Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.1982, Qupperneq 4
4
DV. LAUGARDAGUR18. DESEMBER1982.
Villti tryllti
Villi hættir
um áramótin
— Vissi ekki til þess að Sigmar í Sigtúni
hefði leyfi til að selja krökkum
brennivfn, segir Tómas Tómasson
■ Jafnt á sjó sem í landi:
Leiðinlegasta auglýsing ársins
— en getur komið sér vel að lesa hana og við lofum þér
að auglýsa ekki meira fyrir jól.
ONKYO Mjómtaki. útvarpstoki. sagubónd. ptötuspfarar.
BELTEK bfttaki. aagufcönd, hátatarar. kraftmagnarar.
SONICS h
SANGEAN starso faróaútvarpstaki mað 4-7-9 bytvum.
Sambyggt útvarp og tagufcand mono og stareo.
LOEWE mono útvarpstakL
PHILIPS útvarpskiukkur.
NOROMENDE vaaadhkó meó og án útvarp*.
Vidaospóéur VHS og Bata.
Hrokmvökvi fyrír videotnld og Mjómpiötur.
hfljómptötur, alar njjuttu ftienskar og erlendar.
Innioftnet á sjónvörp.
Útvarpstoppar.
Ýmsar tagumfir af ioftnetsfcöpkim.
Kapal og snúrur.
Sjónvarpsmagnarar.
Loftnets r o ta torar á skip og báta.
Hátalarar meó spemi og Styríutii ( skip og báta.
Gjalartiom.
CB loftnat á bfla. báta og hús.
VHF tatstöóvar í bfla og báta.
CB
VHF
Útvarpsloftnet á bfta.
Náéar I plötuspiara. rmkið úrvaL
Pickup I pfötuspiara.
Pickup ( gftara.
VHF loftnat á bfta, báta og hús.
KORG gitarstifer.
KORG NjóóMarastifcr.
Spamu- og ohm-maiar, ódýrír.
NATIONAL I
Sjónvarps-krossar og vagnar undr sjónvarpstiBkl
r og
Standarar undr hátatara.
Standarar umfir: videospókjr, snaaklur. Njómpiötur.
Töskur umfir videospófcg. snarídur og Mjómpiötur.
Vmám.
Stungur og rofar.
DnrggL Gu<m
O MWMtGA
Slmi (96) 23626 V-/GlefáfOC.!u 32 • Akufeyfi
Haugalygi
hjá Tomma
— drengurínn ætti að passa sig á því að
vera með kjaft, segir
Sigmar Pétursson
„Þetta sem Tommi segir um yngri
en átján ára hjá mér er haugalygi,”
sagöi Sigmar Pétursson, eigandi Sig-
túns, er DV bar undir hann orð Tómas-
ar Tómassonar.
„Það þýðir ekkert fyrir hann að fara
að hengja hatt sinn á þennan aldurs-
hóp hjá mér því að eftirlitsmenn hafa
gert könnun hjá mér oftar en einu sinni
og oftar en tvisvar. A meöan ég má
hleypa fólki inn niður í átján ára aldur
þá hleypi ég því inn. En það er alveg úr
lausu lofti gripiö aö það sé fólk hérna
undir átján ára aldri. Eg legg ríka
áherslu á það að því lágmarki sé
fylgt,” sagði Sigmar.
Hann var spurður um h vort fólk milli
átján ára og tvítugs ætti auðvelt með
að nálgast áfengi í Sigtúni:
„Mér er ekki kunnugt um það enda
fyrirmæli til þjónanna um að afgreiöa
ekki fólk undir lögaldri.”
, JEf Tommi ætlar að vera með svona
fullyrðingar og rógburð væri kannski
rétt að gera könnun hjá honum. Eg á
strák og stelpu, annað þeirra er 13 ára
og hitt 14 ára. Þau voru fastagestir
þarna hjá honum og þeirra skólafélag-
ar. Þaö er spuming hvort þar sé ein-
hver yfir 16 ára og það á laugardags-
kvöldi.
Eg er ansi hræddur um að það sé
eitthvaö annað að en þaö að fólkið fari í
Sigtún. Hvers vegna tæmdist Hallæris-
planið fyrst þegar Tommi opnaöi og
hvers vegna er það orðið fullt aftur?
Það væri hægt að benda honum á það.
Nei, það er allt of dýrt hjá honum.
