Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1982, Blaðsíða 5
„Hallgrímur
var ákaflega
heiðariegur”
—segir ekkja hans, Oddný Pétursdóttir
hjúkrunarkona
Sjálfboðaliðar í Spánarstyrjöldinni
mættu mikilli tortryggni þegar þeir
komu til sinna heima eftir ósigurinn. Í
Bandaríkjunum voru þeir stimplaðir
kommúnistar og sættu margir hverjir
ofsóknum. Margir spænskir kommún-
istar fóru til Sovétríkjanna og lentu
flestir í hreinsunum Stalins og voru
fluttir til Síberíuvistar. Sannaðist á
örlögum þeirra að Kremlverjar
óttuðust meira „endurskoðunarsinna”
eins og trotskista og anarkista en hina
raunverulegu fjendur Sovétríkjanna.
Þegar Hallgrimur Hallgrímsson kom
heim frá hildarleiknum á Spáni var
honum ekkert fjær en að láta þar við
sitja í baráttunni fyrir hugsjóninni og
telja nóg gert. Hann steypti sér strax út
í verkalýðsbaráttuna á íslandi. í janúar
1941 hófst verkfall hjá Dagsbrún og
voru brezkir hermenn látnir vinna
verkamannavinnu. Sjö verkamenn
voru handteknir fyrir að dreifa flugriti
til brezku hermannanna þar sem
skorað var á þá að láta ekki nota sig til
verkfallsbrota. Einn af þeim var Hall-
grímur. Hann og Eggert Þorbjarnarson
komu sér saman um að segjast hafa
skrifað bréfið og taka málið á sig til að
hindra frekari aðgerðif gagnvart Sósía-
listaflokknum. Hallgrímur, Eggert,
Ásgeir Pétursson og Eðvarð Sigurðsson
voru dæmdir í nokkurra mánaða fang-
elsi og fluttir á Litla-Hraun. í marz
1941. Þar skrifar Hallgrimur formál-
ann að „Undir fána lýðveldisins”.
Hann sat 11 mánuði á Litla-Hrauni, og
var stundum mánuðum saman í
einangrun. Kona hans var Oddný
Pétursdóttir hjúkrunarkona og fæddist
þeim dóttir, Halla, 15. júní 1941 meðan
Hallgrímur sat í fangelsinu. Hann
losnaði úr fangelsinu í apríl 1942 og um
haustið sama ár tók hann sér ferð á
hendur í þágu Sósíalistaflokksins um
landið. Fyrir Norð-austurland sigldi
hann með línuveiðaranum Sæborgu í
nóvember sama ár. Það skip hvarf og
hefur að öllum líkindum rekist á
tundurdufl. Fórust með Sæborgu sjö
manns þar á meðal Hallgrímur, 32 ára
að aldri.
Mikill aðdáandi
Staiíns
Blm. DV heimsótti Oddnýju Péturs-
dóttur ekkju Hallgríms og Höllu dóttur
þeirra. Hvers konar manngerð var
Hallgrimur?
„Hallgrímur var ákaflega heiðar-
legur maður. Hann var sannfærður
kommúnisti og lifði svo til aðeins fyrir
hugsjón sína þótt auðvitað væri hann
mjög góður heimilisfaðir þennan stutta
tíma sem við vorum gift. Hann hafði á
unga aldri farið til Sovétríkjanna svo
sem margir aðrir sem voru kommún-
istar þá og unnið í verksmiðju. Á þess-
um árum var mikið atvinnuleysi á
íslandi og þeir sem voru framarlega í
verkalýðsbaráttunni fengu alls ekki
vinnu. Hann hefur efiaust verið eitt-
hvað á hugmyndafræðilegum nám-
skeiðum í Sovétríkjunum því hann var
mikill aðdáandi Stalíns. Á þessum tima
litu kommúnistar til Sovétríkjanna sem
fyrirmyndar og á Stalín sem leiðtogann
sem gæti frelsað verkalýðinn.
Við Hallgrímur giftumst ekki fyrr en
hann kom heim frá Spáni en ég hafði
þekkt hann í nokkur ár og þegar hann
fór til Spánar vissi það ekki nokkur
maður fyrr en hann var kominn á stað-
inn og sendi bréf í Verkalýðsblaðið.
Ferðir sjálfboðaliðanna voru mjög
leynilegar. Þegar hann kom heim vildi
hann lltið um styrjöldina tala og það
var augljóst að honum hafði verið þetta
mikil reynsla.
Mikið var skrifað um þetta í blöðum
og sýndist sitt hverjum. Á þessum árum
var mikil tortryggni gagnvart komm-
únistum og var til dæmis ritstjórn
Þjóðviljans og Einar Olgeirsson hand-
tekinn og flutt til Bretlands á stríðs-
árunum.
Hallgrímur og Aðalsteinn Þorsteins-
son komu heim i nóvember 1938 og
tóku félagar þeirra á móti þeim. Við
giftum okkur svo í desember 1940 og
voru samvistirnar við hann stuttar því i
marz 1941 var hann settur í ellefu
mánaða fangelsi.”
„Slíkirmenn berjast
fyrir skoðunum sínum "
Eggert Þorbjarnarson var vinur
Hallgrims um langt skeið og sat á Litla-
Hrauni með honum vegna dreifibréfs-
málsins:
„Hallgrímur var mjög minnisstæður
maður og sérlega heilsteyptur, vilja-
sterkur og fastur í skoðunum. Hann
minntist sjaldan á styrjöldina en sagðist
hafa kynnst þar mörgum og merki-
legum mönnum. Hann varð mun
alvörugefnari en áður þótt auðvitað
ætti hann til að slá á létta strengi. Þaö
er sjaldgæft að menn séu svona sam-
kvæmir sjálfum sér og það eru slíkir
menn sem berjast fyrir skoðunum
sínum.” -gb.
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. LAUGARDAGUR 3. APRtL 1982.
Oddný Pótursdóttir hjúkrunarkona á haimkl sktu. Ljósm. BjamMfur.
LNINGAR-
TILBOÐ
ÆT
NU geta allir farið að mála
lér kemur tilboð sem erfitt er að hafna.
•J Ef þú kaupir máiningu fyrir500kr. £ Ef þú kaupir máiningu í heiium
eða meir færðu 5% afslátt tunnum, þ.e. 100 lítra, borgarðu
VERKSMIDJUVERD og í
2 Ef þú kaupir málningu fyrir 1000 kaupbæti færðu frían heimakstur
kr. eða meir færðu 10% afslátt hvar sem er á Stór-Reykjavíkur-
svæðinu.
HVER BÝÐUR BETUR!
Aukþess ótrúlega hagstæðir greiðs/uskilmá/ar.
OPIÐ: mánud.-fimmtud. kl. 8—18 föstud. kl. 8—22 laugad. kl. 9—12
GB
HRIIMGBRAUT119. S. 10600/28600
Munið
aðkeyrsluna
frá Framnesvegi
Kjörbók kvenna á öllum aldri
Get ég fengið pilluna án
þess að fara til læknis?
Er ekki sárt að fara í
kvenskoðun?
Er brjóstkrabbamein
ættgengt? Hvað ef hann
gengst ekki við barn-
inu? Hvað er óhætt að
vera lengi í einu á pill-
unni?
Minnkar kynhvötin þeg-
ar legið er tekið? Er
hægt að fá blóðtappa af
hormónameðferð?
Nýi kvennafræðarinn svarar spurningum kvenna á öllum aldri
Nýi kvennafræðarinn
seldist upp á fáeinum
dögum fyrir jól en er nú
aftur fáanlegur
MállMlog menning