Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1982, Blaðsíða 6
6'
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. LAUGARDAGUR 3. APRÍL 1982.
HÚSBYGGJENDUR
Aö halda að ykkur hita
er sérgrein okkar:
Afgreiðum einangrunarplast á Stór-Reykjavíkursvæðið
frá mánudegi til föstudags. Afhendum vöruna á bygging-
arstað viðskiptamönnum að kostnaðarlausu.
Hagkvæmt verð og greiðsluskilmálar við flestra hæfi.
Aörar söluvörur:
Glerull — Steinull — Múrhúðunarnet — Útloftunar-
pappi — Þakpappi — Plastfolía — Álpappir — Spóna-
plötur: venjulegar/rakaþolnar — Pipueinangrun: frauð-
plast/glerull.
BORGARPLAST HF
Borgamesi simi 93-737011
Kvöldslmi og helgarslmi 93—7355
Holtsbúð 22
Sími43350 -
Garðabæ
Jarðvinna—Vélaleiga—Br0yt X 20
Seljum fyllingarefni og mold.
u
Smurbrauðstofan
BJORNINN
Njálsgötu 49 - Simi 15105
SMÁAUGLÝSINGÍ
m
ER ENGIN SMÁ-AUGLÝSING
L.
ATHUGH)!
r
Opið alla virka daga frá kl. 9—22
Laugardaga frá kl. 9—14
Sunnudaga frá kl. 14—22
Smáauglýsingadeild—Þverholti 11—Sími27022
Urval af
bílaáklæðum
(coverum)
Sendum
í póstkrofu
Altikabúðin
Hverfisgotu 72. S 22677
Fyrstu kvenljósmyndarar á íslandi
MYNDASAFNFRÁ
TEIGARHORNI
—sýning í Þjóðminjasafninu
Myndasafn frá Teigarhorni, nefnist
ljósmyndasýning, sem nú stendur yfir í
Bogasal Þjóðminjasafns. Myndirnar á
sýningunni eru eftir tvær konur, sem
báðar voru lærðir Ijósmyndarar, Nico-
line Weywadt, fyrsta kvenljósmyndara
á Íslandi, og Hansínu Björnsdóttur.
Spanna myndirnar yfir tímann frá 1872
og fram yfir 1930 og eru frá Austfjörð-
um, það er úr Berufirði, frá Eskifirði
og Seyðisfirði.
Þjóðminjasafnið keypti manna-
myndaplötur Nicoline árið 1943, en á
síðastliðnu ári keypti safnið aðrar plöt-
ur hennar og allt plötusafn Hansínu, og
auk þess ýmsan ljósmyndabúnað úr
eigu beggja.
Af hverju Austfirðir?
Frumbernska Ijósmyndunar á ís-
landi varð i lengra lagi eða um 20 ár.
Frá því fyrst er vitað til að fengizt hafi
verið við þá iðn 1846 af Helga Sigurðs-
syni presti á Jörfa, og þar til 1866, að
Sigfús Eymundsson tekur til starfa.
Veruleg fjölgun verður þó ekki í stétt-
inni fyrr en eftir 1895, enda er þá kom-
in nokkur festa í myndatökur og um
það leyti eru opnaðar Ijósmyndastofur
í stærstu bæjum landsins.
Fyrir 1895 er vitað um 36 einstak-
linga, er tóku myndir hérlendis gegn
greiðslu, fimm þeirra voru útlendingar,
en af þeim íslenzku voru 14 búsettir á
Austfjörðum. Hvers vegna? Þetta var
uppgangstími á Austfjörðum, erlendir
menn stunduðu útgerð þaðan og þorp
voru að myndast í tengslum við útgerð-
ina.
í þessum hópi voru sex konur bendl-
aðar við ljósmyndun, þar af fjórar á
Austfjörðum. Þær voru Nicoline Wey-
wadt, faktorsdóttir á Djúpavogi, lærð f
Kaupmannahöfn 1871 til ’72, Anna
Ólafsdóttir, bóndadóttir frá Firði í
Mjóafirði, lærð í Kaupmannahöfn
1892 til ’93, Margrét Möller, faktors-
dóttir á Eskifirði, lærð í Kaupmanna-
höfn 1893 til ’94 og Anna Klausen,
faktorsdóttir á Eskifirði, líklega lærð í
Bergen 1892.
Tvennt er þessum konum öllum sam-
eiginlegt: Þær fara ungar til náms og
eru komnar af efnafólki, sem hefur
bolmagn til að senda þær utan. Auk
þess eru þær ef til vill að reyna að
skapa sér einhvern annan lifsmöguleika
en að sigla hraðbyri í höfn hjónabands-
ins. En val iðngreinarinnar hlýtur
meðal annars að byggjast á því, að Ijós-
myndun er hreinlegt starf sem hægt er
að stunda í heimahúsum.
Nicoline var ein
fjórtán systkina
Nafn Nicoline Weywadt ber hæst af
austfirzkum ljósmyndurum og kemur
þar margt til.
Nicoline fæddist á Djúpavogi árið
1848, dóttir Nielsar P.E. Weywadts,
faktors hjá verzlun örums & Wulff á
Djúpavogi og konu hans, Sophie
Brochdorf. Var Nicoline næstelzt
fjórtán systkina. Jafnan var heimili
faktörshjónanna mannmargt, því að
auk systkinahópsins bjuggu ýmsir
Nicoline Mleywadt
Hamkia Bfömsdóttir. Ekki er
ólíklegt aó NicoHne hafi tekið
myndina.
<--------------m
Sauðfjársiátrun á blóðvellinum í
brekkunni ofan við Löngubúð á
D/úpavogi. Seinna var reist
siáturhús þarna. Myndina tók
Hansina. <D V-myndir Einar Óiason)