Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1982, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1982, Blaðsíða 17
DV. LAUGARDAGUR13. NOVEMBER1982. 17 Emar Benediktsson á tvennum tímum F I A T Viltu nýjan — nýrrí — eidrí dýrarí — ódýrari Komdu á þeim gamla og veldu sjálfur Fíat 128 78. Verð kr. 55.000.- Ert þú í skiptahugleiðingum? Fíat 125 P 77. Verð kr. 40.000.- Við höfum nýja bíla og notaða. vokwast 76' Umfram allt góða bfla. cer. r' ' ’’ n .... Qn nnn Komdu við hjá okkur og kynntu Ford pickup 4x4 70. Verð kr. 90.000. 1 3 1 Ford Bronco '66. Verð kr. 45.000.- Toyota Mark II73. Verð kr. 35.000.- Fíat 128 Rallí 73. Verð kr. 20.000, Fíat 132 2000 79. Verð 130.000, Daihatsu Charmant 79. Verð 75.000, Datsun 180 B station 77. Verð 75.000. . M. Benz 220 dísil m/vegmæli 72. Verö I sunnudag kl. 13-17. málin. Allt á sama stað. r—-------------- | Opið iaugardag, | kl. 10-16 kr. 75.000, „Nit kemst maður ekki lengur h|á þvi ad verda milljáneri" I bókinni Seld norðurljós ræðir Björn Th. Bjömsson við fjórtán fomvini skáldsins. Bókin er unnin upp úr útvarpsviötölum sem Björn geröi á sínum tíma og þóttu einkar skemmtileg. Hún kemur út hjá Máli ogmenningu. Hér birtist kafli úr viðtali Bjöms við Sigfús Blöndahl aðalkonsúl, tals- vert styttur. — Það sem mér er sérstaklega minnisstætt um Einar var glæsi- mennska hans fyrst og fremst og þessi fljúgandi mælska. Þessi vinur hans, F.L. Rawson, var af tignum ættum mjög. Faðir hans hafði verið einkaritari Qladstone’s til dæmis og var stórgáfaður maöur. Hann var eiginlega það sem Englendingar kalla „promoter of companies”. Myndaði alls konar félög, utanlands og innan. Þeir vora óaðskiljanlegir vinir, Einar og hann, og í gegnum Rawson, held ég áreiðanlega, komst Einar fyrst í samband við Christian Science-hreyfinguna, sem var trúarleg hreyfing. Því starfi gengu þeir upp í, bæði Einar og þó náttúr- lega einkum og sér í lagi Rawson. Mér er eitt sérstaklega minnisstætt um glæsileika og mælsku Einars. Hann fékk mig einu sinni tii þess aö koma með sér á svona fund, en mér var það mjög nauöugt, því ég hafði ekki neina interessu fyrir þessu, ung- ur maður, og interesseraði mig ekkert fyrir þessum kerlingum og körlum þarna. En það fór svo að ég fór nú samt; hann sagöi að ég yrði að gera þetta fyrir sig: ,,Ég þarf að kynna þig fyrir ýmsu fólki, og þetta fólk þarft þú aö tala við og taka móti á skrifstofunni, hvenær sem því þókn- ast að hringja í vinnutíma”. Svo ég fór nú. Og ég var kynntur fyrir fjölda fólks þarna, svo mér varö nú alveg nóg um. Og svo skrafaði fólk saman, eins og maöur rabbar saman áður en fundur er settur. Og allt í einu vindur vinur minn Einar Benediktsson sér út úr hópnum og gengur upp í stóra ræðupontu og hélt þar þessa líka dæmalausu snilldarlegu ræðu. Það vantaði ekki glæsileikann, og hann byrjaði aö segja frá fyrirbæram og lækningartilraunum sínum á tveim- ur sjúklingum. Sagði nákvæmlega frá um þetta, og að sér hefði auðnast að bjarga þessum tveimur sjúklingum, sem að hann teldi sjálfur að í rauninni væri kraftaverk. En ég var nú dálítið léttlyndur svona og sagði við hann: „Heyrðu frændi” — við voram dálítiö skyldir og hann kallaði mig alltaf frænda sinn —, „heyrðu Einar, ja, þú verður nú að fyrirgefa, mér finnst einhvern veginn á mér að þú hafir ekki trúað öUu þessu sem þú varst að tala um í pontunni. En vel tókstu þig út og sannfærandi varstu, þaö verð ég að játa. — Já, í hverju orði! ” — Var þetta stór fundur? — Já það voru þarna um átta hundrað manns, í glæsUegum fund- arsal og það var svo mikU kyrrð, Bjöm, að maður gat heyrt saumnál detta, og það var svo mikil kyrrðin. Og á eftir, þegar hann var búinn að ljúkamálisínu, þá fór hann niður, og svo varð dálítiö hlé. Og þá þyrptist fólkið þarna í kringum hann alveg eins og hann væri guö bara. — Þetta hefur nú kannski veriö skáldlegur innblástur jafnmikið og trúarhiti. — Ég býst við því. Og dálítið af öðram toga spunnið: að komast í góð sambönd. Eg get ekki fullyrt það eða sagt þaö meö vissu, en ég geri ráð fyrir aö það hafi verið eitthvaö um það. Mér kom það ekkert við og ég fór ekki neitt inná þaö við hann. En það voru meiri lætin þegar hann kom niður. Svo fór Mr. Rawson í pontuna á eftir og hélt þar aðra langa ræðu um fjöldalækningar sem hann hafði framkvæmt síðan á síðasta fundi, og var geröur góður rómur aö. En því varð ég mest hissa á, að það minnkaöi ekkert hópurinn í kringum Einar. Kvenfólkið, þaö vottaöi honum þakklæti sitt af einlægu hjarta áreiðanlega, því það táraöist sumtafþví. — Þennan tíma í London, Sigfús: Hafði Einar mikið fé umleikis? — Hann hafði það oftast nær og var afskaplega rausnarlegur og bauð mönnum út. Þeir borðuðu oft saman, Rawson og hann, en það var kyndugt aö sjá þá herra borða saman, því að Rawson borðaði ekkert nema grjón eða með grjónum í, en Einar borðaöi eins og við, eins og aðrir mennskir menn, svona það sem gott var og sérstaklega í góðu kéti. En ég þekkti ekkert til hvaöa laun hann hafði, en þaö kom oft fyrir þetta, aö hann kom til mín og fékk eitt og tvö pund lánuð, og alltaf borgaði hann þetta tvöfalt; alltaf. Það skeikaði ekki. Svo kom hann stundum til mín að heilsa upp á mig og klárá sínar sakir við Stevenson, diktera honum bréf, og þá kallaði hann stundum á mig fram og sagði: „Nú er maður ekki blankur”. Og dró þá upp úr vösum sínum alls staðar hreint hundrað punda, fimmtíu punda, tuttugu punda og tíu punda nótur. — Menn úr Selvogi við heyskap hjá Einari Benediktssyni i Herdisarvik. Einar er þriðji frá vinstri, Hlin sjötta frá hægri og Jón Eldon þriðji frá hægri. 10 Moorgate. A þeirri skrifstofu höfðu þeir Einar ogF.L. fíawson IOO manns i vinnu. 10 Moorgate er i um 100m fjariægð frá Engiandsbanka og 200—300m frá Kaupholí Lundúnuborgar, sem sagt ihjarta fjármáia- hverfisins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.