda.) Spurningin hjá þeim amerísku var ekki að mála ákveðna lifaða reynslu eða minningu, heldur var hin myndræna útfærsla inntak í sjalfu sér. Listamaðurinn vissi ekki fyrirfram að hvaða niðurstöðu hann kæmist eða hvernig myndin mundi Uta út. Eini ásetningur lista- mannsins var „að umbreyta einu efni (léreftið) með öðru efni (Ut).” Abstract-expressionisminn var (og er) þvi ávallt stefnumót við hið óþekkta — eins konar ævintýri. „mynatr mmar em ekki fyUilega abstrmckt tar eru mvMega byggðar á náttúrunni. íslenskt iandsiag æsku minnar, ómæfísvMátta og tær norðanbirta þess er hvati myndanna. Ég reyni afítaf að ná þessari vidd i verk LandsJag En myndverk Ragnheiðar eru alls ekki „automatísk”. f þessum mynd- verkum liggur forsendan, eins og áður segir í landslaginu og nátturúnni. Lista- konan rissar hér „nákvæmlega” upp sjóndeildarhring, fjöll, hraun, tún og klappir, sem hún síðan litar með kvikri Myndlist „Ég hataði teikningu ískóta ‘ ' tR.J.Ream. úr sýningarskrá) (Ljósmyndir: GBKJ. GunnarB.Kvarán áferð expressionistanna. Þannig leggur listakonan sig fram við að brjóta upp landslagsmótifið með blæbirgðarfkri pensilskrift. Myndverkin eru ekki eftir- liking á landslagi, heldur getum við fremur talað um ákveðna samsvörun milli litanna og náttúrunnar. Þannig að áhorfandinn á auðvelt með að fram- kalla skýr skyntengsl milli myndverks- ins og umhverfisins. Landsiag = fítur Liturinn í málverki Ragnheiðar er umfram litur, sem hún vinnur oft á tíðum hratt, en þó með einbeittri nákvæmni. Litablæbrigðin í málverki hennar eru vilji til að tjá okkur þann síbreytileik sem við finnum í birtunni, AF KÓR LANGHOLTSKIRKJU Flytur MessíasHándels íheild nú íbyrjun páskavikunnar Kór Langholtskirkju gefur páska- tóninn i ár með flutningi sinum á Óratóríunni Messías eftir Hðndel í Fossvogskirkju. Fyrirhugað var að halda tvenna tónleika, á morgun og á mánudaginn, en það fór sem vænta mátti að uppselt varð jafnskjótt og um heyrðist og því verða tónleikamir þrennir. Aukatónleikarnir eru á þriðjudagskvöldið. Allir eru þeir í Fossvogskirkju og byrja kl. 16 — á morgun en kl. 20 hina dagana. Langholtskirkjukórinn flutti óratóríu Hándels á páskunum i fyrra en þá ofurlitið stytta og að þessu sinni verður hún flutt í heild sinni. Kammersveit skipuð félögum úr Sinfóníuhljómsveit íslands leikur undir stjórn Michaels Sheltons. Einir 7 einsöngvarar syngja með kórnum, þau Ólöf K. Harðardóttir, Sólveig Björling, Garöar Cortes, Halldór Vilhelmsson, sem syngja stór hlut- verk og Signý Sæmundsdóttir, Ragn- hildur Fjeldsted og Ásgeir Bragason. Þess má geta að Asgeir mun syngja svonefndan counter-teonor eða i falsettu og mun það í fyrsta sinn sem íslendingur syngur þá rödd en það tíðkaðist mjög í eina tið. Stjórnandi kórsins er Jón Stefánsson, organisti Langholtskirkju og kórstjóri frá 1 %4 enda löngu kunnur fyrir markvissa stjóm tónlistar í Langholtinu. For- maður kórsins, Ingimundur Friðriks- son, sem upplýsti DV um tónleikana, fór góðum orðum um störf Jóns við kórinn og sagði söngfélagana mega hrósa happi yfir áhugahans. Kór Langholtskirkju skipa nú 60 manns og er ekki ætlunin að hann verði stærri enda gera verkefni kórsins ekki ráð fyrir fleirum. Komast færri að en vilja að sögn Ingimundar. Æfingar eru einatt tvisvar í viku. Við messur syngur hluti kórs í senn og er skipt verkum. Ýmis konar félagslif fer fram meðal kórfélaga auk söngæfinganna ströngu og var ekki annaö að sjá af svip formannsins en þar væri oft glatt á hjalla. Hljómp/ötur ogferöakíg Jón Stefánsson organisti og stjómandi Kórs LanghoKskirkju ásamt kórfálögum. Myndin var tekin á svokafíaðri opinni æfingu, alveg nýlega, en slikar œfingar heldur kórinn áriega og býður þá styrktarféiögum að fylgjast með. Styrktarfóiagar eru nú um 200. tLjósm. Bjarnleifur) hafinu.eða fingerðum