Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1982, Page 38
V
42
Imm
DV. FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER1982.
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Sviðsljósið
MILUONERINN BENDT
WEDELL
aðeins
sjöára
Wedelsborg er eitt af stóru
setrunum hans Bendt.
Hann ætti aö geta byggt kofa á lóö-
inni heima hjá sér hann Bendt litli
5 Wedell. Nóg er landrýmið og nógir eru
peningarnir hjá þessum 7 ára dreng.
Þegar faöir hans Tido Wedell lést í
september síöastliönum á heimili sínu
í Frijsenborg fékk Danmörk þar með
nýjan og jafnframt sinn síöasta léns-
herra, Bendt Wedell. Bendt er tvíburi
viö stúlku, Christiane, og þau eru börn
Tido Wedell og konu hans Irene. En
samkvæmt hinum fomu lénsherralög-
um geta lénslöndin aöeins gengið í arf
tilkarlmanna.
Ástæðan fyrir því aö Bendt er síðasti
lénsherra Danmerkur er sú, að meö
lagasetningu áriö 1920 var kveðiö á um
að titillinn gæti aöeins gengiö í þrjá
ættliöi.
Þaö er ekki aö ástæðulausu aö Bendt
Wedell hefur veriö kallaöur stærsti
jaröareigandi í Danmörku. Hann á
stóra landskika á Jótlandi og Fjóni,
sem gefa mikinn arö af sér. Hann á
Frijsenborg og Wedellsborg á Fjóni.
Auk þess á hann mikiö af einstökum
jöröum hér og þar í Danmörku.
Faöir hans Tito Wedell var m jög vin-
sæll maður. Látlaus og lét lítið á sér
bera. Og þótt peningarnir væru nægir
lifði hann fyrst og fremst einföldu lífi.
Enda var hann nánast dýrkaöur af
starfsmönnum sínum.
Tito var mjög umhugaö um uppeldið
á bömunum sínum, þeim Bendt og
Christiane. En nú er þaö móöir þeirra
sem sér um þá hlið mála. Þau búa í
Frijsenborg og þar fer vel um þau. Og
báöir tvíburamir eiga nóg af vinum og
kunningjum í nágrenninu.
Fyrir nokkrum ámm haföi Tito sagt
að hann vildi aö krakkarnir væru aldir
upp meö þaö aö leiðarljósi aö nauösyn-
legt væri aö vera ákveöinn, en þó um-
fram allt aö sýna jafnframt trygglyndi
og kærleika. Og meö þessi orö í huga
eru tvíburamir nú aldir upp af móður
sinni, Irene.
Lénsherrann Bendt Wedell
er margmilljónari og einn
af rikustu mönnum Dan-
merkur aðeins sjö ára að
aidri. Faðir hans, iónsherr-
ann Tido Wedell, var
stærsti jarðareigandi i
Danmörku þegar hann
lóst i september siðast-
liðnum. Bendt erfði alla
landskikana. Og hann á
ekki i erfiðleikum með að
byggja sór hús og muni
með Legókubbunum sin-
Verslunin Mariurnar er tlsku-, snyrti- og gjafavöruverslun. Eigendur eru fatahönnuðurinn María Lovisa
Bagnarsdóttir og Maria Guðrún Waltersdóttir. Ekki má gleyma að þœr selja þriðju Maríuna, nefnilega
hana Mary Quant. Á myndinnisjáum við hvar tiskufatnaður var sýndur við opnun verslunarínnar.
Þegar tvær Maríur
selja Mary Quant!
Þegar þrjár Maríur taka sig til og
vinna saman getur útkoman ekki
orðið annað en góö. Og svo sýnist
einnig ætla aö veröa með nýju
verslunina að Klapparstig 30. Hún
lofar svo sannarlega góðu, enda
hvemig á annað aö vera, þegar tvær
Maríur taka sig saman og opna
verslunina Maríurnar. Ekki nóg meö
þaö, þær versla með þriðju Maríuna,
nefnilega hana Mary Quant.
Maríumar sem opnuðu Maríurnar
eru þær María Lovísa Ragnarsdótt-
ir fatahönnuöur og María Guörún
Waltersdóttír. Aö sögn þeirra er
verslun þeirra eina snyrtivöruversl-
unin í bænum, sem sérhæfir sig i
snyrtivöruum frá einu merki. Og
litalínan frá Mary Quant hefur ætiö
þótt sérstæö, einkum nú þarsem hún
er aö breyta um umbúðir.
Þær stöllur Maria Lovísa og María
Guðrún sögðust einnig versla meö
ílmvötn og rakspíra f rá hinum þekkt-
ustu fyrirtækjum, auk þess sem þær
heföu hina landskunnu hárvöru frá
Cutrin, ásamt hinum vinsælu baö-
vörum frá Cilcrist and Soams, og
Potterand More á boðstclum.
Og ekki má gleyma fatnaöinum
hjá Maríunum. Hann er allur hann-
aður og framleiddur af Maríu Lov-
ísu, en hún er löngu þekkt fyrir sinn
sérstæöa stíl. Þess má geta aö María
Lovisa lærði fatahönnun í Margretar
skólanum i Kaupmannahöfn, og
Köbenhavns Tilskærer Akademi í
Kaupmannahöfn.
-JGH
Fegurst
í hópi
fagurra
Dágóöur hópur fagurra fljóöa kom
nýlega saman í London. Ástæðan var
jú engin önnur en sú að það átti aö
kjósa ungfrú alheim. Og eins og fyrri
daginn voru margar stúlkur kallaöar
en fáar útvaldar.
Þrjár þær hlutskörpustu í keppn-
inni stilltu sér eins og vera ber upp
fyrir ljósmyndurum. Útkoman var
heldur ekkert slor. Ekki aðeins góðar
myndir heldur Iíka óvenju fallegar.
Sú, er var kjörin ungfrú alheimur
heitir Mariasela Alvarez Lebron og
er frá Dóminíkanska lýöveldinu. I
ööru sæti varö Sari Kaarina Aspholm
frá Finnlandi, en í þriöja sæti varö
Dela Francis Dolan, Englandi.
Viö í Sviðsljósinu teljum aö úrslit í
þessu drottningavali hafi bara verið
nokkuö sanngjörn. I þaö minnsta
hafa þæ' þrjár fallegustu útlitiö með
sér.
fljóða
— það er hún Mariasela
Lebron
Við erum þær fegurstu af öllum fögrum, gætu þessar stúlkur verið að
segja. Þær lentu i þremur fyrstu sœtunum í keppninni um ungfrú al-
heimur. Talið frá vinstri: Dela Francis Dolan, Englandi, i þriðja sæti,
Mariasela Atvarez Lebron, Dóminfkanska lýðveldinu, ungfrú alheimur
og Sari Kaarina Aspholm, Finnlandi, i öðru sæti.