Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1982, Qupperneq 6
6
DV. FÖSTUDAGUR 3. SEPTEMBER1982.
Grunnskólinn Hofsósi
Kennara vantar að Grunnskóla Hofsóss. Almenn
kennsla, húsnæði í boði.
Upplýsingar veitir skólastjóri í síma: 95-6386 og
95-6346.
] Utgáfufyrirtæki
óskar eftir starfsfólki við afgreiðslu strax.
Umsóknir sendist til augldeildar DV, Þverholti
11, fyrir kl. 18, þriðjudaginn 7. september, merkt:
„Afgreiðsla 700”.
Verksmiðjustörf —
fléttað garn
Hampiðjuna hf. vantar stúlkur í fléttivéladeild
fyrirtækisins.
Deildin
er fléttivéladeild Hampiðjunnar sem er á verksmiðjusvæði
fyrirtækisins við Hlemm. í deildinni er framleitt fléttað garn
úr plasti.
Starfið
felst í því að fylgjast meö fléttivélum sem flétta garnið og
vindivélum sem vinda plastþræði á spólur.
Unnið er á tvískiptum vöktum 5 daga vikunnar frá kl. 7.30 til
15.30 og kl. 15.30 til 23.30. Einnig er unnið á næturvöktum ein-
göngu.
Umsækjandi
þarf að vera vandaður í umgengni og stundvís.
Mötuneyti á staðnum.
Nánari upplýsingar veita verkstjórarnir Ágúst og Bryndís á
staðnum.
H F. HAMPIÐJAN
STAKKHDLTI 4
REYKJAVÍK (iccland)
IMauðungaruppboð
sem auglýst var í 35., 38. og 42. tölublaði Lögbirtingablaðs 1981, á
Steypustöð í Þverhamarslandi, Breiðdalsvik, þingl. eign Eliasar P.
Sigurðssonar, fer fram samkvæmt kröfu Iðnlánasjóðs á eigninni
sjálfri, þriðjudaginn 14. september 1982, kl. 11 árdegis.
Sýslumaðurinn í S-Múlasýslu.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 113. tölublaði Lögbirtingablaös 1981,3. og 9. tölublaði
1982, á M.S. Krossanes SU-5, þingl. eign Vogs hf., fer fram samkvæmt
kröfu innheimtu ríkissjóðs við skipið í Djúpavogshöfn, þriðjudaginn
14. september 1982 kl. 15.
Sýslumaðurinn í S-Múlasýslu.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 113. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1981, 3. og 9. tölu-
blaði 1982, á geymslu- og fiskþurrkunarhúsi við Selnesveg á Breiðdals-
vik, þingl. eign Braga hf., fer fram samkvæmt kröfu innheimtu rikis-
sjóðs á eigninni sjálfri, þriðjudaginn 14. september 1982 kl. 10, árdegis.
Sýslumaðurinn í S-Múlasýslu.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 92., 94. og 96. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1981 á
Hraðfrystibúsi á Fáskrúðsfiröi, þingl.eign Pólarsíldar hf., fer fram á
eigninni sjálfri, samkvæmt kröfu innheimtu ríkissjóðs, mánudaginn
13. september 1982 kl. 14.
Sýslumaðurinn í S-Múlasýslu.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 113. tölublaöi Lögbirtingablaðsins 1981, 3. og 9. tnlu-
blaði 1982, á húseigninni Búðavegi 47 A Fáskrúðsfirði, tal. eign Rúdolfs
Midjords fer fram skv. kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavik á eigninni
sjálfri mánudaginn 13. september 1982 kl. 11 árdegis.
Sýslumaðurinn í Suður-Múlasýslu.
Neytendur Neytendur Neytendur
Hægtaðtína
sveppi fram
i september
— rætt við Agnar Þórðarson
„Mamma mín tíndi alltaf sveppi á
Kleppstúninu,” sagði Agnar Þórðar-
sók, bókavörður og leikritaskáld, þeg-
ar við inntum hann eftir sveppaferö-
um. „Hún sultaði niður í stórum stíl og
steikti ekki nema það sem af gekk.”
— Hvenærerbestaðtínasveppi?
„Eg hef nú varla fundiö þá fyrr en
um miðjan júlí. Svo er oftast hægt aö
tína þá fram í byrjun september, þaö
fer allt eftir veðráttunni. En mín
reynsla er sú, að mest sé af þeim
kringum miðjan ágúst.”
