Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1982, Page 3
3
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. LAUGARDAGUR 3. APRÍL 1982.:
hvimleiðar; þessi var þó með þeim
lakari.”
Skammt frá Albacate liggur þorpið
Madrigueras. Þar er æfingastöð 11.
Alþjóðafylkingarinnar (11. Brigada)
sem í voru um þrjú þúsund manns.
Sjálfboðaliðunum var skipt i kompaní
'eftir þjóðernum og voru Norðurlanda-
búarnir í 100—150 manna kompanii.
Kompaníin voru svo hluti af æfinga-
bataljóninni í Madrigueras.
„Góðar sovótmyndir"
til skemm tunar
Norðurlandamennirnir fá til íbúðar
allstórt hús en þar var fátt þæginda;
hálmdýnur og þunn teppi. í kirkju
staðarins er matsalur. Dagarnir líða
áfram við æfingar og er fátt til
skemmtunar. „Stundum voru biósýn-
ingar, oft góðar sovétmyndir,. . . ”
Innan tiðar er Hallgrímur settur á
undirforingjaskóla og stýrir honum
Þjóðverji kallaður Jack „þrekinn,
svartur á hár og skeggrót með stórt ör á
efri vör. Alvarlegur, þungbrýnn
náungi, hörkulegur og beit saman
jöxlunum svo sargaði 1.” Hallgrímur
kynnist einnig vel kapteini kompanís-
ins Svíanum Karli Ernstedt.
í febrúar 1938 urðu stjórnarsinnar
að hörfa frá borginni Teruel eftir harða
bardaga en tímabundið andstreymi
Francos í Teruel varð til þess að
Þjóðverjar juku aðstoð sína til mikilla
muna og hófu uppreisnarmenn stór-
sókn frá Teruel í austurátt undir stjórn
þýzka skriðdrekaforingjans Wilhelm
Ritter von Thoma og var markmiðið að
komast til sjávar og kljúfa yfirráða-
svæði stjórnarsinna milli Valencia og
Barcelona.
Bataljónin í Madrigueras er send sem
liðsauki til 11. Alþjóðasveitarinnar sem
berst í Ebrodalnum norður af Teruel.
Hallgrímur kynnist sænska liðsforingj-
anum Herman Wohlin og verður sendi-
boði i sínu kompaníi. Við ána Rio al
Gas mynda þeir varalínu og er ætlunin
að verja brúna yfir ána en þar liggur
þjóðvegurinn milli Batea og Caspe.
Hermennirnir grafa sig niður í hæðina
og nokkrir dagar líða.
Fallbyssudrunurnar frá vigstöðvun-
um við Caspe færast alltaf nær og nær
og óvinaflugvélar fara að láta sjá sig í
æ ríkari mæli. Hallgrímur er kosinn
korporal og vara-sersjant.
Brátt brestur viglínan við Caspe og,
■undanhald hefst „Við tókum drasl
okkar og héldum af stað með leiðsögu-
manninum, sárgramir yfir að fá ekki að
berjast á „okkar hæð” ... ”
Uppreisnarmenn nálgast óðum og
baráttuhugurinn hverfur hjá mörgum.
Hallgrímur kemur í veg fyrir að Svíinn
Oscar taki forystuna og fái hermennina
til að óhlýðnast fyrirskipunum. Á
undanhaldinu týnir hann félögum
sínum og býr um sig ásamt Austurríkis-
mönnum á háum fjallsrana sem veit að
ánni. Brátt hófust vopnaviðskipti og
byssur tóku að gelta til beggja hliða og
lágu vígstöðvar stjórnarsinna undir
stórskotahríð. Brátt birtust skriðdrekar
fjandmannanna og í skjóli þeirra fót-
göngulið. Þá hófst aftur skipulagt
undanhald. Hallgrimur varð eftir
ásamt nokkrum félögum sínum til að
verja undanhaldið og brátt voru fjand-
menn á þrjá vegu. Með herkjum tókst
honum að komast undan en „Félagarn-
ir fimm, sem eflir voru í jarðgöngunum
komu aldrei fram. Spyrjið Mussolini
um afdrif þcirra. (. . .) Bateavígstööv-
'arnar voru sprungnar.”
í fylgd Austurrikismannsins Stroh-
mayer sem hann hafði kynnst í undir-
foringjaskólanum í Madrigue.ras
heldur Hallgrímur undan í norð-
austur átt til Kataloníu. Þeir slást í för
með spænskri hersveit og flýja yfir
svæði sem er mikið til á valdi fjand-
mannanna.
„... baiðþess,
að þeir sendu mig
íkúlu eða sting"
Skyndilega lendir Hallgrímur i
mikilli lífshættu. Þeir félagar standa
óvænt andspænis hópi Mára sem byrja
samstundis skothríð. Hallgrímur steyp-
ist til jarðar sem óvígur en félagar hans
flýja. „Þegar Marokkómennirnir sáu
mig falla en hina fjarlægjast, virtist
þeim ekki koma til hugar að veita
félögum mfnum eftirför, heldur þyrpt-
ust allir kringum, þar sem ég lá
hreyfingarlaus á jöröinni.
Þá er það búið, flaug mér i hug, og
beið þess, að þeir sendu I mig kúlu eða
sting.
Það liðu 2—4 sekúndur, — hræði-
legar langar og viðbjóðslegar. Engin
byssustingur kom. Og engin kúla.”
Márarnir halda hann dauðann og
reita af honum armbandsúr, peninga
og önnur verðmæti og vopn þar á
meðal handsprengjur. Meðan Máramir
eru uppteknir við að skipta eigum hans
á milli sín tekur Hallgrímur til sinna
ráða.
