Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1982, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1982, Blaðsíða 21
DV. LAUGARDAGUR13. NOVEMBER1982. 21 titmtuf/t ftjrír htmdsmáa að leíka á tateka harmónflm — segfr Mogens Ellegaard ..ta‘knískia*“ haraióníkusnillmgnr Mogens Ellegaard, heimsfrægur harmóníkuleikari, hélt tónleika hér á landi dagana 5. og 7. nóvember. Kom hann hingaö til lands á vegum Tón- skóla Emils Adolfssonar, aö þessu sinni ásamt eiginkonu sinni, Mörtu Bene, og 16 mánaöa dóttur, Lerke. Mogens Ellegaard er dósent viö Det kgl. danske musikkonservatorium í Kaupmannahöfn. Má segja aö hann sé brautryðjandi í kennslu á harmóníku, sem hann hefur látiö gera breytingar á, en hún er meö melodíbassa. Hefur hann fariö víöa og kynnt þetta hljóö- færi. Sjálfur leikur hann á Bayan model, sem hefur „umframstækkaö” borð, eöa 7 áttundir hvorum megin. Þegar tónleikum, sem haldnir voru í Norræna húsinu, lauk um síöustu helgi tók blm. DV Mogens Ellegaard tali. Hann var fyrst spuröur aö því hve gamall hann heföi verið þegar hann fyrst hóf nám í harmóníkuleik. „Þetta byrjaöi þannig aö þegar ég var átta ára féll ég niður af svölum og fékk mikið höfuöhögg. Eg varö að liggja lengi á sjúkrahúsi. Til aö stytta mér stundir færöi faöir minn mér litla harmóníku,” sagöi Mogens. „Pabbi lék mikiö á harmóníku og hugsaði ég því aldrei út í aö ég gæti ekki spilað. Þaö þótti sjálfsagöur hlutur aö ég hefði tónlistarhæfileika og því fór ég aö æfa mig. Strax og ég gat yfirgefið sjúkra- húsiö hóf ég nám á harmóníku í tón- listarskóla.” „Accordeon er takka- harmóníka með melodíbössum" — Flestir tala um harmóníku eöa jafnvel „nikku” en þú leikur á „acc- ordeon”. Hver er munurinn á þessum hljóöfærum? „Accordeon er ekki aöeins takka- harmóníka heldur eru á henni melodí- bassar,” sagöi Mogens. „Accordeon gefur mun meiri möguleika á alla vega tónbrigöum. Eiginlega eru þetta tvö ólík hljóöfæri og skiptast menn í tvo hópa, sem á þau leika, annarr vegar harmónikuleikara og hins vegar þá sem leika á accordeon.” Sagöist Mog- ens vita fyrir víst aö heföi hann leikið á venjulega harmóníku hefðu fleiri harmóníkuunnendur mætt á tónleik- ana, því accordeon er ekki eins útbreitt hljóöfæri hér á landi. Einnig eru takka- harmóníkur hér minna notaðar en harmónikur meö píanóboröi. Tónleika- salurinn var þó nærri fullsetinn í bæöi skiptin. „Þeim líst ekkert á alla þessa bassa og tilbrigði sem accordeon býöur upp á,” sagöi Mogens um þá sem í áraraðir hafa leikiö á eldri harmóníkugeröir. Mogens Ellegaard lék á accordeon meö Sinfóníuhljómsveit Islands áriö 1976 á Norrænum músíkdögum. Var þaö í fyrsta skipti sem accordeon ein- leikur var fluttur með henni og mark- aöi þaö tímamót í tónlistarflutningi hér á landi. Þá um vorið sama ár giftist hann Mörtu Bene, en hún hefur einnig leikið á accordeon meö manni sínum. Lék hún m.a. nú síðast í Norræna hús- inu á nýliðnum tónleikum. Þau léku skemmtilegar fantasíur sem eru sér- samdar fyrir tvær harmóníkur. Mog- ens lék einnig fleiri verk sem voru saminfyrir hann. „IMótur eru fyrir mig eins og öryggisnet fyrir línudansara" Marta Bene erfædd í Ungverjalandi. Hún nam tónlist viö Bela Bartok Kon- servatorium í Búdapest og síöan í fimm ár í sólóistadeild viö Frans-Uszt- tónlistarháskólann í Weimar D.D.R. „Marta lék aöeins á píanóharmóníku áður en ég kynntist henni,” sagöi Mog- ens, „en nú leikur hún á mína gömlu accordeon af gerðinni Hohner. Aðal- kosturinn viö að leika á takka- harmóníku er aö unnt er aö ná tveimur áttundum án