Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1982, Blaðsíða 23
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. LAUGARDAGUR 3. APRÍL 1982.
23
HELGARVÍSUR
DV-mynd Einar Ófason.
Ég verð að biða með það til næsta
þáttar að birta vísur og vísubotna, sem
borizt hafa þættinum. Því hefst þessi
þáttur á vísum eftir Valdemar K.
Benónýsson, sem bjó á Ægissíðu á
Vatnsnesi og var landsfrægur hag-
yrðingur. Þessar vísur voru kallaðar
Grandavísur:
Fokku-bandafák ég vendi
fram hjá grandanum.
Stjórnarvandinn hœfir hendi,
höndin andanum.
Vör þótt mœti kaldra kossa,
koma bœtumar:
Ægir lœtur htegt mér hossa
heimasœturnar.
Gestifögnuð hrannir halda
hér á lögninni.
Kynjamögn, er veðrum valda,
vaka’ I þögninni.
Röng og bendur skálda ’ i skyndi
skarpa hendingu;
dulin hendi veifar vindi
vog og lendingu.
Brims af sogum blönduð þrœta
byltir vogunum.
Siglurboga bentarmœta
bylja togunum.
Dreg ég tröf að hœstu húnítm, herði á
kröfunum.
Drekahöfuð byltir brúnum
brims I köfúnum.
Fann ég stoð að farmanns reglum
firrtur voðanum,
fleytti gnoð með fullum seglum
fram hjá boðanum.
Lifs til stranda leið ég kenndi
lcið úr vandanum.
Bar mig andi’ I herrans hendi
heim frá grandanum.
Guðmundur Böðvarsson orti:
Margur fœr úr sama sal
svipað nesti’ úrferðamal.
Báðir sátu ’ I Selárdal
séra Páll og Hannibal.
Bjarni Rögnvaldsson, Vestur-Hún-
vetningur að ætt, en búsettur í
Hafnarfirði, orti þegar vinstri stjórn
gaf upp öndina og Framsókn gekk í lið
með Sjálfstæðisflokknum:
Framsóknar erfölnað blað,
féll I Ihaldsdlkið.
Það tjáir ekki að trega það, —
talið vel um llkið.
Andrés Björnsson eldri orti:
Flokkurinn þakkarfögrum orðum
fyrir þaö að gera —
nú þetta sem hann þakkaði forðum
aðþá varlátið vera
Þennan kviðling lærði ég fyrir
mörgum árum en veit því miður ekki
höfundinn:
Áþvi þekkist Þingeyingur,
þötf er ekki á neinum leitum:
Hann veit allt, sem enginn veit um,
upp á slna tíufingur.
En mér er sagt, að Hermóður
Guðmundsson frá Sandi hafi gert
þessa:
Það sem skilur okkur að
og er í raun og veru,
að Húnvetningar þykjast það,
sem Þingeyingar eru.
Aðalbjörn Benediktsson frá Aðal-
bóli i Miðfirði var um skeið ráðu-
nautur á Hvanneyri. Eitt sinn, er hann
var á ferð um Norðurárdal, varð
honum litið til Grábrókarinnar, sem
þykir að sjálfsögðu sveitarprýði. Þá
kvað Aðalbjörn:
Fegurð leit égjjallasalsins,
fann þar allt er hugur kaus.
En hvemigyrði ásýnd dalsins,
efhann vœri brókarlaus?
Jón bróðir Aðalbjörns, gerðist bóndi
í Höfnum á Skaga. Hann orti þessa:
Efþú slterð á ástarstrengi,
ógœfan erjafhan vls:
Ekki var hann Adam lengi
óðalsbóndi i Paradís.
Bjarni Ásgeirsson kom eitt sinn inn
í kjötbúð í Reykjavík, keypti læri og
þótti það dýrt. Þá kvað hann:
Þarsem einn á öðrum lifir,
efhishyggjan verðurrik;
þess vegna kemst enginn yfir
ódýr lceri ’ I Reykja vík.
Björn Björnsson, faðir Ragnars
fyrrum dómorganista, heyrði vísuna
og kvað:
Bjarni hann er bœndaprýði,
blíðra svanna hylli kýs,
gœtnum manni gramt þótt
svíði
ganglimanna hái prís
Kjartan Sigurjónsson sendi Jónasi
Árnasyni þessa afmælisvísu:
Heillakveðju, kempangóð,
kosti þína ég einlœgt met:
feiknaraddsvið, fögur hljóð,
fyndni og músíkalitet.
Egill á Húsavík kvað hafa gert þessa
vísu, er ungmenni þar nyrðra ætluðu
upp á öræfi:
Þegar œskan ástarfund
á i Vonarskarði,
strokinn verðurmjúkri mund
„Melgrasskúfurinn harði”
Ég er ekki viss um, að ég fari rétt
með fyrstu ljóðlínur Egils og bið ég
hann og lesendur þá velvirðingar á
því, ef rangt er með farið.
Lúðvik Kemp orti um mann, sem
honum þótti ekki sérstakur
bragsnillingur:
Korða-stœrir frægðir fœr,
fjandann sœrir burt með rúnum.
Eddu lœrir Ijóðakœr,
Ijámýs slœr l Bragatúnum.
Æsirstyðja aldinn rekk.
Eftir hryðjur, karp og lœti,
inni’á miðjum Braga — bekk
bjóða gyðjur honum sæti.
Séra Jón á Bægisá orti, líklega eftir
ótímabæra barneign:
Lukkutjón þá að fer ört,
ekki’er hægt að flýja.
Betur hefði Guð minn gjört
aðgelda mig en vigja.
Björn Ólafsson Hrollaugsstöðum
orti:
Margt er það, sem gremur geð,
glöggra kennir spora.
Illa fór hann ormur með
Evu móður vora.
Og svo kemur hér kviðlingur nýrri
af nálinni. Sá er eftir Jónatan Jakobs-
son, Miðfirðing að ætt og síðast skóla-
stjóra Fljótshlíðarskóla. Hann hefur
verið fullur rómantiskrar stemmn-
ingar, er hann orti þetta:
Um Hljómskálagarðinn er heilnæmt að ganga,
hallast þar margur að ungmeyjarvanga,
hugsar til kvöldsins og lætur sig langa,
— leitar þá upp, það sem vant er að hanga.
Ég óska þess svo að lokum, að sem
flestir sendi mér visur og kviðlinga —
og ekki sizt botna eða fyrriparta. Ég
mun birta slikt efni í næsta þætti, ef
það berst mér nógu snemma í hendur.
Merkt: Helgarvísur c/o Dagblaðið
og Visir.
Fermingargjafir!
SENCOR S 4440
kr. 3.580 SENCOR S 4560
kr. 4.590 SENCOR S 8850
kr. 1.215
SENCOR S 4540 kr. 4.880 SENCOR S 4380 kr. 2.575 SENCOR S 4370 kr. 2.790
Hvergi meira úrval - Besta verðið
SJÖNVARPSMIÐSTÖÐIN HE
SÍÐUMÚLA 2 103 REYKJAVlK
SlMAR: 91-39090 VERSLUN - 91-39091 VERKSTÆÐI
10% STAÐGREIÐSLU-
AFSLÁTTUR
FRAM YFIR FERMINGAR
u