Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1982, Síða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1982, Síða 36
Pólarlax vill rækta lax í Sædýrasaf ninu: Hvalalaugin leigð til næstu 10 ára ■ Enn hafa ekki náðst samningar um kaup á heitu vatni Fyrirtækið Pólarlax, sem starfrækt hefur laxeldisstöð við Straumsvík, hefur tekið á leigu hvalatjörnina í Sædýrasafninu til næstu tiu ára. Er meiningin að rækta þar allt að 6—10 þúsund laxa á árí. Laxeldið er þó ekki komið af stað því ennþá hafa ekki náðst samningar um kaup á heitu vatni í stöðina. Að sögn Magnúsar G. Björnssonar fram- kvæmdastjóra sótti Pólarlax um að fá heitt vatn keypt á ylræktartaxta, sem er mun lægri en húshitunartaxti, en Hitaveita Reykjavíkur hefur ekki viljað fallast á það. „Okkur finnst jretta mjög ein- kennilegt þvi þarna er verið að koma í veg fyrir nýtingu á auðlindum sem annars koma að litlu gagni,” sagði Magnús. „Við höfum þegar gert Hitaveitunni ljóst að við gætum séð af heita vatninu allt upp í tvær vikur þegar þörfin er hvað mest annars staðar i miklum kuldum þvi laxinn þolir ágætiega slik hitabrigði skamman tima í senn. Það eru allar lagnir fyrir hendi og því ekkert annað að gera en hleypa vatninu á.” Hvalatjörnin hefur undanfarin ár aðallega verið notuð sem biðstofa fyrir háhyrninga sem veiddir eru hér við land og seldir erlendis. Sagði Magnús að hún yrði nýtt áfram fyrir þær skepnur um það bil þrjá mánuði á ári, eða frá september og fram að áramótum. „Það hentar okkur ágætlega þvi við höfum gert ráð fyrir að setja fisk- inn í tjömina upp úr áramótum ár hvert og teljum að það taki um níu mánuði fyrir laxinn að ná æskilegri þyngd, eða 3—4 pundum, þarna í lauginni.” Eftir neikvæða umsögn Hitaveit- unnar sneri Pólarlax sér til borgar- ráðs sem visaði málinu til borgar- stjórnar. Þar liggur málið nú. „Ef við fáum vatnið ekki á þessum ódýra taxta brestur grundvöllurinn fyrir laxeldi á þessum stað. Liggur þá beinast við að reyna að ná samkomu- lagi við leigusala um breytingar á leigusamningnum, en ég trúi varla öðru en menn átti sig og gefi sam- þykki,” sagði Magnús G. Björnsson. -JB. I ) i Kiwanisklúbburinn Elliöi gekkst fyrir skemmtun á Hrafnistu i I dr. Qunnar Thoroddsen forsætisróöherra sem lék á pianó viö Hafnarfiröi í fyrrakvöU. Meöal þeirra sem þar komu fram var | góOmr undktektk. (DV-mynd GVA). Bamabækur: AndrésogÁrni fengu verðlaunin ,,Ég met mikils þessa viðurkenningu. Fyrir þann sem hefur gaman af að skrifa um börn og fullorðna er hún mesta uppörvun sem hægt er að fá,” sagði Andrés Indriðason er hann tók við verðlaunum Fræðsluráðs Reykja- víkur í gær fyrir beztu frumsömdu barnabókina í fyrra. Andrés fékk verðlaunin fyrir bókina Polli er ekkert blávatn, sem Mál og menning gaf út. Er þetta önnur skáld- saga hans en sú fyrri, Lyklabarn, sem út kom 1979, fékk einnig verðlaun. Er Andrés því sannkallaður verðlauna- penni. Verðlaun voru einnig veitt fyrir bezt þýddu barnabókina. Þau fékk Árni Þórarinsson, ritstjóri Helgarpóstsins, fyrir þýðingu sína á bókinni Einn í stríði eftir hollenzka rithöfundinn Ev- ert Hartman. „Þetta var nú ekki gert af neinni hugsjónastarfsemi, því miður fyrir unga lesendur. Ég þýddi bókina aðal- lega til að fá skotsilfur meðan ég var að Iæra úti. En það er gaman að þetta hef- ur lukkazt sæmilega,” sagði Árni Þór- arinsson. -KMU. Sigurjón Pótursson, forsatíborgarstjómar, athmntíAndrisiog Ama vmrðtmunin i hófiað Höföa igær. (DV-mynd Einar Ólason). frjúlst, óháð dagblað LAUGARDAGUR 3. APRÍL 1982. Myndböndin: Gegndarlaust brask á svörtum — segir umboðsmaður Warner Brothers „Hingað til hefur stórfyrirtækjum eins og Warner Brothers verið gjörsam- lega ókleift að senda myndbðnd sín á íslandsmarkað. Ástæðan er hið gegndarlausa svartamarkaðsbrask sem hér hefur viðgeqgizt í sambandi við myndbandaleigur. ” Þetta sagði André Paulsen, umboðs- maður Warner Brothers og forstjóri Metronome Video í Kaupmannahöfn, m.a. í viðtali við DV sem birt er í blað- inu í dag. í viðtalinu kemur fram að í Danmörku, Noregi og Svíþjóð hefur verið gengið mjög hart til verks gegn ólöglegum myndbandaleigum. 1 Kaup- mannahöfn hafa myndbandamenn myndað samtök og gera út teyni- lögreglumenn til að fylgjast með hvort farið er að lögum eða ekki. Þá er ekki hikað við málsókn ef vart verður við stolnar upptökur eða ólöglegar á annan hátt. -SG. —Sjáábls.6 Dattaf þriðju hæð Lítið barn datt ofan af þriðju hæð og niður í kjallara í blokk í Breiðholti snemma í gærmorgun. Gerðist atburð- urinn innanhúss og hafði barnið verið að prila með fyrrnefndum afleiðingum. Var barnið flutt á slysadeild en meiðsli þess ekki talin alvarleg. -KÞ. Rektorskjörið íH.Í. Guðmundur vann Guðmundur Magnússon vann naum- lega rektorskjörið við Háskóla íslands með 50,6 prósentum greiddra atkvæða. Alls kusu um 253 starfsmenn skól- ans, eða 83,5 prósent, og 958 stúdent- ar, eða 26,6 prósent. Hlaut Guðmund- ur 192,2 fullgild atkvæði og Sigurjón 157,1, en atkvæði stúdenta vógu aðeins þriðjung á móti atkvæðum starfs- manna. -KÞ LOKI Er það satt að hér eigi að stofna iyfjaverksmiðju sem framieiði iyf gegn verðbólgu? ]

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.