fyrirhafnar. Þaö er því einkar hentugt fyrir handsmáa aö nota fremur takkaharmóníku en þær sem hafa píanóborð,” sagöi Mogens. Þau hjónin kenna nú bæöi á accord- eon viö Det kongelige danske musik- konservatorium. Blm. spuröi þau hvert álit þeirra væri á harmóníkuleik án nótna. Mogens svaraöi þanni: „Ef þú lærir ekki aö lesa, þá getur þú aö- eins sagt þaö sem þú hefur heyrt. Hins vegar ef þú lærir stafi og lestur, þá ert þú engum háður, þú getur bætt viö þig oröaforöa og notað orðin á þinn hátt. Sama er aö segja um nóturnar. Hafi maöur lært aö lesa nótur getur maöur leikið eftir þeim í ýmiss konar uppröð- un. Maður kemst ekki eins langt með því aö leika eftir eyranu.” — Ert þú mjög háöur þínum nótum þegar þú heldur tónleika? „Línudansari stígur öruggur spor sín ef öryggisnet er undir. Eg er örugg- ari á tónleikum ef ég hef nótumar fyrir framan mig, þó svo aö ég fylgi þeim ekki rakleitteftir,” svaraöi Mogens. Blm. spuröi þá hvort ekki kæmi oft eitthvað óvænt fyrir á tónleikum. „Jú, jú, síöast nú áöan var síöasta nótnablaöiö á hvolfi. Ég var svo lán- samur aö smáhluti lagsins sem ég lék þá var einungis meö bassa, þannig aö ég hafði aöra höndina lausa til aö snúa nótunumvið.” „Myndi flytja eldri verk mín á annan hátt í dag" — Hvaö tekur viö þegar þú ferð frá íslandi? „Eg mun halda þrenna tónleika meö sinfóníuhljómsveitum í Bandaríkjun- um. Viö fljúgum heim í desember, þá munum viö koma við á íslandi, þaö veröur aöeins um einnar stundar viö- koma og ég býst ekki viö aö viö förum að leika á flugvellinum,” sagði Mog- ens. „Mikil tónlistahátíö veröur. síöan í janúar, þá koma harmóníkuleikarar víös vegar aö til Danmerkur og verðui- þar mikil samkoma. Kennarar frá öll- um Noröurlöndunum munu mæta og m.a. einn frá Rússlandi og einn frá Bandaríkjunum.” — Hvaö finnst þér um þínar fyrstu plötur? „Þegar ég heyri 20 ára gamlar plöt- ur sem ég hef leikiö inn á, þá finnst mér að margt heföi betur mátt fara. Eg hefði flutt lögin á allt annan hátt í dag.” Ekki haföi hann tölu á öllum þeim breiöskífum sem hann hefur gef- iö út, en eina plötu hafa þau hjónin leik- iö innásaman. Þaö er ekki orðum aukiö þó menn fullyröi aö Mogens Ellegaard sé fyrsta flokks tónlistarmaöur. Hann sýnir alla þá fjölhæfni sem hugsast getur í harmónikuleik. Vrnis uppátæki hans í tónlistarflutningi vöktu undrun og ánægju meöal hlustenda í Norræna núsinu. Lék hann m.a. tónverk eftir Poul Rovsing Olsen og notaöi þá undir- leik sinn á segulbandi, einnig sló hann oft taktinn á hljóöfærið. Var þetta óvenjulegur flutningur og einkum vakti þaö mikla athygli er hjónin léku bæöi. Leikur þeirra var mjög hnitmið- aöur, enda listamenn aö verki. -RR Mjólkundagar’82 í húsi Osta ogsmjörsölunnar, Bitmhálsi2 Kynning verður á nýjustu framleiðsluvörum mjólkursamlaganna og boðnar bragðprufur. Einnig verða neytendakönnun og atkvæðagreiðsla. Maikaóur Fjölbreytt úrval af ís- og ostanýjungum á kynningarverði. Hátíðaboió Kynnt verða þrjú hátíðaborð auk partíborðs. Bæklingar með uppskriftunum, munu liggja frammi. Hlutavelta verður í gangi allan tímann og verða vinningar m.a. ýmsar mjólkurafurðir. Okeypis aógaiigur Opið laugardag og sunnudag frá kl. 13 - 20. u»»s,tG f=P- —'—1 in ni in in ni m\ 1] 1 il iwaSaÉPÍBroDldBi 10 * rj i j G" n s ! 1 1 Mjólkurdagsnefnd /vteð aðstoð segulbandsins flutti Mogens tónverk er vel hæfir sem undir- leikur i kvikmynd. Það heyrðust marg - konar hljóð sem áttu að vera i skepnu að gefa upp öndina, að hans sögn. DV-mynd Einar Ólason

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.