Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.1982, Page 4
4
DV. LAUGARDAGUR11. SEPTEMBER1982.
Nyjar og spennandi
• Valdar kjúklingauppskriftir.
• Leiðbeíningar um undirbúning og matreiðslu kjúklinga.
• Dr. Jón Óttar Ragnarsson matvælafræðingu ritar inngang.
• Margar skýringamyndir.
• Þessi bækÚngur er sá fyrsti í röð bæklinga sem koma munu
út mánaðarlega með völdum uppskriftum og leið-
beiningum um matargerð.
Fæst í flestum matvöruverslunum og bóka-
verslunum landsins.
DREIFING ARSÍMI:
1—10—60
fSFOGL
VIUA
BANNA ÖLL
STRÍÐS-
LEIKFÖNG í
VERSLUNUM
Menningar- og friöarsamtök
íslenskra kvenna fagna því frumkvæði
kirkjunnar aö gera 12. september aö
almennum friöardegi. 1 málefnum
afvopnunar og friðar hljóta allir aö
vera kallaöir til ábyrgöar. Svo segir
m.a. ífrétt samtakanna.
Þar kemur einnig fram aö Menning-
ar- og friöarsamtök íslenskra kvenna
hafi barist fyrir þessum málum í þrjá-
tíu ár. Eitt af baráttumálum
samtakanna hefur veriö aö fá bönnuö
stríðsleikföng í búöum. Samtökin hafa
leitaö samstarfs viö önnur samtök og
einnig viö íslensku þjóökirkjuna sem
hefur tilnefnt samstarfsaöila til aö
vinna að framgangi þessa máls.
Samtökin hvetja allar félagskonur
og foreldra um land allt aö sækja
kirkju á morgun og taka þátt í friðar-
starfi kirkjunnar.
Siðasti áfangi byggingarstarfsins við Áskirkju er nú hafinn.
DV-mynd GVA
FJÁRSÖFNUN
TIL BYGGINGAR
ÁSKIRKJU
Dagana 12. til 19. september vel hefur unnist, ber mikiili fómfýsi
gengst Safnaöarfélag Áskirkju í safnaöarins vott, sem og áhuga. Er
Reykjavík fyrir fjársöfnun til kirkju- því ekki að efa að vel verður brugðist
byggingar safnaðarins. Verður leit- viö nú, er leitað verður eftir stuön-
astviöaöheilsauppááöllumheimil- ingi til að gera myndarlegt átak
um sóknarinnar og beöið um fjár- innandyra í kirkjunni.
stuðning til byggingarinnar eða
fyrirheitumframlagsíöar. Á næsta ári eru liðin 20 ár frá
Tilefni þessarar fjársöfnunar er stofnun Ásprestakalls og standa
þau tímamót aö síöasti áfangi vonir til aö á þeim tímamótum veröi
byggingarstarfsins er hafinn. Tekiö unnt aö taka hluta kirkjubyggingar-
er til við múrhúöun kirkjunnar að innarínotkun.
innan, jafnframt því aö vinnupallar Sunnudaginn 19. september verður
utanhúss hva verið teknir niður, guösþjónusta í Askirkju og gefst
enda ytra frágangi hússins lokið. sóknarbörnum og velunnurum kirkj-
Þær framkvæmdir, sem nú eru aö unnar þá kostur á aö skoða húsiö og
baki, hafa verið dýrar og þaö, hve væntanlega aöstöðu safnaðarins.
SÖLUSKRIFSTOFA FLUGLEIÐA í BREIÐHOLTI
Flugleiöir hafa opnaö söluskrifstofu
að Álfabakka 10 í Breiðholti. Skrif-
stofan er til húsa í hinu nýja útibúi
Landsbankans í Mjóddinni.
Söluskrifstofan veitir margs konar
feröaþjónustu og þaö sparar viðskipta-
vinum tíma og fyrirhöfn aö geta keypt
erlendan gjaldeyri á sama staö og far-
seðlana. Þessi nýja söluskrifstofa
Flugleiða er ekki síst til hagsbóta fyrir
íbúa Breiöholtshverfa og Kópavogs.
Fyrir skömmu var söluskrifstofan
aö Hótel Esju færð til á jarðhæð hótels-
ins og er nú í stóru og rúmgóöu
húsnæöi. I vor var lokið umfangsmikl-
Gerflur Gunnarsdóttir forstöflumaður söluskrifstofunnar afgreiflir um endurbótum á söluskrífstofu Flug-
viðskiptavin. leiöa í Lækjargötu.
Þurfum aö gafa silungsveiðinni meiri gaum, segir Páii
DV-mynd G.S/Ak.
svæðiö í fremsta hluta Svartár
og Fossá í Svartárdal. Þar
höfum við verið með hjólhýsi og
njóta þessar fjölskylduveiðiferð-
ir mikilla vinsælda meðal félags-
manna. Þarna er oft góð veiði og
yngri kynslóðin getur tekið þátt í
veiðiskapnum.