— Nú er sagt að best sé að tína
sveppieftir rigningar.
„Já, ef maður er nógu nákvæmur og
vel að sér í þessu, þá getur maöur víst
reiknaö út hvenær mest er af sveppum.
Það er ákveðið tímabil eftir rigningar
ogskúrir.”
— Hvað eru margar tegundir
sveppa hér á landi?
„Það var héma mikill sveppasér-
fræðingur á ferð fyrir nokkrum árum,
Morten Lange að nafni, og ég held að
hann hafi fundiö um 200 tegundir.
Morten þessi var mjög þekktur maður
íDanmörku, þingmaðurmeðmeiru.”
— Og hverjir af þessum 200 svepp-
um henta nú best til matar?
,,Eg held mig nú hvað mest við þess-
ar tvær aðaltegundir þegar ég tíni úti á
víðavangi, birkisveppi og furusveppi.
Birkisveppirnir kallast líka kúalubbar
af því að kýmar eru vitlausar í þá, og
það sýnir best að þeir era hollir. Og þar
sem furan vex, þar er furasveppurinn,
gulur og matargóður. Það er mikiö af
honum í brekkunum þarna hjá Vífils-
stöðum. öðra nafni kallast hann
smjörsveppur. Þetta er ágætur svepp-
ur, en matarminni en kúalubbinn.”
— Sultaröu niður sveppina?
„Já, við höfum gert það, hjónin,
bara ekki nú í ár, því viö höfum haft
svo mikiö að gera. Við höfum haft kúa-
lubbana með hænsnum og i sósur og
súpur. Annars voram við vön að
steikja þá bara — á pönnu hér áður
fyrr, en þannig era þeir dálítið
strembnir í maga, svo að nú steikjum
við þá í potti með loki á og setjum eins
og einn súputening með í lokin. Mér
finnst þaðalveg nóg.”
— Þessi ótti manna við eitraöa
sveppi, er hann kannski ástæðulaus?
„Nei, hann er það nú ekki. Það var
hérna maður sem vann við ameríska
sendiráöið. Hann átti heima vestur í
bæ, og á leiðinni heim til sín eitt sinn
tíndi hann nokkra ætisveppi. Þau hjón-
in voru mjög ánægð með þetta, en þeg-
ar þau fóru aö smakka á þeim, segir
konan allt í einu: Þessir grænu fuglar
þarna — hvaðan í ósköpunum koma
þeir? Maðurinn fann þá að hann var
að verða eitthvað skrítinn líka og það
var pumpaö upp úr þeim báðum vestur
á Landakoti. Hann sagöist nú hafa séð
eftir því, því að þau hefðu bara verið
„high” eða farið á „trip” eins og þaö
kallast. En það heyrir til undantekn-
inga að sveppir séu eitraðir. ”
BH
Þær Kristín og Jóna Gisladætur eru að tína sveppi í skóglendi, en þar og á ræktuðum túnum er best að leita að lost-
ætinu.
Úm UM EITRAÐA
SVEPPIHÉRLENDIS
— segir Bergþór Jóhannsson
,Áfín regla er að óhætt er að borða
alla sveppi hér á landi, sem era vel út-
lítandi og matarlegir. Ég segi þetta öll-
um, og enginn hefur drepist enn,”
sagði Bergþór Jóhannsson, sveppa-
fræöingur Náttúrustofnunar, þegar við
spurðum hvemig fólk ætti að varast
eitraða sveppi.
„Erlendis er fullt af sveppum sem
eru svo eitraðir að menn detta dauöir
niður ef þeir borða þá,” sagði Bergþór.
,,En það er svo h'til hætta á slíku hér að
fólk þarf ekkert aö vera hrætt. Það er
rétt að láta litla og vesældariega
sveppi eiga sig, eins og gorkúlur sem
orðnar eru svartar. Þegar líður á
haustiö fara sveppirnir að verða
slepjulegir og grotna niður, og þá borð-
ar maður auðvitað ekki. Berserkja-
sveppurinn frægi er til hérna. Hann
hefur rauðfíekkóttan hatt en svo þunn-
an að hann er ekkert matarlegur. Sem
sagt, veljið myndarlega og girnilega
sveppi og þá er ekkert að óttast. ”
ihh.
3»........................—»
Berserkjasveppur