Svo líka það, sem krakkamir hafa
kvartað sérstaklega um, bæði mínir
krakkar og fleiri sem ég hef heyrt um,
að það er akkúrat engin loftræsting hjá
honum. Þarna er reykjarsvælan svo
mikil aö krakkar sem vilja skemmta
sér á heilbrigðan og heiöarlegan hátt
hafast ekki við þama inni. Einnig eru
myrkrið og skúmaskotin þama svo of-
boðsleg að þar bjóðast næg tækifæri
fyrir krakkana að staupa sig inni hjá
honum. Þegar krakkar, 13, 14 og 15
ára, fara þarna inn með vín ætti dreng-
urinn bara að passa sig að vera ekki
með kjaft.
Ef þessi staður væri rekinn á heil-
brigðan hátt, eða annar álíka staöur
væri fyrir hendi, þá mundi ég miklu
ferkar vilja vita af bömunum mínum
þar heldur en niðri á Hallærisplani,”
sagði Sigmar Pétursson.
Unglingaskemmtistaðurinn Villti
tryllti Villi viö Skúlagötu hættir um
áramótin. Síöastidansleikurinn veröur
á gamlárskvöld.
„Þaö var ekki eins mikil spenna
fyrir staðnum og ég átti von á þrátt
fyrir að mikiö hafi verið í hann lagt,”
sagði Tómas Tómasson, eigandi Villta
tryilta Villa.
„Eg vissi ekki til þess að Sigmar í
Sigtúni hefði sérstakt leyfi, sem virðist
vera, til þess að selja unglingum
brennivin. Ég veit til þess að stundum
á laugardagskvöldum eru 2.000 til 2.500
manns inni í Sigtúni. Á sama tima er
ég kannski með 200 manns.
Veiflestir krakkanna í Sigtúni eru
undir tvítugu, líklega 60 prósent. Þar
af eru að minnsta kosti 30 prósent
undir átján. Mér finnst mjög óheilbrigt
að Sigtún skuli komast upp meö þetta.
Þegar uppistaöan í gestunum er farin
að vera á þessum aldri er eitthvað
óeðlilegt að ske. Látum vera þó að
siæðist einhverjar smartpíur inn í
Hollywood, þær drekka fæstar brenni-
Tómas Tómasson: Krakkarnir v/lja
frekar fara i Sigtún þar sem kostar
30 krónur inn og hægt er að fá
brennivin. D V-mynd Einar Ólason.
Sigmar Pótursson: Mikil reykjarsvæia hjá Tomma, myrkur og skúmaskot
og næg tækifæri fyrir krakkana að staupa sig hjá honum.
Fyrir utan Villta tryllta Villa. Staðurinn var ætlaður krökkum sem ekki hafa aldur tii að fara á vínveitinga-
staðina. DV-myndS.
vín, eru svo uppteknar við að vera sæt-
ar.
Eg vil taka fram að ég lái krökkun-
um ekkert að vilja fara frekar í Sigtún.
Mér finnst það gott hjá krökkunum. Ég
myndi fara þangaö sjálfur ef ég væri á
þeirra aldri, miðaö við það sem þar er
á boðstólum, 30 krónur í inngangseyri
og brennivín eins og hver vill. Brenni-
vínið er þar og það er þaö sem krakk-
arnir vil ja,” sagði Tómas.
En hvað verður um Villta tryllta
Villa?
, JÉg er ekki kiár á því. Það er búiö að
innrétta þama skemmtistað og það
verður einhvers konar skemmtana-
hald þama í framtíðinni. Hvaöa veit-
ingarekstur það verður get ég ekki
sagt á þessu stigimálsins,” sagði Tóm-
as.
-KMU.
Nýtt Ijós á Kleppsveginn
— og mörg önnur gatnamót í sigtinu hjá umferðardeild borgarínnar
I gær vom tekin í notkun ný um-
ferðarljós á mótum Kleppsvegar og
Dalbrautar. Eru þetta hálfsjálfvirk
ljós þannig aö alltaf logar grænt ljós
á Kleppsveginum nema þegar um-
ferð kemur af hliðargötunum.
Að sögn Guttorms Þormars, yfir-
verkfræðings umferðardeUdar
Reykjavíkurborgar, var mjög brýnt
aö koma þarna upp umferöarljósum
því þar væri jafnan mikil og þung
umferö.
Guttormur sagði að næsta verkefni
væri að koma upp gangbrautarljós-
um við Kleppsveg á móts við Klepps-
spítalann. Varöandi umferöarljósa-
uppsetningu væru ýmsir staðir í sigt-
inu en engin endanleg ákvörðun
verið tekin um þá enn. Nefndi hann
sem dæmi horn Suðurlandsbrautar
og Skeiðarvog s og homið fyrir vest-
an útvarpshúsið þar sem vegurinn
liggur út á Ingólfsgarð.
-klp-
-KMU.