„Með leifturhraða skaut ég höndinni
fram í áttina til sprengjunnar, náði taki
á henni spyrnti við og kastaði mér I
einu stökki á milli Máranna fram af
stallinum, niður á veginn. Kom niður á
fæturna, snarsnerist þvert yfir veginn
og fram af brekkunni hinum megin.
Þar tók við láréttur stallur (eða flötur)
nokkurra metra breiður og þvi næst
tveggja metra hár upphlaðinn veggur
niður á næsta flöt. Allt þetta hafði vart'
tekið meira en 4—5 sekúndur, en um
leið og komið var fram á stallbrúnina,
hvæstu riffilkúlurnar I kringum mig.
(....)
Ég hentist niður alla hliðina. Kúl-
urnar hvinu við vangana eða sprungu
við fætur mér framan til á hverjum
stalli, svo komst ég I hvarf sem snöggv-
ast, og þeir hættu að skjóta. Á hraðri
ferð er slæmt aðhitta mann, þó skammt
sé færið i upphafl; en þó verða að telja
það merkilega tilviljun, að ekki eitt
einasta kúlubrot hvað þá meira, skyldi
hæfa mig á leiðinni niður hliðina”.
Niöri á dalbotni hætti skothríðin.
t skjóli við grjótgarð komst ég þvert
yfir undirlendið, sem var örmjótt, —
skreiddist upp i kjarriö i hinni brekk-
unni og hneig þar niöur. Márarnir
höfðu ekki elt mig, látið sér nægja að
senda kúlumar. Ég varð þeirra ekki var
eftir þetta.
Strohmayer og þá félaga sá ég aldrei
framar.”
Illa til reika kemst hann eftir nokkra
daga til bæjarins Flix í Ebródal en
stoppar stutt við og heldur til þorpsins
Garcia en þar söfnuðust saman leifar
varnaliðsins frá Batea. Sama kvöld var
allur hægri bakki Ebro á valdi upp-
reisnarmanna að Flix meðtalinni.
Uppreisnarmenn sóttu siðan niður
með ánni og náðu að lokum til sjávar
hjá Vinaroz 15. apríl og skiptu þannig
landsvæði stjómarsinna í tvennt,
annarsvegar Katalóníu með Barcelona
og hinsvegar svæði sem myndaði þrí-
hyrninginn Valencia-Madrid-Almeria á
suðurströndinni. Sókn uppreisnar-
manna beindist svo suður með strönd-
inni í átt að Valencia.
Kartöfíu-
vígstöð varnar
Á setrinu Scaladei í Katalóniu söfn-
uðust saman leifarnar af 11. Alþjóða-
fylkingunni. Margir félagar Hallgríms
voru fallnir eins og Fritz, Jack og
Strohmayer.
í Barcelona var ríkisstjórnin og her-
stjórnin endurskipulögð og Juan
Negrin varð yfirhershöfðingi og Kata-
lóníumenn fylltust baráttuhug á ný.
Herinn var endurskipulagður og ný
rússnesk vopn komu. 11. Alþjóða-
fylkingin tekur sér stöðu á norður-
Skriödrekar stjómarmanna á leið tíl Ebro-ngántmwtmr.
líf óg fjör allan sólarhringinn
Rimini - einn vinsælasti sumarleyfisstaöur
Evrópu - hefur á skömmum tíma unnið hug
og hjörtu (slendinga á öllum aldri. Vinsældir
þessa óviðjafnanlega baðstaðar bvggjast
öðru fremurá þvrjnargfræga lífi og fjöri sem
þar er stöðugt að f inna, gnægð af spennandi
ævintýrum fyrir börn og fullorðna ásamt
fullkominni hvíldar- og sólbaðsaðstöðu
semalla heillar.
Margbreytilegt mannlíf í aðlaðandi umhverfi
er það fyrsta sem vekur athygli þeirra á
Rimini. Veitingastaðir, diskótek,
skemmtistaðir og næturklúbbar skipta
þúsundum og’áíls staðar er krökkt af kátu
fólki.
Endalaus ævintýri tyrir
böm og fulloróna
Vegna sérstöðu sinnar meðal sólbaðsstaða
Adríahafsins laðar Rimini árlega að sér fjölda
listamanna hvaðanæva að. Leiksýningar,
hljómleikar og hvers kyns skemmtilegar
uppákomur eru því daglegir viðburðir - jafn-
vel þegar þeirra ersístvon.
Sérlega ódýrirog góðirveitingastaðir
ásamtfyrsta flokks íbúðum og hótelum
fullkomna ánægjulega dvöl bína á Rimini.
Þaulreyndir fararstjórar eru ætíð til taks
og benda fúslega á alla þá fjölmörgu mögu-
leika sem gefast til að njóta lífsins í
ógleymanlegu umhverfi.
• Tivolí
• Skemmtigarðar
• Sædýrasöfn
• Leikvellir
• Hjólaskautavellir
• Tennisvellir
• Mini-golf
• Hestaleigur
• Go-cars kappakstursbrautir
• Rennibrautasundlaugar
vs
FT
Adriatic Riviera of
Emilia - Romagna (Italy )
Rimini
Riccione
Cattoiica
Cesenatico
Gatteo a Mare
San Mauro a Mare
Misano Adriatico
Lidi di Comacchio
Savignano a Mare
Bellaria • Igea Marina
Cervia - Mílano Marittima
Ravenna e le Sue Marine
Heillandi
skoöunaiferöir
Róm - 2ja daga ferðir
Feneyjar - ,,Hin sökkvandi borg
Flórenz - listaverkaborgin fræga
San Marinó - „frímerkja-dvergrikið
o.fl.o.fl.
Samvinnuferdir - Landsýn
AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899