Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1983, Qupperneq 2
DV. FIMMTUDAGUR 20. JANUAR1983.
Strætisvagnar
lækka fargjöldin
Frá og meö deginum í dag hafa far-
gjöld Strætisvagna Reykjavíkur veriö
lækkuð, samkvæmt lögbanni því sem
sett var á hækkun fargjaldanna í gær.
Fargjöld fyrir fulloröna eru nú átta
krónur, fyrir aldraöa fjórar krónur og
bamafargjöld eru tvær krónur. Eng-
inn afsláttur er veittur nú, þó unnt sé
aö kaupa svokölluö „staögreiöslu-
spjöld”, sem koma í staö afsláttar-
miöaspjaldanna semáöur voru.
! viötali viö DV, sagöi Skúli Halldórs-
son, skrifstofustjóri SVR, aö aldrei
heföu færri fargjöld veriö í gildi hjá
Strætisvögnunum, þaö hann myndi. Ný
farmiöakort hafa veriö prentuö, en
eins og áöur sagöi veröa þau aðeins til
þæginda fyrir farþega, en ekki veittur
afsláttur annar en hinn heföbundni
helmingsafsláttur sem er á farg jöldum
fyrir aldraöa. Tíu miða kort fyrir full-
oröna mun þannig kosta áttatíu
krónur, og 25 miða kort fyrir böm mun
kosta fimmtíu krónur.
Sakadómur afgreiddi
á þriðja þúsund mál
Ariö 1982 hlutu afgreiðslu viö Saka-
dóm Reykjavíkur alls 2671 mál, aö því
er segir í frétt frá Sakadómnum. Þar
af vom dómar 542, dómsætti'' 1799,
gæsluvarðshaldsbeiönir 68, beiðnir um
húsleit 14, en aðrar úrskuröarbeiönir
25. Meölagsúrskurðir vom 162 og
réttarbeiðnir frá öörum embættum og
Útlöndum61.
Lögræöissviptingabeiönir er bámst
dóminum áriö 1982 vom 59.
-PÁ.
Myrkir músíkdagar
— 24. til 30. janúar
Myrkir músíkdagar verða haldnir í
fjóröa sinn dagana 24. til 30. þessa
mánaðar. Aö þessu sinni veröa fimm
tónleikar, aöallega meö íslenskri tón-
list. Að Myrkum músíkdögum standa
Sinfóníuhljómsveit íslands, Tónskóli
Sigursveins D. Kristinssonar, Trómet
blásarasveit framhaldsskólanna,
Ríkisútvarpiö, Hamrahlíðarskólinn,
aukannarra.
Gönguskíðamenn
NÝKOMIÐ
GÖNGUSKÍÐASTAFIR
kr. 1.157,-
CHAMPION
kr. 646,-
WINNER
léttustu keppnisstafir í heimi œfingastafir
PÓSTSENDUM
Jr jr
M MTTMM MC Glæsibæ —
M MLmME Simi82922.
Aðalbjöm Sigurlaugsson:
„Samtökin gjörsam-
lega gjaldþrota'
„Mér finnst þaö sæta furðu aö f jár-
hagsstaöa Samtaka grásleppu-
hrognaframleiöenda hafi ekki veriö
rannsökuð ofan í kjölinn,” sagöi Aðal-
bjöm Sigurlaugsson, skipstjóri á
Olafsfirði, í samtali við DV, en hann
var einn þeirra sem sagöi sig úr
Samtökunum í haust og stofnuðu ný
samtök grásleppuveiöimanna. „Mér
er sagt aö framkvæmdastjórinn Guö-
mundur Lýösson hafi hærri laun en
forsætisráöherra, en samt sem áöur
hefur hann vaídiö félaginu óbætan-
legum skaöa. Ástæöan fyrir því aö
viö sögðum okkur úr félaginu er
einfaldlega sú aö Samtökin hafa
brugöist okkur. Staðan 1980 var ágæt
en 1981 er hún í geigvænlegum
mínus. Stefnt var inn á óheillavæn-
legar brautir, viö gáfum þeim kost á
aö snúa af þeirri braut en skellt var
skolleyrum viöábendingum okkar. A
aðeins einu ári er félagiö orðið
gjörsamlega gjaldþrota. A sínum
tíma ætluðu þessir menn aö ráðast í
aö byggja mikla frystigeymslu fyrir
geysi-háar fjárhæöir, í þaö skipti
tókst okkur að telja þá ofan af því, og
ég hugsa meö hryliingi til þess
hvernig staöan væri ef því heföi veriö
bætt ofan á allt fjármálasukkiö.
-ás.
Guðmundur Lýðsson:
„Tunnum fyrir 14
milljónir hent”
— hefði ekki þurft ef kæligeymsla væri til
„Eg vil svara ummælum Aðal-
bjarnar um laun mín á þann veg aö
ég hélt þeim launum sem ég haföi í
fyrra starfi,” sagði Guðmundur
Lýðsson, framkvæmdastjóri Sam-
taka grásleppuhrognaframleiðenda,
í samtali viö DV. „Um þaö sem hann
kallar „fjármálasukk” er það aö
segja aö fjárhagsvandinn stafar af
markaöserfiöleikum. Eg ritaði bréf
til sjávarútvegsráöherra í maí 1981
og benti á hvað geröist ef stefnt yröi í
ofveiði. Það var ekki hlustað á mig
og því fór sem fór. Viö höfum flutt
inn tunnur meö ágætum árangri frá
1949.
Ef hlustað heföi verið á mig og
kæiigeymsla byggö heföi ekki þurft
aö henda í hafið tunnum fyrir 14
milljónir króna. Staöan væri ekki
svona slæm ef félagsmenn heföu
borið gæfu til aö standa saman en
ekki látið agenta erlendra kaup-
manna vaða uppi meö undirboö. Ég
mun ekkert segja um máliö aö svo
stöddu, en viö munum halda blaða-
mannafund von bráöar og svara
ásökunum sem komið hafa fram í
garðstjómarinnar.”
-ás.
Hagstæðustu
ínnkaupin
Viltu spara?
Komdu bara
Afsláttur
á smjöri, smjörlíki, smjörva, ostum, kjöti, kjúklingum, sviðum, emmess ís, kjörís, flatkök-
um, kleinum, pizzum, rækjum, ýsuflökum, nýjum ávöxtum, nýju grænmeti, niðursoðnum
ávöxtum, niðursoðnu grænmeti, kaffi, kexi, sultu, hveiti, strásykri, sælgæti, súpum, hrein-
lætisvöru, toilettpappír, eldhúsrúllum, tóbaki, öli og ölgeröarefni.
|
Sem sagt
AFSLÁTTUR
af öllum vörum í
r--
£8g5S3É.j£j£t‘.
SPARIMARKAÐINUM
A USTURVERI,
neðra bílastæði — sunnan hússins.