Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1982, Side 17
DAGBLAÐIÐ & VlSIR. LAUGARDAGUR 3. APRÍL 1982.
Bílar
Bílar
17
Bílar
Bandaríkin:
GMC S—15 býður upp
þægindi og belri stjórntæki.
á
aukin
Aukin sam-
keppni í
sölu á
litlum
pallbflum
Bandarískir bílaframleiðendur hafa
farið á fulla ferð i samkeppni við
japani um framleiðslu á litlum pall-
bílurn. Japönsku bílarnir hafa náð
miklum vinsældum i Bandarikjunum,
eins og raunar hér á landi, og þar var
Toyota Hi-Lux söluhæsti pallbíllinn
á siðasta ári en Datsun, Mazda og
lsuzu komu þar skammt á eftir.
Bandarísku pallbílarnir sem eru að
koma á markað eru eilítið stærri en
japönsku keppinautarnir. Þeir eru
búnir stærra stýrishúsi, meira er lagt í
innréttingar og völ á fleiri aukahlutum.
Það verður ekki skortur á keppi-
nautum á þessu sviði árið 1982. Sumir
bandarisku framleiðendanna selja og
bila sem framleiddir eru í þeirra verk-
smiðjum í Japan. Alls eru það 14
tegundir sem slást á þessum markaði í
Bandaríkjunum.
-JR
S—10 frá Chevrolel er „standard”
með fjögurra strokka vél sem smiðuð
er hjá Isuzu i Japan. Einnig er hægt að
fá bilinn með venjulegri V—6
Chevrolet vél. Pallinn er hægt að fá i
tveimur lengdum.
Ford Ranger — ný gerð frá Ford. Hann
verður fáanlegur með tveimur vélar-
stærðum, báðum fjögurra strokka og
eins og S—10 með tveimur stærðum af
palli. Bæði Ford Ranger og S—biiarnir
frá GM verða fyrst um sinn aðeins með
drif á einum öxli.
Bflar
Bflar
Stærsti fólksbillinn frá Japan Toyota Crown er sneisafullur af rafeindatækni. Það sést ekki utanfrá nema á nóttunni, þvi þá lýsa skráargötin út i myrkríð.
Toyota Crown:
RAFSTÝRT FLAGGSKIP
„Ég hef aldrei ekið í bifreið sem er
jafn vel útbúin stjórntækjum eins og
nýja Toyota Crown,” sagði einn
umsjónarmaður bílasíðu í erlendu
blaði nýverið.
Toyota Crown er svar japana við
Benz og Volvo. lnnviðir Toyotunnar
eru fullir af rafeindatækni og
þægindum.
Bíllinn er með sjálfskiptingu og þar
að auki rafstýrðum yfirgir. Aflstýri og
öll þau mælitæki sem hugurinn girnist.
Digitalklukka og fjögurra rása stereó,
sem hægt er að stjóma frá aftursætinu
líka. Það er meira að segja ljós i skrár-
götunum svo þau finnist á myrkum
vetrarnóttum. Allar hurðit eru með
rafknúnum rúðum, sem bæði er hægt
að stjórna með hnappi á hurðinni og
frá mælaborðinu. Þaðan er einnig stýrt
rafmagnsopnun á hurðum, farangurs-
rými, ásamt speglum, bensínloki, bara
með því að styðja á röð af hnöppum.
öllstjórntæki eru meira og minna elektrónisk. Speglar, opnun á dyrum og gluggum, Vió aftursætið er þetta stjórnbox, en
stýríð, útvarpsloftnetið o. fl. Gagnstætt Evrópubílum, sem tekið hafa upp merkingar þaðan er hægt að fjarstýra
á stjórntækjum nota japanir orð á hnappana eins og Bandarikjamenn, svo notandinn stereógræjunum ásamt loftkælingunni,
þarf að lesa sér til um hvaða takka skuli nota i hvert sinn. og miðstöðinni.
Mótorinn er sex strokka, 2,8 lítrar Þótt Toyota Crown sé byggður með fjöðrunin í Crown stinnari og aksturs-
145 hestöfl með beinni innspýtingu. bandariska bíla sem fyrirmynd þá er eiginleikar eru sagðir betri.
TVÆR CORVETTUR
Myndin hér að ofan er af Corvettu árgerð 1982. Nú er hún með fjögurra gíra
sjálfskiptingu meö rafstýrðum yfirgír. Vélin er V—8,5,7 lítrar.
0
Það telst ávallt fréttnæmt náist myndir af bílum sem ekki enn eru komnir á
markað, en eru á reynslustigi. Þessi mynd birtist i bandarisku bilabiaði og
sýnir óopinbcra mynd af Chevrolet Corvettu árgerð 1983! Linan í þessarri
nýju Corvettu þykir rennilegrí og loftmótstaða á að vera minni.
BÍLAR FYRIR ÞÁ SEM VIU A
HAFA RÚMT UM SIG
Sérþarfirnar í bílaiðnaðinum hafa
löngum verið miklar og þar hafa
Bandaríkjamenn staðið framarlega í
flokki. í Bandaríkjunum eru verk-
smiðjur sem sérhæfa sig í að framleiða
bíla fyrir þá sem sérstakar óskir hafa
fram að færa. Þar á meðal er smíði á
„límúsínum” eða stórum fólksbílum
sem ætlaðir eru þjóðhöfðingjum eða
öðrum stórmennum sem vilja hafa
rúmt um sig.
Sennilega yrði erfitt að hemja slika
bila í umferðinni hér og erfitt yrði að fá
stæði við hæfi.