Ég held að það sé full ástæða
til að huga að ótæmandi mögu-
leikum í silungsveiði hér á landi,
sem er um margt ekki ómerkari
veiöi en laxveiðin,” sagði Páll
Svavarsson í lok samtalsins.
-GS/Akureyri
„ Við Blönduósingar
þurfum ekki að
kvída framtíðinni"
— Rætt við Pál Svavarsson, mjólkursamlagsstjóra á Blönduósi
„Ég er fæddur og uppalinn á
Blönduósi og hér hef ég unað
mér vel. Blönduós er staður á
uppleið og ef við nýtum okkur
þau tækifæri sem Blönduvirkjun
skapar okkur, samhliða því að
gera átak í atvinnuuppbyggingu
til frambúðar, þá þurfum við
ekki að kvíða framtíðinni,”
sagði Páll Svavarsson, nýráðinn
mjólkursamlagsstjóri á Blöndu-
ósi, í samtali við DV.
Páll tók við samlagsstjóra-
starfinu 1. júní sl., af Sveini
Ellertssyni frá Holtsmúla í
Skagafirði, en hann hafði verið
samlagsstjóri frá 1954. Mjólkur-
samlag Sölufélags Austur-
Húnvetninga, eins og það heitir
fullu nafni, var sett á stofn 1947.
Fyrsti samlagsstjórinn var Odd-
ur Magnússon, sem nú er
mjólkurstöðvarstjóri í Reykja-
vík.
Páll Svavarsson er mjólkur-
fræðingur að mennt. Hann
lærði fræðin í Þrándheimi í
Noregi, eins og margir aðrir
starfsbræður hans hafa gert.
Tók námið 4 ár; 2 ár bókleg og
eitt verklegt í Noregi, en annað
verklega árið fékk Páll að taka
hér heima. Nú er það nær liðin
tíð, að verðandi mjólkurfræðing-
ar haldi til Noregs, að sögn Páls,
en þess í stað fara þeir til Dan-
merkur. Þar er námið 4 ár, 2 ár
verkleg og 2 ár bókleg. Hugsan-
legt er þó, að hægt sé að taka
hluta af verklega náminu hér-
lendis.
A sl. ári tók Mjólkursamlag
SAH á Blönduósi á móti 3 milljón
899 þúsund og 278 lítrum af
mjólk frá 86 framleiðendum í
Austur-Húnavatnssýslu. Var
það 1.76% minna en 1980, en þaö
ár minnkaði mjólkurmagnið um
16.28% frá árinu 1979.1 ár hefur
mjólkurframleiðendum fækkað
um 3 á svæðinu, en þrátt fyrir
það er útlit fyrir að mjólkur-
magnið verði svipað og það var
á sl. ári.
Úr mjólkinni eru framleiddar
neysluvörur á heimamarkað, en
auk þess er framleitt smjör,
nýmjólkurduft og undanrennu-
duft, sem Osta- og smjörsalan
sér um dreifingu á.
„Við erum þeir einu hér á
landi, sem framleiða valsa-
þurrkað mjólkurduft úr nýmjólk
og undanrennu,” sagði Páll. ,,Þá
er vatninu gufað upp úr mjólk-
inni á völsum við mikinn hita, en
síðan eru þurrefnin völsuð og
Ioks möluð og sigtuð. Með þess-
ari aðferð verður duftið gróf-
gerðara heldur en með svo-
nefndri úðunaraðferð, sem notuð
er við hliöstæða framleiðslu á
Selfossi. Þar að auki kemur ein-
hvers konar seyðingarbragö af
mjölinu við hitann, en slíku
bragði sækjast sælgætisfram-
leiðendur eftir. Kaupa þeir því
mikiö af okkar m jöli og einnig er
það notað í ýmiskonar matvæla-
gerð,”sagði Páll.
— Nú eigið þið góða granna,
þar sem er mjólkursamlagiö á
Hvammstanga. Er samstarf á
milli þessara samlaga?
„Já, já, það hefur verið ágæt
samvinna. Við höfum séð þeim
fyrir nýmjólk og undanrennu,
sem þeir nota í brauðostinn vin-
sæla því aö mjólkin sem þeir fá
frá bændum dugir engan veginn
til að anna eftirspurn eftir þess-
um vinsæla osti. Á móti fram-
leiðum við fyrir þá ýmsar
neysluvörur, t.d. skyr, súrmjólk
o.fl.”
— Hvað gerir samlagsstjór-
inn í frístundum?
„Ætli aðaláhugamálið sé ekki
lax- og silungsveiöi,” svaraði
Páll, meö veiðiglampa í augum.
„Ég er formaður Stangaveiði-
félags Austur-Húnvetninga, sem
hefur haft Blöndu á leigu, ásamt
Stangaveiöifélagi Sauðárkróks.
Auk þess höfum við haft silunga-