Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1983, Qupperneq 7

Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1983, Qupperneq 7
DV. FIMMTUDAGUR 20. JANUAR1983. 7 Neytendur Neytendur und og fjögur hundruð (kostuðu áður kr.3.800). Hann vartilbúinnaömætaá þorrablótið í nýju fötunum sínum sá. Utgangan tafðist því að ljósmyndarinn af „hinu kyninu” var komin í sóknar- hug, haföi þó ekki málband meðferöis eins og þeir forsjálu. Blaðamaöur felldi sóknarlotu ljósmyndarahs á tímaskorti og studdi hann út á hálan ís utandyra. Áður en það tókst hafði spá- maöur einn spáð fjögurra mánaða út- sölum vegna kreppuaðstæðna í þjóðfé- laginu. — Ljósmyndarinn hefur því nægan tíma til aö kaupa sér málband — sem er hið nauðsynlegasta málgagn útsöluspekúlanta í tímahraki. Olpusala og lægðir Laugavegurinn var troöinn og stað- næmst við töluna tólf á húsvegg. A dyr- um verslunarinnar Viktoríu var merk- iö sem við leituðum að — útsala. „Sala á úlpumhefur verið mjög mik- il og þar hjálpaði veör'ð til” sagði búðareigandinn, Auöur. „Veðrið hef- ur komið við sögu að öðru leyti líka. Aðsóknin er líklega jafnmikil nú og fyrri ár, en dreifðist vegna lægðanna.” Yfirleitt var 50% afsláttur á vörunum í Viktoríu, á kjólum þó um 35%. En þama voru á boðstólum til dæmis fyrr- nefndar úlpur, kjólar, blússur, peysur, blússur og kápur, allt á kvenlegginn. Nokkrar blómlegar og hressar píur veltu buxum á allar hliðar og vöngum yfir því hvort buxurnar væru nógu smart. Þær sögðust hafa gengið á milli verslana í leit að „smart” buxum en ekki haft erindi sem erfiði. „Þessar eru nú bara „smart”, sagði ein úr hópnum, en þær gengu á brott án kaupa. Sama gerðum við — með trega þó því að ýmislegt freistaði. Verslun- areigandinn tjáði okkur að útsalan í Viktoríu væri á síðasta snúningi því að nýjar vörur biðu og ekki nema tæpur mánuður þar til sumarfatnaður kæmi í verslunina. Það fannst okkur notaleg tiUiugsun þegar kuldinn beit í nefið á göngunni á næsta áfangastað. Sérútsala I litlu húsi viö Aðalstrætið var útsala í gangi. Er þetta fyrsta útsalan í sögu þeirra verslunar, en „Sér” var opnuð í ágúst sl. „Við erum með 25—50% afslátt á vörunum, fer afslátturinn eftir því hvað viðkómandi vara er seljanleg,” sagði Guðjón Sigurösson í „Sér”- versluninni. „Utsalan er nýhafin hér og hefur gengið aldeilis ljómandi vel, enda er þetta allt nýlegur fatnaður. Við höfum ekki ákveðið enn, hvað útsalan mun standa lengi, það fer eftir efnum og ástæöum.” Guðjón sagði að áhersla hefði verið lögð á vandaðan fatnað í „Sér”. Það væri höfuðtilgangurinn með rekstri þessarar verslunar að hafa „góðar vörur og góð merki”. Silkiblússa óneitanlega nokkuð „sér”- stök, sem kostaði áður kr. 3.400, var nú til sölu á kr. 1.990. Ullarkápa ein, sem verðlögö var áður á kr. 7.900, var nú fölákr. 4.500. Viðskiptavinir komu og fóru, skoð- uðu flíkumar og nokkrir eigin buddu áður en kaup fóru fram. Þeir sem f jár- festu í „Sér” gengu tU dyranna, glað- beittir meö góssið í innkaupapokunum. Nú var það ljósmyndarinn, sem greip til sinna ráða og hrakti blaða- manninn út í ófæröina. Hann hafði séð „sérvisku” glampa bregða fyrir í aug- um blaðamannsins — nú mátti engan tíma missa. Næsta hringferð á útsölur veröur f arin án hans. -þg Ovenju brothætt egg í verslunum: Efspara á fóðríð við hænurnar hætta þær einfaldlega að verpa. ÁSTÆÐANILL MEÐFERÐ EÐA HÁR ALDUR VARPHÆNA Hingað hringdi kona sem kvartaði undan því að eggin, sem hún keypti núna, væru sérlega brothætt. Sagði hún þau stundum brotin í bökkunum í búöunum eða þá að þau brotnuöu á leiöinni heim. Þótti henni þetta aö vonum afleitt því að egg eru dýr og slæmt þegar mikill hluti þeirra brotnar í ótíma. Þessi egg sem konan nefndi voru pökkuð í bláa pakka úr pappa. Margir framleiðendur pakka eggjum í slíkar umbúðir þannig að erfitt er að segja til um það hver á hvað. En við höföum samband við Geir Gunnar Geirsson, eggjabónda á Vallá, og spurðum hann hvernig á þessu gæti staöið. Geir hefur verið frammámaöur i samtökum eggja- framleiðenda. Hann sagði að einkum gætu tvær ástæöur legið til þess að egg væru sérlega brothætt. önnur væri óvar- leg meöferð. Hin væri sú að þegar hænur taka aö eldast verpa þær stærri eggjum og er þá skumin þynnri og brothættari. Alveg væri sama hvað þessum hænum væri gefið, þær ynnu hreinlega ekki betur úrfæðunnienþetta. Við hérna á Neytendasíðunni höföum heyrt aö kalkleysi í fæöunni gæti valdiö því að skumin yrði brot- hættari en ella. Það sagði Geir aö gæti svo sem verið með ungar hænur. En hver eggjabóndi sem ekki væri á steinaldarstigi sæi um að gefa hænunum nóg kalk. Þaö þýddi líka ekkert að ætla að spara sér í fóðri því að þá hættu hænurnar einfaldlega að verpa og þá væri betra að slátra þeim. -DS. ÚTSALA 50% afsláttur SMÁauglýsinga og áskriftarsími 27022 Opið ta u. ío íkvold Og nú geturðu verslað ij| út á kreditkortið þitt WRMULI 15 SUVURLfíNIXSBfíQOT LHUGAR^c^OLL Verksmiðjuútsalan Blossahúsinu — Ármúla 15. Sími 86101.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.