Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1982, Qupperneq 18
18
DV. LAUGARDAGUR13. NOVEMBER1982.
Haust á Þingvölliim
Þingvellir, þjóðgaröur Islendinga og
höfuöstaöur íslands um nær 9 aldir,
þaö er frá 930 til 1800. Þar hafa gerst
flestir þeir atburöir, sem mestu hafa
ráöiö um örlög íslendinga frá því er
Alþingi var stofnaö, uns þaö var lagt
niöuráriö 1798.
Á 17. öld voru Þingvellir helsti af-
tökustaöur landsins. Þá voru 9 menn
brenndir þar fyrir galdra, auk þess
voru menn höggnir, hengdir og hýddir
eftir því hver jar sakirnar voru, en kon-
um drekkt í Öxará. Á Þingvöllum átti
kristnitakan sér stað áriö 1000, þar
fóru fram fyrstu biskupskosningar ár-
iö 1053, og þar játuðust Islendingar
undir Noregskonung 1262 til 1264, svo
eitthvað sé nefnt.
Líklegt þykir aö endur fyrir löngu,
og löngu fyrir Islandsbyggö, hafi
landspildan þar sem Þingvellir
standa sigið á 40 kílómetra löngu og 5—
10 kílómetra breiöu svæði. Hafi þetta
átt sér staö í miklum eldsumbrotum
eöa jaröskjálftum og viö þaö hafi hinar
miklu hraungjár, Almannagjá og
Hrafnagjá, myndast, svo og dældin eða
kvosin sem Þingvallavatn fyllir nú.
Þaö er fallegt á Þingvöllum. Margir
segja aö þar sé fallegast á Islandi. Víst
er um það aö alltaf er sérstök upplifun
aö koma til Þingvalla, slík er náttúru-
feguröin. Þaö þótti ljósmyndara DV
líka, Gunnari V. Andréssyni, en þessar
myndir tók hann þar á dögunum.
-KÞ