Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.1982, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.1982, Blaðsíða 2
2 DV. MÁNUDAGUR 13.DESEMBER1982. Jólagetraun DV — VIII. hluti: Sér ffyrir endann á getrauninni Nú þegar liður að lokum þessar- ar jólagetraunar og einnig sér fyrir endann á raunum jólasveinsins væri ekki ur vegi að rifja aðeins upp reglur leiksins. Þegar síðasta ævintýraför jóla- sveinsins er á enda runnin, sem gerist nú á miðvikudaginn, ættu þátttakendur að skoða úrklipp- urnar sinar með lausnunum. Á fimmtudag birtist svo í blaðinu eyðublað sem þeir, sem senda inn lausnir, skulu fylla út og senda síðan ásamt lausnunum til rit- stjórnar DV, Síðumúla 12—14, fyr- ir 23. desember. Þann 28. des. verður siðan dregið úr réttum lausnum og reynt að koma vinn- ingum tilhinna heppnu. Vandið ykkur nú. Það væri synd að feila á lokasprettinuml — Eitthvað verður maður að gera þegar maður er bara i minnihlutastjórn! Nú hleypur jó/asveirminn eitthvað norðuryfir, en hann veit nú minnst af því sjáffur. Hann heldur að áttavitar séu skrýtin úr. Nú skuluð þið lesendur góðir líta yfir úrklippurnar ykkar því nú fer að líða að lokum getraunarinnar. Hvert hefur jólasveinninn villst nú? Hannerí.................. íggur um Amsterdam í vetur liggur ódýra leiðin til Kanaríeyja um Amsterdam. Við bjóðum 11, 18 eða 25 daga ferðir með brottför alla þriðjudaga svo auðvelt er að finna brottfarardaga við hæfi og stýra lengd ferðarinnar eftir hentugleikum. Flogið er til Las Palmas óg Gran Canaria eyjunnar. í boði eru hótel, íbúðir eða smáhýsi (bungalows) fast við friðsælar baðstrendur og fjörugt skemmtanalíf. í upphafi ferðar er dvalist yfir eina nótt í Amsterdam. Síðan er flogið beint til Las Palmas en síðustu tveimur nóttum ferðarinnar eytt í Amsterdam, ósvikinni miðstöð menningar, verslunar og skemmtunar í Evrópu. I^FERÐA M MIÐSTOÐIN AÐALSTRÆTI 9 S. 28133 (mtMTK FERÐASKRIFSTOFA MALLVEIGARSTÍG I — SÍMI 28J88 Flugfélag með ferskan blæ ARNARFLUG Lágmúla 7, sími 84477 Ö ib Alltaf með fullfenui að landi... Áhafnir á fjórum skipum í íslenska flotanum kvarta aldrei um aflabrest. Þaö eru áhafnirnar á Perlu, Sandey 1, Sandey 2 og Sandey 3. Skip þessi stunda veiöar í Faxaflóanum og koma meö þúsundir tonna aö landi á hverjum degi. En aflinn fer hvorki á diskana í eldhúsinu né í frystihúsin, því hann er ekkert annaö en sandur af botni Flóans. Veiðisvæðin eru þrjú — og tegundimar þrjár, þaö er byggingarefni, fyllingarefni eöa skeljasandur fyrir sementsverksmiöj- una. Meö veiöinni hafa stundum flotið aöskotahlutir og má þar til dæmis nefna fallbyssukúlur og rostungs- tennur. Hvort eitthvaö slíkt hefur veriö í þessum afla vitum viö ekki, en þama er eitt af sanddæluskipunum aö losa í Sundahöfn eftir vel heppnaða veiði- ferð. -klp/DV-mynd EinarÚlason. Manntalið: Fyrstu niðurstöð- urnar á næsta ári „Vinnsla manntalsins gengur sam- kvæmt áætlun,” sagði Guöni Baldurs- son hjá Hagstofu Islands í samtali viö DV. „Meginniöurstööur manntalsins í heild veröa gefnar út 1984 en niður- stööur um ferðatíðni og -máta fólks til vinnu veröa birtar á næsta ári.” Manntaliö fór sem kunnugt er fram í janúarlok 1981. Guöni var spuröur aö því hvort margir heföu svikist um aö svara. Hann kvaö lítiö hafa veriö um þaö ef nokkuö. Hann sagöi að enn heföi ekkert veriö gert varðandi þá sem ekki heföu svaraö, en þeim var hótaö 500 króna sekt á sínum tíma. „Margar af þeim upplýsingum um þetta fólk sem okkur vantar liggja fyrir hjá opin- berum aöilum, en þaö kostar mikla peninga og tíma aö afla þeirra þannig,”sagöiGuðni. _ýs Alþýðubandalag á Vestfjörðum: Fyrri umferð forvals lokið Fyrri umferö forvals Alþýðubanda- lagsins á Vestfjöröum fyrir næstu þingkosningar er lokiö en talning er ekki hafin. Kosningu lauk síðastliöinn fimmtudag en talning mun ekki hef jast fyrr en öll gögn hafa borist til Isa- fjarðar. Vegna erfiöra samgangna gæti svo farið að ekki yrði hægt að hefja taln- ingu fyrr en um miöja þessa viku. Koma þarf atkvæöum af öllum Vest- fjöröum, þar meðStrandasýslu, til Isa- fjarðar. -KMU.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.