Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.1982, Page 43
43
DV. MANUDAGUR13. DESEMBER1982.
Sandkorn Sandkorn Sandkorn
Samúel Örn á
Tímann
Samúel örn Erlingsson,
íþrórtafréttamaöur útvarps
og landsliösmaður í blaki,
tekur viö starfi íþróttafrétta-
manns Tímans um áramótin.
Hann hyggst þó áfram vera í
afleysingum á útvarpinu.
Samúel, sem ráöinn var á
útvarpið tll að létta á Her-
manni Gunnarssyni um helg-
ar, hefur aö undanförnu veriö
einn með íþróttir útvarpsins.
Hermann hefur verið á
sjúkrahúsi en mun brátt
koma til starfa á ný.
Gufaður upp
Verslun ein í Garðabæ lagði
upp laupana á dögunum. Eins
og oft í slíkum tilvikum
þurftu margir, sérstaklega
heildsalar, að ná tali af
eigandanum. 1 þessu tilviki
gekk mjög illa aö ná í skottið
á honum.
Heildsali nokkur haföi
spurnir af verslunareig-
andanum í íþróttahúsinu i
Garðabæ og hringdi þvi þang-
aö. Húsvöröurlnn svaraði.
Jú, verslunareigandinn var
staddur í húsinu en í gufu-
baöi. Heildsalinn sagöist eiga
mjög brýnt erindi viö mann-
inn svo að húsvörðurinn
bauðst til að sækja hann i
gufubaðið. Húsvörðurinn
kom að vörmu spori til baka:
„Þvi miður, hann virðist bara
hreinlega vera gufaður upp,”
tilkynnti hann heildsalanum.
Geir sá eini sem
stýrt getur
þjóðarskútunni
Á einnar og hálfrar klukku-
stunda löngum fundi á rit-
stjórn Morgunblaðsins voru
blaðamenn inntir álits á úr-
slitum prófkjörs Sjálfstæðis-
flokksins i Revkjavik. En þvi
næst spurðu. blaðamenn rit-
stjórana um þeirra álit. Rit-
stjóramir töluðu lengi en
komust að þeirri niðurstöðu
að það væri aðeins einn
maður sem stýrt gæti þjóðar-
skútunni í ömgga höfn, Geir
Hallgrímsson.
Nú vita menn hver boð-
skapurinn veröur á þeim bæ á
næstunni.
Verði Ijós, sagði
forsætisráðherra
- og það varð
Ijós
Þegar Rafmagnsvcitur
rikisins höfðu iokaö fyrir allt
rafmagn til Grindavikur sást
Kjartan Jóhannsson, for-
maður Alþýðuflokksins og
þingmaður Reyknesinga,
ganga að Gunnari Thorodd-
sen, þar sem hann sat i þing-
sal. Sáu menn að Kjartan |
hvíslaði einhverju í eyra for-
sætisráðherra.
Þvi næst sást forsætisráð-
herra risa úr sæti sinu og
ganga fram. Hann fór i sim-
ann, hringdi i Rafmagnsveit-
uraar og sagði að opna yrði
fyrir rafmagnið til Grinda-
vikur. Skömmu síðar loguðu
ljósin þar á ný.
Forrétturinn
sjávarréttasalat
en lambahryggur
sem aðalréttur
Hið glæsilega og umtalaða
eidhús Framkvæmdastofnun-
ar var tekið í notkun á ný eftir
breytingar síðastliðinn
fimmtudag. Fyrsta máltíðin
var ekkert slor, i forrétt var
sjávarréttasalat en aðal-
rétturinn var lambahryggur.
Næsta dag var boöið upp á
smálúðuflök og súpu.
Til að fá að gæða sér á
kræsíngunum þurfa starfs-
menn að afhenda þar tQ
gerða miöa. 60-miða kort
kostar 500 krónur. Fyrir kjöt-
rétt þarf að afhenda 4 til 5
I miða en fiskréttur kostar 2 til
3 miða. Kjötréttur kostar þvi
um 40 krónur en fiskréttur
um 20 krónur.
Sem fram hefur komið i
fréttum er áætlað að
kostnaðurinn við að endur-
bætumar á eldhúsinu nemi
um 600 þúsund krónum. Ein-
hver hefur reiknað út að fyrir
þá upphæð megi kaupa elda-
vél fyrir hvera einasta starfs-
mann hússins.
Menn verða jóla-
glöggir
Nú hafa menn fundið upp
nýtt lýsingarorð, orðið jóla-
giöggur. Drekki menn jóla-
glögg verða þeir jólaglöggir.
Fái menn sér meira jólaglögg
verða þeir jólagleggri.
Umsjón:
■ Kristján Már Umiarsson.
SJÓNVÖRP
GÓÐ? BETRI?
BEST?
EIGENDUR ITT SJÓNVARPSTÆKJA
ERU EKKI í VAFA.
VIÐ ERUM ÞAÐ EKKI HELDUR.
VILT PÚ
SANN-
FÆRAST?
LLIR?
SJ ÓNV ARPSDEILD
SKIPHOLTI 7 - SÍMAR 20080 8c 26800
Teg. Puffin’s.
Litir: svartogblátt.
Stærftir: 36—46.
Teg. Westland.
Litir: brúnt og svart.
Stæröir: 40—46.
Teg. Mode Team.
Litir: svart og brúnt.
Stærftir: 41—45.
Teg. Westland.
Litur: svartm/gúmmísóla.
Stærðir: 40—46.
MIKIÐ ÚRVAL AF SKÓM Á
ALLA FJÖLSKYLDUNA.
Skó-
verslun
Kópovogs
Hamraborg 3. — Sími 41754.