Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1983, Side 3
DV. FIMMTUDAGUR 20. JANUAR1983.
3
Fíkniefnamisferli:
Fiskverðsákvörðun:
MENNIRNIR
LAUSIR ÚR
LEIÐ STJÓRNVALDA RÖNG
— segja útvegsmenn á Suðurnesjum
Stjóm og trúnaðarráð Utvegs-
mannafélags Suðurnesja hefur í
samþykkt á fundi 14. janúar mót-
mælt þeirri leið sem stjómvöld völdu
við síðustu fiskverðsákvörðun til
mildunar á þeim vanda sem hátt
olíuverð hefur valdið útgerðinni.
Utvegsmannafélagið telur að í
staðinn fyrir 35% niðurgreiðslu á
olíuverði sem greitt verður með 4%
útflutningsgjaldi á sjávarafurðir,
hefði verið eðlilegra að afnema 7%
olíugjaldið og taka upp i staðinn 17%
kostnaðarhlutdeild eins og meirihluti
Verðlagsráðs hefði getaö sætt sig
við. 17% kostnaðarhlutdeild heföi
þýtt sömu afkomu fyrir útveginn í
heild sinni og jafnframt verið hvati
til olíusparnaðar.
Utvegsmannafélagið telur óvið-
unandi að fjármagn sé flutt milli
einstakra tegunda skipa eftir því
hvaða veiðar eru stundaðar hverju
sinni. -ás.
GÆSLU-
VARÐHALDI
Bæði fíkniefnamálin, sem fíkniefna-
deild lögreglunnar hefur verið með til
rannsóknar að undanförnu, eru nú að
mestu upplýst.
Tveir menn sátu í gæsluvarðhaldi
vegna þessara mála, en þeim hefur
báöum verið sleppt. Öðrum þeirra var
sleppt síðastliðinn miðvikudag en þeim
síöari síðastliðinn föstudag.
Maðurinn, sem var laus úr haldi á
föstudag, er á þrítugs aldri. Mál hans
snerist um innflutning á kannabis-
efnum frá Skotlandi. Hann hefur játað
aðild sína að málinu, en fíkniefna-
deildin getur þó ekki greint frekar frá
málinu í smáatriðum.
Sá er sleppt var á miðvikudag játaði
að hafa reynt að smygla inn ásamt
öðrum um 1 1/2 kílói af hassi. Þeir
keyptu hassiö í Amsterdam í Hollandi,
pökkuöu því vandlega inn og báðu
síðan fyrir pakkann með íslensku skipi
til landsins. Þaö var gert fyrir þá, en
hasshundur fann hassið við komu
skipsins til Reykjavíkur.
-JGH.
Magnús Erlendsson er forseti
bæ jarst jómar Selt jarnarness
1 kynningu á frambjóðendum í próf-
kjöri sjálfstæðismanna á Norðurlandi
eystra, sem birtist í blaðinu í gær, var
sagt að Júlíus Sólnes væri forseti
bæjarstjórnarSeltjarnamess. Þetta er
ekki rétt. Magnús Erlendsson er for-
seti bæjarstjómar en Július varafor-
seti. Er þetta hér með leiðrétt, og hlut-
aðeigendur beðnir velvirðingar á
þessu mishermi. -JBH.
ALÞÝÐUFLOKKURINIM
Norðurlands-
kjördæmi-
eystra
PRÓFKJÖR
Frambjóðendur Alþýðuflokksins í prófkjörinu 29. og
30. janúar efna til sameiginlegra funda eins og hér
segir:
Húsavík fimmtudaginn 20. janúar klukkan 20.20 í fé-
lagsheimilinu.
Ólafsfjörður föstudaginn 21. janúar klukkan 20.30 í
félagsheimilinu.
Akureyri laugardaginn 22. janúar klukkan 13.30 í
Hótel Varðborg.
Dalvík laugardaginn 22. janúar klukkan 17.00 í kaffi-
stofu frystihússins.
Arni Gunnarsson
Amljótur Sigur jónsson
Hreinn Pálsson
Jósef Guðbjartsson
UTANKJÖRSTAÐA -
A TKVÆDA GREIÐSLA
Utankjörstaðaatkvæðagreiðsla Alþýðuflokksins í
Norðurlandskjördæmi eystra er hafin. Hún fer
fram á eftirtöldum stöðum:
AKUREYRI: I skrifstofu flokksins, Strandgötu 9,
alla daga klukkan 18 til 19.
HUSAVÍK: Hjá Gunnari B. Salómonssyni, Tré-
smiðjunni Borg, klukkan 13 til 15 daglega.
REYKJAVÍK: I flokksskrifstofunni Alþýðuhús-
inu, Hverfisgötu 8—10 (gengið inn frá Ingólfs-
stræti) á skrifstofutíma.
FYR/R SKR/FS TOFUNA :
Tölvuborð,
prentaraborð,
ritvélaborð,
myndvarpaborð m/raflögn,
diskettugeymslur og margtfleira
Akureyri:
BÓKVAL
Kaupvangsstrætí 4
KONRAÐ AXELSSON
heildverslun
Ármúla 36 - símar 82420 og 39191.