Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.1982, Side 5
DV. LAUGARDAGUR18. DESEMBER1982.
Akureyri:
Perum
stolið af
jólatrjám
— ogyfirlOOperur
hurfuíeinuaf
skreytingunni við
kirkjutröppumar
Mikiö hefur borið á því aö undan-
fömu að skrautperum á jólatrjám hafi
veriö stoiiö á Akureyri. Um síðustu
helgi hurfu um 60 perur af jólatré sem
sett var upp viö höfnina og einnig var
stolið og brotnar perur af jólatré við
Glerárskólann.
Þá hafa skrautperur sem KEA lét
setja upp viö handriðið við tröppurnar
upp að kirkjunni ekki fengið að vera í
friði fyrir skemmdarvörgum. Voru um
100 perur teknar og brotnar þar um
síðustu helgi. Mun nú svo komið að
KEA hyggst hætta við að viðhaldá
þessari sérstæöu og fallegu jóla-
skreytingu þar. -klp-
Árekstur
á Álftanesi
Kona slasaðist í árekstri á Álftanes-
vegi við Garðaveg um klukkan sjö í
fyrrakvöld. Hún var flutt á slysadeild
en meiðsli hennar munu ekki hafa ver-
ið eins mikl og sýndist í fyrstu.
Atvik þessa máls voru þau að konan
ók á Austin Mini-bíl austur eftir Alfta-
nesveginum. Er hún nálgaöist Garða-
veginn kom bill skyndilega niður eftir
Garða veginum og ók án þess að stoppa
út á Álftanesveginn, beint í veg fyrir
konuna. Hún greip þá til þess ráðs að
beygja yfir á vinstri akreinina til að
forðast árekstur, en með þeim
afleiðingum aö hún ók framan á Lada-
bíl er ók vestur Álftanesveginn.
Sá er kom niður Garðaveginn og ók
út á Álftanesveginn foröaði sér i burtu.
Að sögn lögreglunnar í Hafnarfiröi
skemmdust báðir bílarnir nokkuð.
Biður hún alla þá sem geta gefið
upplýsingar um máliö eða borið vitni
aðgefasigfram. -JGH.
Isnesiðselt
til Ítalíu
Italskt skipafélág hefur fest kaup á
íslenska kaupskipinu Isnes sem var í
eigu Nesskipa hf. Var skipið afhent
hinum nýju eigendum í Grikklandi nú í
vikunni.
Nesskip hafa átt Isnesið, sem er
4500 tonn að stærð, síðan 1977. Hefur
skipið aöallega verið í f lutningum til og
frá Grundartanga nú síðustu ár. Nes-
skip eiga nú þrjú skip eftir í flotanum.
Eru það Akranes, Selnes og Suðurland.
-klp-
Edda skiptir
umnafn
Skipafélagið Isafold hefur selt eina
skipið sem það átti eftir. Var það,
Edda, 1650 tonna skip sem Isafold
hefur átt síðan 1976.
Kaupandinn var annað íslenskt
skipafélag, Jarlinn hf. Skipt hefur
verið um nafn á skipinu og mun það
hér eftir heita Mar. -klp-
VÍEHR BÝÐ
Nú getur þú tekiö þátt í skemmtilegri
verölaunasamkeppni og hlotiö góö
verðlaun í jólagjöf, ef heppnin er meö þér!
Nýja húsgagnalínan frá Víöi h/f
er hönnuö af hinum þekkta finnska
arkitekt Ahti Taskinen. Húsgögnin voru
fyrst sýnd í Kaupmannahöfn þarsem þau
hlutu verðskuldað lof og vöktu
talsveröa athygli. Nú eru húsgögn þessi
komin á íslenskan markaö, enda
framleidd af íslenskum fagmönnum hjá
Trésmiðjunni Víöi í Kópavogi.
Eitt vantar þó ennþá - gott nafn á
framleiðsluna.
Þess vegna snúum viö okkur til þín og
bjóöum þér aö taka þátt í
verðlaunasamkeppni um besta nafnið
á nýju húsgögnin.
Samkeppnin
er afar einföld:
1 Komdu viö á einhverjum af útsölu-
^•stöðum okkarog skoðaöu húsgögnin.
_ Fáöu sérstakt eyöublaö um leiö.
Sendu okkur eyðublaöiö meö
• áritaðri tillögu þinni fyrir 20.
desember n.k..Heimilisfangið er:
- Trésmiöjan Víðir h/f
POB: 209
200 Kópavogi.
A
5
Á Porláksmessu tilkynnir dómnefndin
ákvöröun sýna og veitir verðlaun
fyrir besta nafniö.
Verðlaunin eru stórglæsilegt sófasett
'hannaö af Taskinen.
Áritað í dag
Sæmundur Guðvinsson og Jón
Ormur Halldórsson árita bækur sínar,
Við skráargatið og Spámaður i
fööurlandi, í Pennanum við Hallar-
múla í dag klukkan 14.
Lilla Hegga og Bidda systir árita
bréfin hans Þórbergs í Bókabúð Suður-
vers klukkan 13 til 15 í dag og Gunnar
M. Magnúss áritar sína bók, Ingi-
mundur fiðla og fleira fólk, í Bókabúð
Braga við Hlemm klukkan 13 til 15 i
dag.
5
O
Dómnefndina skipa Lovísa Christiansen híbýlafræöingur,
Reimar Charlessonfrkv.stjóri og ÓlafurStephensen frkv.stjóri
Húsgögnin eru til sýnis á eftirfarandi stöðum:
VERSLUN SIGURÐAR PÁLMASONAR HVAMMSTANGA AUGSÝN
BJARG
HÚSPRÝÐI
HÚSIÐ
SERÍA
ÓSBÆR
BÓLSTURGERÐIN
DUUS
AKRANESI BÍLAR OG BÚSLÓÐ
BORGARNESI VERSL. F. AUSTURLANDS
STYKKISHÓMI KJÖRHÚSGÖGN
ÍSAFIRÐI HÚSGAGNAVERSLUNIN REYNISSTAÐIR
BLÖNDUÓSI J.L.HÚSIÐ
SIGLUFIRÐI HÁTÚN
KEFLAVÍK VALHÚSGÖGN
AKUREYRI
HÚSAVÍK
EGILSSTÖÐUM
SELFOSSI
VESTMANNAEYJUM
REYKJAVÍK
SAUÐÁRKRÓKI
DCW lAVÍIT
TRÉSMIÐJAN VÍÐIR SÍÐUMÚLA 23
HÚSGAGNAVERSL. GUÐMUNDAR SMIÐJUVEGI 2 KÓP.
I