Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1983, Blaðsíða 6
6
DV. FIMMTUDAGUR 20. JANUAR1983.
Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur
1 ^t*4**^**^^
í kappi við
lægði mar og
krónumar
á útsölum
„Það hefur alltaf verið mikið að gera
hjá okkur á útsölum,” sagði Þorbjörg
Kristjánsdóttir. verslunarstjóri Verð-
Iistans, „en ófærðin að undanförnu
hefur sett annan svip á útsöluna
núna.” Blaðamaður og ljósmyndari
DV höfðu klöngrast yfir ófærur inn í
Laugarnes, fóru að fordæmi þeirra
sem eitthvað vilja á sig leggja til að
komast á útsölur. í Verðlistanum voru
viöskiptavinir, sem ótrauðir höfðu lagt
í ’ann, létu ekki vindgust eða hálku
aftra sér frá góðum viðskiptum. Á
janúarútsölum undanfarin ár hefur
margur gert reyfarakaup og við örkuð-
um í snjónum í siðustu viku til aö
kanna hvort ekki væri sama hlið
teningsins uppi í ár. Gamla spakmælið
— oft hefur verið þörf, en nú er nauð-
syn — kemur í hugann, þegar kreppu-
kló vofir yfir fólki, og hagur buddunnar
þrengist. Nauðsyn krefur kannski til
umhugsunar og hagstæðari kaupa en
áöur.
Otsalan í Verölistanum hófst í árs-
byrjun og mun líklega standa yfir
þennan mánuð. Eins og Þorbjörg
verslunarstjóri gat um hefur ófærðin
sett sinn svip á útsölu þeirra í ár. En
jafnt og þétt hafa viöskiptavinir haft
þarna viðkomu svo að útkoman er nán-
ast sú sama og fyrri ár. Sá fatnaður,
sem þama er á útsölu, er seldur með
25% afslætti frá fyrra smásöluverði, og
eru kjólar, pils, blússur og kápur
þama í hundraðavís á kjörverði. ÍJlpur
eru seldar með 50% afslætti og verð á
þeim sumum rúmar fjögur hundruö
krónur.
Lagt í leiftursóknina
Frá Verðlistanum, sem eingöngu selur
kvenfatnað, lögöum viö í Leiftursókn-
ina með áhlaupi, ekki svo lítiö áræði
þaö. I þessari sókn viö Skúlagötuna, er
mikið úrval af „samkynja” fatnaöi
eins og til að mynda gallabuxur og há-
skólabolir. Aöalúrvaliö í fatnaði er þó
fyrir karlpeninginn. Skyrtur frá 75.
krónum á karltegundina á öllum aldri,
flauelsbuxur á 390 krónur (kostuöu áö-
ur 660—690 kr.) og úlpur á 690 kr. K-
buxur sem eru sveigjanlegar og teygj-
anlegar á aila kanta kosta í leiftur-
sókninni einnig kr. 390.-. Þeir sem em
handlagnir með skæri, nál og tvinna
geta keypt þama efnisbúta í buxur
meðeigin sniöiá góöu verði.
Aö sögn Björns Guðmundssonar
„sóknarformanns” hefur ásókn veriö
mikil á staðnum síðan leikurinn hófst
fyrr í þessum mánuöi. „Viö höfðum
einnig útsölu hér í hálfan mánuð sl.
haust og gekk hún einnig vel. Þaö
yngsta sem hér er á boðstólum er árs-
gamall fatnaöur, tímamir eru þannig
aö ekki er hægt aö liggja lengi meö
sama lagerinn.” Þar meö sveiflaði
Björn málbandi um metra-breitt mitti
nærstadds manns og handlangaöi síð-
anpasslegar buxur.
Málbönd gagnleg
Þeir reyndustu í útsöluleiööngmm
vom forsjálir, höföu meöferðis mál-
bönd og mældu strengi og skálmar,
tóku ákvarðanir eftir hljóöan málsins
og skunduðu af vettvangi meö góöan
feng. Þeir sem reynsluminni vom biöu
viö búngsklefana, þolinmóöir meö
stafla af buxum, skyrtum og jökkum í
höndunum. „Maöurinn minn keypti
sér alklæönað, buxur, jakka og vesti
hér fyrr í vikunni fyrir tæpar þúsund
krónur” sagöi kona ein sem viö hófum
útsölusamræður við. Hún handlék T-
boli sem kosta 75 krónur og aö því
loknu sveif hún yfir aö næsta boröi og
þar lágu háskólabolir í hrúgum á 150
krónur. Leiðir skildu, við útganginn
fengum við aö gægjast í poka hjá ein-
um viðskiptavini, sá var ánægður meö
sín kaup. Haföi keypt fínustu skradd-
arasaumuö spariföt á tæpar tvö þús-
„ Þær oru nu bara smart, buxurnar, segir oin ur hópnum.
I litlu húsi við Aðalstræti var ,,Sór"-útsaia igangi.
Leiftursóknin tekin með áhlaupi. . . .
TSLMnm