Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.1982, Síða 27
DV. LAUGARDAGUR18. DESEMBER1982.
hendur á fyrrverandi eiginkonu sína.
Vill ekki einhver hringja á lögregluna?
Enginn kom Dóru til hjálpar , engar
dyr opnuðust, og kannski hrópaði hún
aðeins svo fólk gæti hlustaö. Alger
þögn ríkti í húsinu og maðurinn spurði
lágt:
Hvaö færðu út úr að láta lögregluna
hiröa mig hvað eftir annað? En
lögreglan má stinga mér daglega í
steininn, ef þér líður betur.
Maðurinn þagnaöi og spurði svo:
Vildirðu ekki í rauninni að einhver
hefði dug í sér og tæki þig sjálfa í karp-
húsið?
Augu mannsins flöktu en hann
reyndi að festa sjónir á Dóru og heitur
straumur braust fram í andlit honum.
Hann hélt aö hitinn um allan líkamann
væri ást, og þá formælti hann sjálfum
sér í hljóði með ásökunum fyrir að
hann hefði ekki brunnið af ást fyrir
andartaki heldur af heift. Nú gat hann
ekki lifað án Dóru og hún opnaði munn-
inn og deplaði augnalokunum ört og
sagði:
Mig langar aö segja þér svolítiö
sem vinur.
Segðu það , vina min, bað maðurinn
ákafur og reyndi að vera eðlilegur og
stilltur. En ekki bara sem fyrrverandi
eiginkona heldur. ..
Annaðhvort segi ég þetta sem fyrr-
verandi eiginkona þín eða ég hreinlega
held kjafti, sagði Dóra.
Talaðu, hikaðu ekki, baö maöurinn.
Þetta má vera ljótt, þú særir mig ekki
Jengur, mann sem er orðinn eins og
smjörið. Það finnur ekki fyrir hnífnum
sem skef ur það og smyr á brauðið.
Mig langar að biðja þig lítillar
bónar, sagði Dóra. Bónin er smá en
mikilvæg fyrir þig.
Dóra, þú veist ég veö ekki í pening-
um, flýtti maðurinn sér að segja.
Skilnaður okkar lék mig grátt bæði
f járhagslega og andlega. Svo veistu ég
hef legið í drykkju um helgar og þyrfti
líklega aö fara í meöferö. Berðu samt
fram bónina.
,,Æ, þú heldur maður biðji sí-
fellt um jarðneska hluti, sagði Dóra
leið á svip. Sem betur fer hófst ég
upp yfir efnishyggju jafnskjótt og ég
losnaði úr hjónabandinu. Veistu, ég
finn ekki lengur fyrir beiskju. Ég
kaupi mér varia súkkulaöi til að fá
sætt bragð í munninn. Tungan í mér
er meira að segja oröin laus og liðug.
Maðurinn velti vöngum vandræða-
lega og sagði aö slikt gleddi sig, enda
hefði hann haft áhygg jur af sælgætis-
áti hennar.
Samt ertu í góðum holdum, sagöi
hann.
öll andleg og líkamleg orka, hold
og hugsun, fór í rifrildið viö þig,
sagöi Dóra. Allt fór í aö lappa upp á
hænsnastíu hjónabandsins. Fyrir-
gefðu að ég tek hkingar úr sveitalíf-
inu.
Mér líkar það prýðilega, svaraði
maöurinn. Sæktu bara líkingar í
liðna tíð, okkur veitir ekkert af for-
tíðinni ef við viljum standa nokkurn
veginn upprétt í nútíðinni.
Farðu samt ekki aö halda ræöu um
sveitalífiö og segja að okkur skorti
heilbrigðar rætur, ég þoli það ekki,
sagði Dóra.
Við verðum að skjóta rótum dag-
lega, svaraöi maðurinn. Annars skol-
ar straumur tímans okkur út. á haf.
Fólk á að hafa djúpar rætur í hinu
liöna og ókomna.
Mikil ósköp sagöi Dóra. Má ég
komast að? Engin ræðuhöld hérna
frammi á gangi eins og þú sért aftur
kominn í hjónabandið. Mitt hlutverk
er ekki lengur að hlusta, mig langar
að komast einu sinni aö.
Notaðu tækifærið, manneskja,
meðan þú hefur orðið og vertu ekki
með málalengingar, baðmaðurinn.
