Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1982, Side 7
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. LAUGARDAGUR 3. APRÍL 1982.
'7
skorða höfuð fyrtnætna á maðan
myndatakan fór.fram. Á bernsku-
skeiði Ijósmyndunar var tökutimi of
langur til aö fólk gæti setið kyrrt án
aðstoðar.
starfsmenn verzlunarinnar á heimilinu.
Heimilið var um margt sérstakt, það
var annálað fyrir rausn og glaðværð og
var í nánari snertingu við umheiminn
en almennt tíðkaðist.
Vegna stöðu Weywadts bárust ýmsar
nýjungar þangað. Meðal annars er sagt
að þangað hafi komið fyrsta saumavél-
in sem kom á Austurland, svo og fyrsti
olíulampinn.
Hvers vegna skyldi
Nicoline hafa lagt
fyrir sig Ijósmyndun?
Tvær af elztu dætrum Weywadts
faktors sigldu til Danmerkur til náms.
Súsanna, sú eldri, lærði ostagerð á Jót-
landi 1870 til ’72, en Nicoline ljós-
myndun í Kaupmannahöfn 1871 til ’72.
Á þessum árum var enginn starfandi
ljósmyndari á Austfjörðum. Það er því
óneitanlega umhugsunarvert, hvers
vegna Nicoline kaus að leggja stund á
ljósmyndun.
Heimildir herma, að þegar Nicoline
var að alast upp hafi dvalið tveir Danir
um tíma á heimili Waywadts hjónanna
sem eitthvað hafi fengizt við ljósmynd-
un og þar hafi sennilega áhugi Nicoline
vaknað. Engar heimildir eru til um hjá
hvaða ljósmyndara Nicoline lærði i
Höfn, en heim sneri hún haustið 1872
og er því fyrsti kvenljósmyndari lands-
ins.
Nicoline starfaði um
þrjátíu ára skeið
við Ijósmyndun
Eftir heimkomuna settist Nicoline að
hjá foreldrum sínum á Djúpavogi og
stundaði ljósmyndun þar. 1881 fluttist
fjölskyldan að Teigarhorni, þar sem
Weywadt hafði látið reisa reisulegt
íbúðarhús og við það var byggður
myndaskúr með glervegg og þaki til að
næg birta fengist við myndatökurnar.
Árið 1888 sigldi Nicoline aftur til
Drangur. Óþakktur. MyntMna tók Nicoline.
Tatgartrgm I BatuflrðL Myndkm tók Nicolina um 1895. HúslO ar byggt 1880 tH
“82 og standur ann. j skúmum tU hægri var Ijósmyndastofa Nicoline og
Hansinu, en sú síOamefnda framkallaOI myndknar i Htiu herbergi á efrihæOi
norOurenda.
Hafnar til að kynnast nýjungum í iðn-
inni, en myndir hennar bera vitni um
gott og vandað handbragð. Næmt auga
Nicoline fyrir myndefni, samfara
myndrænni skynjun, gefur henni sér-
stöðu meðal íslenzkra ljósmyndara.
Hún var frumherji við myndatökur á
merkilegu tímaskeiði í byggðasögu
Austurlands og eftir hana liggja fleiri
útimyndir en flesta aðra ljósmyndara
fyrir aldamót.
Starfsferill Nicoline var langur eða
um 30 ár, en hún fékkst við ljósmynd-
un fram yfir aldamót.
Hansfna var
systurdóttir Nicoline
Nicoline giftist aldrei, en hélt heimili
með Sophie, móður sinni, eftir andlát
Weywadts árið 1883, og bjó að Teigar-
horni til dauðadags 1921. Þær mæðgur
ólu upp tvær stúlkur. Önnur þeirra var
Hansína Björnsdóttir, Hansína var
systurdóttir Nicoline, dóttir Súsönnu
Weywadt og Björns Eiríkssonar tré-
smiðs. Hansína fæddist 1884 og var
sett þriggja ára gömul í fóstur að
Teigarhorni.
Hansína lærði undirstöðuatriði
ljósmyndunar hjá frænku sinni Nico-
line, og 1902 sigldi hún til Kaupmanna-
hafnar tii frekara náms í ljósmyndun.
Ekki er vitað hjá hverjum hún lærði.
Hansína kom aftur til Djúpavogs
1903 og bjó áfram að Teigarhorni hjá
frænku sinni. Hún naut góðs af þeirri
aðstöðu, sem Nicoline hafði komið sér
upp þar heima.
Ljósmyndaferill Hansínu var sýnu
styttri en Nicoline, þar sem hún hætti
að mestu að taka myndir eftir að hún
gifti sig 1911. Hansína lést árið 1973.
Hansína sótti myndefni sitt einkum
til náttúrunnar og þá til Berufjarðar og
næsta nágrennis. Þá sótti hún og
myndefni í dagsins önn, þar sem Nico-
line aftur á móti tók mikið af manna-
myndum.
Sýningin Myndasafn frá Teigarhorni
stendur til 31. maí næstkomandi.
-KÞ tók saman og byggði á sýningar-
skrá.
Myndavólar NicoHne, liklega frá um 1872 tH 80. Fyrir aftan er baktjald, sennilaga fri um 1903og Hansina þi koméO
meO þaO frá Höfn. NicoUne notaöi ekki málaOan bakgrunn viO sínar myndatökur. BaktjöM fóru aO tiOkmtt um
1880, tii dæmis er vissa fyrir þvi að Sigfús Eymundsson notaOi siíkt tjald 1868.
r
Hagalandi 4,
F" Mosfellssveit (viðÁiafoss)
V laugardag og sunnudag kl. 7 — 6.
Hér sjáið þiö nýjasta útlitiö frá
INVITA, Sanne P, úr massífri
eik, lika til úr furu eða mahogni.
Eldaskálinn býður 39 gerðir
INVITA innréttinga í allt húsið.
Bjóðum sérsmíöaðar INVITA
innréttingar me öllum kostum
staðiaðra skáp eininga.
Möguleikarnir eru næstum
óendanlegir. Látið okkur að-
stoða við skipulagningu heimilis-
ins. INVITA hentar alls staðar.
Komid - sjáið og
sannfærist
um gæðin frá INVITA
ELDASKALINN
GRENSÁSVEG112, 101 REYKJAVÍK
SÍMi: 91-39520 8.91-39270
INVÍTA
innréttingar
í allt húsið