Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.1982, Side 12
12
DV. LAUGARDAGUR18. DESEMBER1982.
*
Textfl — grafík — leður —
gler — keramik
ýmsir handunnir munir.
Lítið inn og skoðiö.
Gallerí Langbrók
Á Bernhöftstorfu
Amtmannsstíg 1.
32j síðna jólablað
fylgir mánudagsblaði
meðal efnis:
Pólsk og kínversk jólá íslandi.
Veglegar teikningar af gömlu jóla-
sveinunum.
Jólahald sértrúarsafnaðanna.
Beibí og tölvur I jólabögglum barna.
Allt um /eikhús og jólakvikmyndir
yfir hátíðirnar.
Jólamyndagátan á sínum stað.
________
HVAÐ???
j
i Jú, jólagjöfin í ár er
Disneypeysa eða
náttföt með mynd af
Sooty bangsa. Fást
með eða án tístu í
eftirtöldum verslun-
um:
Spóa Engihjalla 8 Kóp.
Bangsimon Laugavegi 41
Bimm Bamm Hafnarf.
Rut Glssibæ
Bimbo Háaleitisbraut 58-60
Lilly Laugavegi 62
Versl. Jónu Siggu Arnarbakka 2
HEILDSÚLUBIRGÐIR
Einnig mikið úrval af
útprjónuðum acrylpeysum
Póstsendum
HULDULAND HEILDVERSLUN
SÍMI 76102
Brosa
takk
JÓLA
JÓL
á tilboðsverði
Nú er kominn 18. desember óg fólk
búiö aö fá happdrættisvinninginn
sem því veitti ekki af á þessum
síöustu og verstu tímum, einhverjir
jafnvel búnir aö eyða honum í kaup á
plötuspiiara, sem nú til dags kaliast
stereogræjur, eöa litsjónvarp, hvort
tveggja á tilboðsverði, meö 10
prósent afslætti í tilefni jólanna og
meö afborgunarkjörum sem hæfa
kreppu og láglaunabótum, ekkert út
og afgangurinn hér um bil aldrei.
Á Laugaveginum eru jólasveinar í
ööru hverju húsi og kinka kolli til
vegfarenda samkvæmt taxta Raf-
magnsveitu Reykjavíkur og það er
búiö aö moka gangstéttarnar svo að
kaupglaðir menn og konur brjóti
ekki á sér lappirnar áður en þau hafa
fengið tækifæri til aö eyða aurunum
sínum í öl og smjörlíki á nýja
verðinu.
Og bílamir sniglast áfram, fara
fetiö, nema þeir sem standa á
bílastæðunum, þeim er kalt og aö
lokum kemur stööumælavörður og
skrifar númerið þeirra í blokkina
sína og verðirnir skrifa svo mikiö
þessa dagana aö manni finnst þeir
ættu aö skrifa í blööin, en hættir viö
þaö þegar maöur ímyndar sér
hvernig greinin lítur út: H-1761 stóö
viö stöðumæli nr. 182 kl. 17.03 og var
rautt á mælinum, ber honum því aö
greiða sekt í ríkissjóö kr. 50 o.s.frv.
Stööumælaverðir skrifa ekki í blöðin
og H-1761 borgar ekki stööumæla-
sektir.
Þaö er fariö aö dimma og Ijósin á
snúrunum sem hanga yfir Lauga-
veginum eiga fullt í fangi meö aö
standast samkeppni ljósastauranna
svo ekki sé talað um stjörnurnar þótt
ljós þeirra sé lifandi skelfing lítiö hjá
öllu því myrkri sem nóttin býr yfir.
Á mótum Laugavegar og Vitastígs
stendur lögregluþjónn og stjórnar
umferöinni, hann baðar út hönd-
unum en hvernig sem hann veifar
stendur umferðin í staö og þó eru
allir að flýta sér en þegar kominn er
18. desember getur enginn flýtt sér
viö neitt á Laugaveginum nema viö
þaö aö standa kjur, en það er enginn í
þeim hugleiðingum þegar ég geng
hjá og því er flautað og flautað en
árangurinn aö sjálfsögöu í öfugu
hlutfalli viö allt þetta flaut.
Kannski heföi veriö betra aö skilja
bílinn eftir heima og fara í strætis-
vagninum sem stendur líka kjur,
flautar ekki neitt, en kemst jafn lítið
úr sporunum og bílarnir sem voru
ekki skildir eftir heima.
Inni í bókabúðinni eru margar
bækur og eigulegar en því miður er
ekki hægt aö kaupa þær allar fyrir
þessi jól og fyrir þau næstu verður
búiö að taka þær niöur úr hillunum
og koma öðrum fyrir í þeirra staö og
því óvíst aö hægt veröi að kaupa þær
nokkurn tíma. En í búöinni á móti
sem selur kristal veröur hægt aö
kaupa þaö sem manni sýnist að ári
enda koma börn þangað inn á ábyrgö
foreldra sinna en guö má vita á hvers
ábyrgö þau fara út.
I Austurstræti er pylsuvagninn og
mér dettur í hug aö kaupa eina með
öllu handa frænda mínum í jólagjöf
því aö honum finnast svo góöar
pylsur en ég hætti viö þaö og kaupi
handa honum sjálfstýrðan bíl sem
veröur ónýtur á fimm mínútum af
því aö hann er svo ódýr og lítur svo
velút.
Þaö er engin bílaumferð í Austur-
strætinu, það leggur enginn í að
þræöa leiðina milli blómakeranna
og bankanna og svo er vist öll umferö
„A Laugaveginum eru jólasveinar í
öðru hverju húsi og kinka kolli til veg-
farenda samkvæmt taxta Rafmagns-
veitu Reykjavíkur... ”
Háaloftið
BenediktAxelsson
bönnuð þar að auki, en bönn hafa
aldrei staöiö Islendingum fyrir
þrifum hingaö til. Kannski þaö sé aö
veröa breyting á þessu, nema bíl-
amir séu hræddir viö blómaker og
banka.
I glugga kem ég auga á rjóma-
tertur og vínarbrauö sem er
skemmtileg tilbreyting frá jólasvein-
unum sem ganga fyrir rafmagni og
eru eins og slitin plata sem syngur í
sífellu: jólin kom, jólin kom og aiö
vill ekki koma hvemig sem platan
reynir og þótt maður sé styrkur í
fingrunum kemur aiö ekki heldur
þegar nálin er færð um set heldur:
llir búast í sitt besta skart.
Viö hliðina á tertunum stendur ung
kona í sínu besta skarti og haggast
ekki, enda úr plasti, og skammt frá
er útitaflið og kona aö selja
happdrættismiöa.
Eftir að hafa ráfað búð úr búö og
keypt jól á tilboðsverði fyrir alla pen-
ingana mina geng ég út í myrkriö
sem er lifandis skelfing lítiö hjá öllu
því ljósi sem jólin búa yfir.
Kveöja
Ben. Áx.