Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1982, Page 9
DV. FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER1982.
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Þótt atvinnuleysið hrjái marga fyrir
þessi jólin láta menn það ekki alveg
ræna sig allri jólagleði, eins og sést af
þessari mynd við norska jólatréð á
Trafalgar-torgi í London.
Maríanna Bachmeier: Bréfin sýna hana sem kaldrifjaðan morðingja.
SLEPPUR VARLA
UNDAN REFSINGU
Málaferlin í Liibeck í Þýskalandi
gegn .Maríönnu Bachmeier, sem
drap moröingja 7 ára gamallar
dóttur sinnar, Önnu, sýna hana í
sífellt verra ljósi. Það síðasta í þessu
máli eru 8 bréf sem elskhugi Marí-
önnu, og faðir Önnu, lét af hendi við
bókaútgáfu þýska blaðsins Stern.
I bréfum þessum meira en tæpir
Maríanna á því að morðið á kynferð-
isafbrotamanninum Klaus
Grabowski hafi verið þaulhugsað og
skipulagt. Þar að auki auka bréfin á
þær líkur að tveir af elskhugum
hennar, faðir önnu og læknir nokkur,
hafi verið með í ráöum.
I bréfunum fer Maríanna háöuleg-
um oröum um dómara sína. Kallar
hún þá m.a. kálhöfuð og segist ekki
draga í efa að hún geti snúið þeim
umfingursér.
Maríanna þáði 700.000 krónur af
bókaútgáfu Stem fyrir frásögn sína
af morðinu fræga í réttarsalnum er
málaferlin gegn Grabowski stóðu
yfir. Það þykir því harla undarlegt
að Christian Berthold, faðir önnu, lét
bréfin af hendi við útgáfuna án þess
aö kref jast eyris fyrir þau.
Þykir nú sýnt að Maríanna muni
tapa málinu og fá fangelsisdóm til
fleiri ára fyrir morð, sem í fyrstu
ávann henni samúð allrar þýsku
þjóðarinnar.
A tvinnuleysis-
Hagfræðingar hjá OECD spá áfram-
haldandi samdrætti eða kreppu í heim-
inum meö aukningu atvinnuleysis.
jótotíð EBE
Skýrslur Efnahagsbandalags aflsins. I nóvember í fyrra voru 9,9 og eins hafa orðiö breytingar á
Evrópu sýndu að fjöldi atvinnulausra í milljóniratvinnulausir. atvinnuleysisskráningu Breta, sem
EBE-löndunum fór upp í 11,6 milljónir Þessi tala þykir þó ekki nákvæm því torveldaði EBE-talninguna.
í síðasta mánuöi, sem eru 10,5% vinnu- að þar er ekki reiknað meö Grikklandi
En nóg er vitað til þess að ljóst þykir
að atvinnuleysiö hefur aukist meira en
það árstiðabundna á þessum tíma árs.
Mest hefur atvinnulausum f jölgað í V-
Þýskalandi, Hollandi, írlandi og á
italíu. Atvinnuleysið, sem er mjög
mikiö í Bretlandi, Frakklandi og
Belgíu, hefur hins vegar ekkert aukist
þar nú umhríð.
Bensínbirgðir
brunnu í Kenya
Enn jókst orkukreppan í Kenya,
þegar níu milljón lítrar af bensíni eyði-
lögöust í eldi sem kom upp í olíutank-
stöö við höfuðborgina Nairobi.
Sem þykkan reykjarmökkinn lagði
yfir höfuðborgina, brugðu menn fljótt
við og innan tíðar höföu myndast
langar biöraöir bíla við bensínaf-
greiðslur, á meðan bensín var enn til.
Sjónvarpið reyndi að friða menn
meö því að fullvissa þá um að nægt
bensín væri til í landinu og engin þörf á
hamstri. En margar bensinaf-
greiðslur þurftu að loka í gærkvöldi
þegar bensínið var gengið tilþurrðar.
Hafði lögreglan áður orðið að taka upp
eftirlit við afgreiðslurnar til þess aö
halda uppi röð og reglu. Margir sáust
ekki fyrir og tróðust með bílana yfir
gangstéttir til þess að komast að
tönkunum. Æði margir voru fótgang-
andi með brúsa í hendi.
Tjóniö af eldsvoðanum er metið til 8
milljóna Bandaríkjadala en um elds-
upptökin er ekki víst. Þykir ekki úti-
lokað að um spellvirki hafi verið að
ræða. Tveir tankar af tíu eyðilögöust í
eldinum. Engan mann sakaöi, eftir því
sembester vitaö.
Síðustu tvær vikur hefur olíuskortur
bagað Kenyamenn og daglega hafa
myndast biöraöir viö afgreiðslur á olíu
og bensíni. I tönkunum tveim voru
nokkuría daga bensínbirgðir fyrir
Kenya og nágrannalöndin, Uganda,
Rwanda og Burundi, sem öll fá sitt
eldsneyti ígegnumNairóbí.
Fleiri taka upp
dauðarefsinguna
Massachusetts varð í gær 38. ríkið í
Bandaríkjunum sem tekið hefur aftui
upp dauðarefsinguna fyrir manns-
morð. Undirritaði ríkisstjómin ný lög
sem gefa dauöadæmdum tvo kosti um
dauödagann.
Fanginn getur valiö á milli
rafmagnsstólsins eða eitursprautu.
Fyrsta aftakan með síöarnefndu aö-
f rðinni fór fram fyrr í þessum
u.ánuði í Texas. — Það erú' aðeins
fimm ríki önnur í Bandaríkjunum sem
leyfa þá aftökuaöferð.
Síðasta aftaka sem fram fór í
Massachusetts var 1947, þegar tveir
menn fóru í rafmagnsstólinn fyrir
morð á landgönguliöa flotans.
Gestaglfma & Fjölskylduþraut - í 3rem þáttumf
NÝJA ÍSLENSKA SPILIÐ SEM...
VEKUR. UtATAL 06- AWy6t-Í !
Pældu í SAMSTÆÐU í jólagjöf handa vinum og óvinum. Fæst í öllum helstu leikfanga- og bókabúðum landsins.
AHir aldurshópar geta skemmt sér við þessa spilaþraut.
Heildsöludreifing um land allt:
Hallarmúla 2 - Símar: 83464 og 83211