gróðri islenzkrar náttúm. Óskilgreind pensilskriftin, gefur áhorfendum möguleika á að lesa út úr viðkomandi formum — náttúru flötum — ákveðnar sjónrænar um- breytingar sem skirskota til hinnar sfkviku náttúru, án þess þó að augað geti staðnæmzt við eitt eða annað skil- greint náttúrumótíf. Auga áhorfandans flögrar yfir myndflötinn og framlengir þannig hið sifellda umrót sem hin myndræna framsetning býður uppá. Augað og liturinn framkalla þannig mynd sérhvers áhorfanda. Það er augljóst að miklar breytingar áttu sér stað i myndverki listakonunnar í byrjun 8. áratugarins. Ný viðfangs- efni — epli, kaffibolli, stóU, borð, gluggi, — koma fram og umbreyta í mörgu myndrænni hugsun Ragnheiðar. Myndirnar verða meira afgerandi í formi, þó Uturinn í sínum mjúku tónbrigðum sé enn nátengdur áðurnefndum náttúrustemmningum. Víst er að stórir hlutir voru að gerjast í myndverki Ragnheiðar. Fullkomin mynd. Sýningin í heUd, gefur afar fuUkomna mynd af ferU listakonunnar. Við kynnumst nokkrum klippi- myndum, og rissmyndum (nátengdum automatisma New-York skólans); við sjáum modelteikningar og getum þannig fylgzt með öllum breytingum á list hennar, hvernig hún hefur reynt ýmsar leiðir og smásaman kristallast sá Ustpersónuleiki sem við getum notið í olíuverkunum. Þá má einnig minnast á að öll fram- setning sýningarinnar og sýningarskrá (R. J. Ream, úr sýningarskrá) með almennri fræðslu um Ustakonuna er til fyrirmyndar. -G.B.K. Tónlist Tónfíst um haigina og í næstu viku Á laugardag 3. apríl hafa höfuð- staðarbúar um að minnsta kosti þrenna tónleika að velja. — Lúðra- sveit Verkalýðsins leikur í Gamla bíói kl. 14, Antóníó Corveiras leikur í Fíladelfiukirkjunni kl. 17 og kl. 14.30 leikur Guðrún Th. Sigurðardóttir einleikaraprófskonsert sinn ásamt önnu Þorgrímsdóttur í Austurbæjar- bíói. (Hjáhnur Sighvatsson lék sinn konsert á föstudagskvöld). Á sunnudag og mánudagskvðld flytur Kór Langholtskirkju Messías eftir Húndel í Fossvogskirkju, en sá flutningur er orðinn árlegur stór- viðburður. Á mánudagskvöld kl. 20.30 leikur Strengjasveit Tónlistarskólans í Reykjavík fjáröflunartónleika í Bústaðakirkju. Þar geta menn sameinað tvennt; að njóta góðra tón- leika og styrkt gott málefni. Svo um páskahelgina sjálfa, 9. 10. og 11. flytur Pólýfónkórinn Mattheusarpassíuna í Háskólabíói og það láta víst ekki margir fram hjá sér fara, sem á annað borð hafa áhuga á góðum tónfiutningi. Eyjólfur Melsted Óratóría Hándels er annað st(jr. verkefni kórsins í vetur en hann flutti jólaóratóriu Bachs um áramótin. Kórinn kom einnig fram á Myrkum músíkdögum. Eftir páskana er ætluriin að æfa efnisskrá sem farið verður með út fyrir borgina og einnig er ætlunin að taka upp a.m.k. eina hljómplötu með sálmalögum á þessu ári. Verður það hin fyrsta í röð platna, ein plata fyrir hvern hluta kirkjuársins. DV innti kórformanninn eftir framvindu kirkjubyggingarinnar í Langholti og kom fram að kórinn gerir sér vonir um að geta haldið tón- leika sína þar frá og með næsta hausti. Sem stendur fer messuhald og söngur fram í Safnaðarheimili sóknarinnar. -Ms. Hár eru þau Sigurveig Jónsdóttir og Magnús Ólafsson i hlutverkum sínum. 15. sýning á Karlinum íkassanum í kvöld —síðasta sýning fyrir páska í kvöld sýnir Garðaleikhúsið gamanleikritið Karlinn í kassanum i 15. skipti. Þetta er siðasta sýningin fyrir páska og er sýnt í Tónabæ (gamla Lídó) eins og venjulega. Mjög góð aðsókn hefur verið að sýningum og verður haldið áfram af fullum krafti eftir páskafri. Leikstjóri er Saga Jónsdóttir og með helztu hlut- verk fara Magnús Ólafsson, Aðal- steinn Bergdal, Sigurveig Jónsdóttir, Guðrún Þórðardóttir, Þórir Stein- grímsson og Valdimar Lárusson. Sýningin hefst kl. 20.30. Ragnheiður Jónsdóttir Ream: Yfirlitssýning

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.