Svona er enn talað við mann! sagði
Dóra æst. Þú ert meistari í að rugla
mig í ríminu, svo ég læt þvætting
f ara mér um munn.
Maðurinn hafði á tilfinningunni að
fólkið í húsinu lægi á hleri. Hann brá
sér inn í íbúðina og settist aftur viö
borðið og handlék bókina. Meðan
hann rjálaði við bókina var hvislaö
aö honum að konan væri í lögun eins
og skráargat eöa sver kirkjuklukka.
Hann ætlaði að segja frá hugmynd
sinni en þagði af þvi hann þóttist viss
um að Dóra segði að hann væri
hvorki lykillinn sem gengur að
skránni né ætti kólfinn sem lætur
klukkubarmana óma.
Skrýtinn ertu, sagði Dóra. Núna
lestu meðan þér ber að hlusta.
Nei, andmælti maðurinn og lagði
bókina frá sér og klemmdi hendurn-
ar milli hnjánna og lokaði augunum.
Herptu ekki aftur augun, bað
Dóra. Hlustaöu á mig með opin eyru
og augu.
Maðurinn reyndi að líta út eins og
hann væri eintóm augu og eyru.
Mig langar að gefa þér heilræði,
héltDóraáfram.
Maðurinn hélt niðri í sér andanum
í ofvæni, hann brann í skinninu af
forvitni yfir hvaða heilræði veltist
svona lengi fyrir Dóru. Það hlaut að
vera óvenjulegt og stórkostlegt enda
haföi alltaf farið gott orð af vitsmun-
um hennar. Allt sem hún sagði tald-
ist til tíðinda, þótt manninum þætti
það vera einskær orðaflaumur og
eini áþreifanlegi árangurinn af tali
hennar væri feykihár símareikning-
ur. Samt bjóst maðurinn ævinlega
við einhverju einstæðu af hennar
hálfu.
Við erum ekki lengur gift, hélt
Dóra áfram.
Eg held ég viti það, stundi maöur-
inn.
Látbragð þitt og hegðun bendir þó
til hins gagnstæða, sagði Dóra.
Maðurinn þagði og ákvað að opna
ekkimunninn.
Ég á bágt meö að koma oröum aö
þessu, sagöi Dóra og herpti varimar.
Reyndu samt, góða mín, bað
maöurinn. Loksins hefur okkur tek-
ist að ræðast við af örlitlu viti. Mér
líður miklu betur. En þér?
Þungri raun verður létt af mér ef
þú verður við bóninni, sagði Dóra.
Nefndu hana, hvíslaði maöurinn
lágt og ákafur. Ég verð strax við ósk-
inni.
Dóra rak fram hökuna og sagði
undrandi:
Heldurðu það?
Já, svaraði maöurinn svo lágt aö
varla heyrðist.
Dularfullt rökkur seig yfir hann og
honum sortnaði fyrir augum af æs-
ingi, en dimman sópaðist burt þegar
Dóra hvessti á hann augun og sagöi
með áherslu en þó í einlægni:
Fáöu þér og gifstu góðri egypskri
konu.
ÞJÓÐSAGAN
LÁSI KOKKUR
ER KOMIN Á BÓK
svipmyndir
úr lifi GuSmundar Angantýssonar
Hann er þjóðsaga vegna þess
sérstæða lífsstíls, sem ekkert
skólakerfi hefur getað ruglað.
Hnittin og gamansöm tilsvör
hans eru löngu landsfræg. Það
mun engum leiðast yfir lestri
þessarar bókar. Þetta er
óskabók jafnt sjómanna sem
landkrabba.
PRENTVER
Við framleiðum
16 gevðir
skrifborðsstóla
Líttu inn til okkar,
viö höfum ábyggilega
eitthvaö fyrir þig.
STÁLIÐJANhf
SMIÐJUVEGI 5, KÖPAVOGI, SiMI 432TI
RF1
TE1
TV3
Viö leggjum áherslu á
fjölbreytni í skrifborðs-
stólum og vandaða vöru.
15 ára reynsla hefur
kennt okkur margt og
ennþá vinnum vió aó því
aö bæta framleiósluna
og auka úrvaliö.
o
0 TAKIÐ EFTIR:
| Við eigum skíði—
1 stafi og bindingar
| fyrirbörnin.
LAUGAVEGI 116, VID HLEMMTORG
SÍMAR 14390 Er 26690